Fréttablaðið - 23.11.2012, Side 52
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 36
„Þetta hefur verið mjög lærdóms-
ríkt ferli og ég hafði gaman af,“
segir viðskiptafræðineminn Eva
Laufey Hermannsdóttir, einn af
þátttakendum í raunveruleika-
þættinum Masterchef sem verður
frumsýndur í kvöld.
Eva Laufey er einn vinsælasti
matarbloggari landsins og hefur
fengið hátt í 700 þúsund heimsókn-
ir á síðuna sína, Evalaufey.com.
Þetta er frumraun hennar í sjón-
varpi, en Eva Laufey kveðst vera
mikill aðdáandi Masterchef-þátt-
anna. Það var samt ekki að eigin
frumkvæði sem Eva Laufey ákvað
sækja um fyrr í haust. „Ég var
hvött til að sækja um og eftir smá
umhugsunarfrest ákvað ég að slá
til. Ég sá að ég hafði litlu að tapa
og það yrði skemmtilegt að prófa
þetta,“ segir Eva Laufey sem lík-
aði vel fyrir framan myndavélina.
Eva Laufey viðurkennir að hafa
verið stressuð fyrir prufurnar
enda vissi hún ekkert hvað hún var
að fara út í. „Ég róaðist fljótt, enda
var mjög fagmannlega að öllu stað-
ið. Ég vildi ekki taka neina áhættu
svo ég mætti með hefðbundinn
fiskrétt frá mömmu sem ég hafði
gert oft áður, með bragðmikilli
sósu og fullt af grænmeti, og er í
miklu uppáhaldi á mínu heimili.“
Bakstur og eldamennska eru
líf og yndi Evu Laufeyjar, sem
stundar háskólanám í viðskipta-
fræði. Hún segir að það sé freist-
andi að snúa sér alfarið að elda-
mennsku. Í kvöld ætlar Eva Laufey
að hreiðra um sig fyrir framan
sjónvarpið með fjölskyldu sinni og
kærasta til að horfa á fyrsta þátt-
inn. „Ætli ég eldi ekki eitthvað gott
í tilefni dagsins. Maður er með
smá fiðrildi í maganum, bara góð
samt.“ alfrun@frettabladid.is
Ég sá að ég hafði
litlu að tapa og það yrði
skemmtilegt að prófa
þetta.
Eva Laufey Hermannsdóttir
Masterchef-keppandi
Casey Legler er nýjasta karlfyr-
irsæta Ford fyrirsætuskrifstof-
unnar. Það væri ekki frásögur
færandi nema fyrir þær sakir að
Legler er kona.
Fyrirsætuferill Legler hófst
í sumar þegar hún sat fyrir á
myndum sem vinur hennar, ljós-
myndarinn Cass Bird, tók fyrir
tímaritið Muse. Myndirnar rötuðu
svo í hendur starfsmanns Ford
skrifstofunnar og næsta dag var
Legler boðuð í viðtal.
„Þetta er einstakt lítið augna-
blik sem tískuiðnaðurinn hefur
tekið opnum örmum,“ sagði Legler
og vísar þar til karlfyrir sætunnar
Andrej Pejic, sem hefur helst
sýnt kvenmannsföt. Tískuheim-
urinn kallar þetta „androgyny“,
eða kyntvíræðni. Mörkin milli
kynjanna eru óljósari og geta fyr-
irsætur brugðið sér í ýmis hlut-
verk, óháð kyni.
„Það væri sannarlega fallegt ef
við mættum öll bara klæðast þeim
fötum sem við vildum, án þess að
það væri hlaðið merkingu,“ segir
Legler sem búsett er í New York
og starfar þar sem listamaður.
Nýjasta viðbót Ford
Casey Legler er nýjasta karlfyrirsæta fyrirsætuskrif-
stofunnar Ford. Legler er kona og starfar við list.
NÝ FYRIRSÆTA Casey Legler er nýjasta karlfyrirsæta Ford. Hún er þó kona.
Hlýddu á nýjustu
Hjaltalín-plötuna
Þriðja breiðskífa hljómsveitarinnar Hjaltalín, Enter 4, fór í forsölu á
Tónlist.is í gær en kemur í verslanir í næstu viku. Af því tilefni buðu
Hjaltalín-liðar til svokallaðs hlustunarteitis á veitingastaðnum KEXI
á miðvikudagskvöld þar sem nýtt myndband var jafnframt frumsýnt.
BREGÐUM GLÖSUM Á LOFT Sigríður Thorlacius, söngkona Hjaltalín, skálaði fyrir nýju plötunni ásamt
Sigrúnu, Sólveigu og Áslaugu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KULDABOLI Védís Kjartansdóttir og Ásrún Mag-
núsdóttir klæddu sig eftir veðri, en virðist ekki hafa
verið of hlýtt inni á KEXI.
SÍS Ástríður Viðarsdóttir og Heiða Kristín Helga-
dótt ir brostu sínu blíðasta í tilefni dagsins.
MEÐ LEÐRI SKAL LAND BYGGJA Högni Egilsson, söngvari sveitarinnar, var vígalegur í leðri ásamt Greipi
Gíslasyni.
BLÁTT ÁFRAM Sjálfstæðismennirnir úr Breiðholtinu, Ólafur Teitur Guðnason og Gísli Marteinn Baldurs-
son, nutu kvöldsins.
Mætti með mömmu-
mat í prufuna
Eva Laufey Hermannsdóttir heldur úti einni vinsælustu matarbloggsíðu lands-
ins. Í kvöld birtist hún í fyrsta sinn á skjáum landsmanna sem einn þátt takend a
í íslenskri útgáfu Masterchef. Hún segist vera með fi ðrildi í maganum.
SPENNT EVA LAUFEY HERMANNSDÓTTIR er einn þátttakenda í Masterchef-þátt-
unum sem hefja göngu sína í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON