Fréttablaðið - 23.11.2012, Qupperneq 30
4 • LÍFIÐ 23. NÓVEMBER 2012
Guðrún Tinna Ólafsdóttir, framkvæmda-
stjóri Ígló, býr ásamt eiginmanni sínum
og fimm börnum þeirra í fallegu raðhúsi á
Seltjarnarnesi. Í Heimsókn annað kvöld á
Stöð 2 bankar Sindri Sindrason upp á hjá
fjölskyldunni en þátturinn er í opinni
dagskrá strax að loknum fréttum.
GUÐRÚN TINNA
HEIMSÓTT
Heimilið er fullt af fallegum verkum sem aðallega eru eftir yngstu fjölskyldumeðlimina.
Karl Pétur Jónsson, Guðrún Tinna Ólafsdóttir og tvíburarnir þeirra Grímur Fannar
og Fanney Petra.
Hlýleikinn er allsráðandi. Birtan er falleg í húsinu.
Það fallega við mitt starf er
að það eru engir tveir dagar
eins og þess vegna tek ég
stikkprufu af föstudeginum
23. nóvember.
08.00 Dagurinn byrjar
snemma með morgunkaffi í
Vesturbæjarskóla þar sem sonur
minn Benedikt er í öðrum bekk.
Strákarnir mínir búa bæði hjá mér
og pabba sínum og þessa vikuna
eru þeir ekki hjá mér þannig að
ég hlakka til að sjá Bensa minn á
föstudagsmorgun.
10.00 Eftir það kem ég mér niður í Ráð-
hús á fund með vinum mínum í
Besta. Þetta er fastur punktur í vik-
unni sem er mjög mikilvægur fyrir
okkar hóp því við erum dreifð um
alla borg.
11.00 En það geng-ur ekkert hangs í
dag því næst tekur við fundur með
Oddnýju Sturludóttur, sem er með
mér í gjaldskrárhóp Reykjavíkur-
borgar, og við þurfum aðeins að
fara yfir nokkur æsandi mál fyrir
fjárhagsáætlun.
12.00 Í hádeginu á föstu-dögum er vana-
lega framkvæmdastjórnarfund-
ur hjá Bjartri framtíð. Þar er mjög
margt spennandi að gerast þessa
dagana. Við höfum verið að vinna
að þessu verkefni síðan síðasta
haust og nú líður senn að því að
fleiri og fleiri hlutir í tengslum við
Bjarta fari að koma í ljós. Þetta er
mjög krefjandi verkefni sem kallar
á mikla athygli og vandvirkni, en ég
vinn það með mjög skemmtilegu
fólki sem leggur sig allt fram svo
þetta takist vel og fallega.
13.00 Svo ætla ég að reyna að
hitta Árna vin minn að-
eins og taka stöðuna.
Mér finnst mjög mikil-
vægt að hitta vini mína því
annars er ég hrædd um að
ég breytist í brúnaþungan leið-
indapúka sem talar bara um al-
varleg mál, sveiflandi skjölum máli
mínu til stuðnings.
14.00 Þá fer ég á fund á Höfðatorgi með
Björk Vilhelmsdóttur, velferðar-
drottningu í Reykjavík. Ég er nefni-
lega varaformaður í velferðarráði
og þennan tíma notum við Björk til
að stilla saman strengi ásamt yf-
irstjórn á velferðarsviði – fara yfir
það sem er fram undan, enda
engin vöntun á krefjandi og áhuga-
verðum verkefnum þar.
15.00 Eftir það mun ég renna aftur niður í
Ráðhús og sjá hvort Björn og Jón
séu ekki farnir að sakna mín, sem
er oftast raunin.
17.00 Svo þarf ég að fara drífa mig heim,
því sem Bandaríkjamaður hef
ég tekið frá kvöldið til að halda
þakkargjörðar hátíð. Við Oddur,
kærastinn minn, ætlum að leiða
saman Snorra bróður minn og
Davíð bróður hans, enda erum
við bæði mjög þakklát fyrir þá
og þeir skiljanlega mjög þakk látir
fyrir okkur. Ég hef mjög gaman af
að elda og ætla að taka Mörthu
Stewart á þetta og skella í kalkún
(mögulega kalkúna bringur vegna
tímaleysis, en stöffingið verður
auðvitað útbúið deginum áður ef
einhver var að hafa áhyggjur af
því).
Heiðu Kristínar Helgadó ur
stjórnarformanns Bjartrar framtíðar.
Einstaklega ríkt af próteini (27g í 100g), járni,
E og B1 vítamíni. Gott í múslí, jógúrt, bakstur
og þeytinginn.
Góðar fyrir húð, hár, heila, hjarta- og æðakerfi.
Til inntöku, í þeytinginn og grautinn.
Orkugefandi og einnig góð til að varna
sýkingum því þau innihalda ríkulegt magn
propolis. Góð út á jógúrt, í músíl, þeytinginn
og til inntöku (1-2 tsk.).
NATUFOOD