Fréttablaðið - 23.11.2012, Side 54
23. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR| MENNING | 38
„Ég ákvað að gera bók um hinn
biblíska heimsendi og datt í hug
að blanda geimverum í söguna.
Þetta er svo ótrúlega súr og
snarklikkaður heimsendir að mig
langaði að myndskreyta hann,“
segir rithöfundurinn og teiknar-
inn Hugleikur Dagsson.
Hugleikur gaf út sína átjándu
bók, Opinberun, á dögunum og
er hún byggð á síðustu bók Biblí-
unnar, Opinberun Jóhannesar,
og fjallar um heimsendi. „Það er
sjaldan talað um Opinberunina í
kristinfræði eða í kirkjum, sem
er skiljanlegt því þar er verið að
murka lífið úr mannkyninu. Guð
var rosa reiður í Gamla testa-
mentinu, hélt aftur af sér megnið
af því nýja og tjúllast svo þarna
í lokin. Það má líkja þessu við
alkóhólista sem eignast barn og
ákveður að vera góður og hætta
að drekka en fellur svo og tekur
tryllingsgang,“ segir Hug leikur.
Hann segist ekki hafa neitt á
móti kristinni trú frekar en nokk-
urri annarri, þó sé hann á móti
fólki sem misnotar trúarbrögð.
„Ég er kannski aðeins að gera
grín að kristni en annars er ég
bara að myndskreyta bókstaflegu
túlkunina á bókinni. Þeir fáu sem
ræða Opinberun Jóhannesar taka
alltaf fyrir myndmálið en mér
finnst bókstaflega leiðin miklu
skemmtilegri,“ segir hann og
kveðst ekki hafa miklar áhyggjur
af reiði frá kirkjunnar mönnum.
„Íslendingar eru svo fullir af
húmor. Flestir hér eru með Jesús
á réttum stað og taka Biblíuna
ekki of bókstaflega svo það er
alltaf verið að guðlasta án þess
að nokkuð sé gert í því. Ég held
að Íslendingar séu frekar guð-
lausir. Eins og þegar heiðni var
látin víkja fyrir kristni. Þá var
fólki sagt að það mætti alveg
halda áfram að vera heiðið, bara
svo lengi sem það gerði það í
kjallaranum og segði engum frá
því. Ég held að þetta hafi mótað
okkur til dagsins í dag og þó við
séum kristin á yfirborðinu erum
við rammheiðin í kjallaranum,“
segir hann.
Finnar hafa þegar sýnt því
áhuga að fá Opinberun Hugleiks
þýdda yfir á finnsku og Hug-
leikur vonast til að hún verði
þýdd á ensku líka. „Það væri
gaman að gefa hana út í Banda-
ríkjunum því ég hugsa að þar-
lendis sé að finna það fólk sem
er hvað mest að bíða eftir þessum
heimsendi. Reyndar held ég
að enginn sem sé að bíða eftir
þessum heimsendi hafi lesið
smáa letrið í Opinberun Jóhann-
esar. Þeir hafa örugglega ekki
heyrt af her engisprettudýra
eða því að aðeins 144.000 manns
komast til himna og það séu allt
karlmenn og hreinir sveinar sem
ekki hafi saurgað sig með kven-
manni,“ segir hann.
Aðspurður getur hann vel
hugsað sér að taka fyrir fleiri
bækur úr Biblíunni í fram tíðinni
en í þessari seríu ætlar hann
að einbeita sér að heimsenda.
„Hingað til hafa bara þessar
barnvænu sögur í Biblíunni verið
myndskreyttar af einhverju viti
en það er alveg fullt af sögum
þarna sem væri skemmtilegt
að taka fyrir. Mig hefur samt
alltaf langað til að gera bók
um heimsendi og Opinberun er
bara sú fyrsta í seríunni. Ég er
komin með nokkrar heimsenda-
bækur í hausinn en veit ekki
hvað þær verða margar eða hve-
nær seríunni lýkur. Ég er samt
búinn að ákveða að næsta bók
verði um zombie-endi. Ég ætla
að hafa mismunandi teiknara
í hverri bók svo Opinberun er
sú eina í þessari seríu sem ég
teikna sjálfur. Bækurnar verða
því mjög ólíkar þó ég skrifi þær
allar,“ segir Hugleikur að lokum.
tinnaros@frettabladid.is
Guð var rosa reiður
í Gamla testamentinu,
hélt aftur af sér megnið
af því nýja og tjúllast svo
þarna í lokin.
Hugleikur Dagsson, rithöfundur
Óttast ekki reiði kirkjunnar manna
Opinberun Hugleiks byggir á síðustu bók Biblíunnar sem segir frá heimsenda á súran og snarklikkaðan hátt að sögn rithöfundarins.
EKKERT Á MÓTI KRISTNI Hugleikur segist ekki hafa neitt á móti kristinni trú þó
hann sé að gera örlítið grín að henni í nýju bókinni. Hann er þó á móti fólki sem
misnotar trúarbrögð, hvaða trúarbrögð sem er. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÁTJÁNDA BÓKIN Opinberun er átjánda
bók Hugleiks og sú fyrsta í nýrri seríu
hans sem mun fjalla um heimsendi.
Hann mun skrifa allar bækurnar í
seríunni en ólíkir teiknarar koma til
með að myndskreyta.
Íslenskur vínylmarkaður fer
fram í Kexi hosteli við Skúlagötu
á morgun. Á markaðnum verður
hægt að kaupa vínylplötur með
íslenskri tónlist.
Útgáfa vínylplata hefur stór-
aukist á síðustu árum og líklega
hefur úrvalið aldrei verið glæsi-
legra en í ár. Því var ákveðið að
blása til markaðar þar sem tón-
listaráhugamönnum gefst kostur
á að kaupa íslenska tónlist á vínyl.
„Sala vínylplatna hefur aukist
mjög undanfarin ár. Það er dýr-
ara að gefa út vínylplötu en geisla-
disk en mörgum tónlistar mönnum
þykir mjög vænt um vínylinn og
vilja því líka gefa tónlist sína út
á því formi. Mörgum þykir líka
hljóðið úr vínyl skemmtilegra
en úr geisladisk, enda er þetta
ekki stafrænt og það skilar sér
oft í meiri hlýleika og breidd í
hljómnum,“ segir Baldvin Esra
Einarsson, plötuútgefandi hjá Kimi
Records.
Plöturnar sem fást á markaðnum
á morgun komu flestar út á þessu
ári og eru eftir tónlistarmenn
á borð við Snorra Helgason,
Borko, Tilbury, Retro Stefson,
Ojba Rasta, Ásgeir Trausta, Of
Monsters and Men auk fjölda
annarra. Tónlistarfólkið mun
einnig troða upp og árita plöt-
urnar sé þess óskað. „Snorri
[Helgason] og Magnús [Trygva-
son Eliassen] áttu hugmyndina að
þessu. Þeir vildu gera skemmti-
legan dag úr þessu og hafa það
huggulegt saman. Tónlistar fólkið
verður á staðnum til að spila,
spjalla og árita fyrir þá sem vilja,“
segir Baldvin.
Markaðurinn hefst klukkan 13
og á sama tíma mun hljómsveitin
Retro Stefson stíga á stokk. - sm
Spjalla, spila og árita
vínylplötur á markaði
Íslenskur vínylmarkaður verður haldinn á Kexinu á
morg un. Tónlistarfólkið verður á staðnum og mun
spjalla við gesti og árita plötur. Einnig verða tónleikar.
VÍNYLMARKAÐUR Íslenskur
vínylmarkaður fer fram á Kex
hostel á morgun. Baldvin Esra
Einarsson segir að mörgum
tónlistarmönnum þyki vænt
um vínylinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Tryggðu þér miða!
Miðasala í fullum gangi
Einnvinsælastigamanleikurallra tíma!