Fréttablaðið - 23.11.2012, Qupperneq 25
OKKAR MENN Í HAVANA
Sigurður Guðmundsson og Memfismafían verða með árlega jóla-
tónleika sína í menningarhúsinu Hofi annað kvöld kl. 20.00. Ný
plata, Okkar menn í Havana, er að koma út en hún var hljóðrituð
á Kúbu. Munu lög af henni hljóma á tónleikunum auk eldri laga.
Matreiðslumaðurinn Úlfar Finn-björnsson sér um sjónvarpsþátt-inn Eldað með Holta á ÍNN. Þar
heimsækir hann marga af færustu kokkum
landsins og fær þá til að elda ljúffenga
rétti úr Holta-kjúklingi. Í dag er það mat-
reiðslumaðurinn Björgvin Mýrdal, yfir-
matreiðslumeistari á Hótel Búðum sem
er gestakokkur. Björgvin er meðlimur í
Bocuse d‘Or-akademíunni. Árið 2000 varð
hann yngsti kokkurinn til að hljóta nafn-
bótina matreiðslumaður ársins. Hér færir
hann okkur uppskrift að ljúffengum kjúk-
lingarétti með kryddsmjöri og sveppa-
sósu. Hægt er að fylgjast með Björgvini
elda þennan girnilega rétt í kvöld klukkan
20.30 á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Þættirnir
verða svo endursýndir yfir helgina. Einnig
er hægt að horfa á þá á heimasíðu ÍNN,
inntv.is.
ELDAÐ MEÐ HOLTA
HOLTA KYNNIR Úlfar Finnbjörnsson sér um sjónvarpsþáttinn Eldað með
Holta á ÍNN. Á næstunni mun hann heimsækja nokkra af færustu kokkum
landsins og fá þá til að elda ljúffenga kjúklingarétti úr Holta-kjúklingi.
FLOTTIR KOKKAR
Björgvin Mýrdal og Úlfar
Finnbjörnsson útbúa
girnilegan kjúklingarétt
á ÍNN.
MYND/GVA
■ KRYDDSMJÖR OG KJÚKLINGUR
500 g mjúkt smjör
1 búnt ferskar kryddjurtir svo sem
steinselja, basil, estragon eða
kóríander, allt eftir smekk hvers
og eins.
10 hvítlauksgeirar
4 skalottlaukar
2 bollar brauðraspur
Salt og pipar
1 heill kjúklingur
■ AÐFERÐ
Setjið allt nema kjúklinginn í mat-
vinnsluvél og maukið. Setjið krydd-
smjörið í sprautupoka, eða notið
skeið, og sprautið undir skinnið á
kjúklingabringunum. Setjið kjúk-
linginn í 200 gráðu heitan ofn og
eldið í 45 mínútur. Takið hann þá
út og látið hvíla í 10 til 15 mínútur
áður en hann er hlutaður niður.
■ SVEPPASÓSA
1 box kjörsveppir, saxaðir
4 hvítlauksgeirar, fínsaxaðir
3 skalottlaukar, fínsaxaðir
1/2 l rjómi
Sveppa- eða kjúklingakraftur, eða
hvort tveggja, allt eftir smekk
hvers og eins.
■ AÐFERÐ
Steikið grænmetið á pönnu. Bætið
rjómanum við og látið malla þar til
vökvinn þykknar.
Smakkið til og kryddið með ný-
möluðum svörtum pipar. Meðlæti
að eigin vali.
KJÚKLINGUR
MEÐ KRYDDSMJÖRI OG SVEPPASÓSU
ht.is
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ S: 414 1740 • EYRARVEGI 21 SELFOSSI S: 480 3700
• GARÐARSBRAUT 18A HÚSAVÍK S: 464 1600 • GLERÁRGÖTU 30 AKUREYRI S: 460 3380
• KAUPVANGI 6 EGILSSTÖÐUM S: 414 1735 • SUÐURLANDSBRAUT 26 REYKJAVÍK S: 569 1500
Skannið merkið og sjáið mynd um JuiceMaster!
Búið til ljúffenga safa úr berjum, kiwi, chillí,
salatblöðum, brokkólí og auðvitað appelsínum
og tómötum! JuiceMaster er kröftug og hljóðlát
safapressa með 150 watta mótor sem gefur
hámarks árangur og heldur ferskum öllum
næringarefnunum sem eru í grænmetinu og
ávöxtunum. JuiceMaster tekur lítið pláss og er
mjög einfalt að þrífa á aðeins einni mínútu.
Endalausir möguleikar
með JuiceMaster
Juicemaster fæst bæði hvít eða stállituð.
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT