Fréttablaðið - 26.11.2012, Page 17
NÝTT LÍF
„Bæði kortin og
merkispjöldin hafa
framhaldslíf eða
tvöfalt hlutverk.“
TALIÐ NIÐUR
Á laugardag byrjar niðurtalning barnanna til jóla.
Það er spennandi að opna glugga á hverjum degi
og fá lítinn súkkulaðimola þótt ekki séu nammi-
dagar alla daga. Flestir vilja gera vel við sig á
aðventu og börnin eru þar ekki undanskilin.
Standandi pakkamerkispjöldin hennar Maríu Möndu hlutu Skúlaverðlaunin í ár en verðlaunin
voru afhent á sýningunni Handverk og
hönnun sem haldin var í byrjun mánað-
arins. Verðlaunin eru veitt þeim hönn-
uði sem talinn er eiga besta nýja hlutinn
á sýningunni og mega hlutirnir hvorki
hafa verið til sýnis né sölu opinberlega
fyrir sýninguna. „Fyrir jólin í fyrra bjó
ég til standandi jólakort og sendi til við-
skiptavina minna,“ segir Mandý, eins
og hún er kölluð, en hún rekur um-
búðasmiðjuna MMHönnun. „Nokkur
kort lentu á Þjóðminjasafninu af því ég
hafði unnið fyrir það. Vala Ólafsdóttir
sem vinnur þar hringdi í mig og spurði
hvort ég vildi ekki selja jólakortin. Þetta
var bara kortér í jól og ég ætlaði ekki
að fara út í sölu á þessu. Hún talaði mig
til og ég fór með nokkur kort til hennar
sem seldust svo upp. Ég fór með fleiri
kort og þau seldust upp á hverjum degi
fyrir jólin,“ segir Mandý og hlær.
Um síðustu jól notaði Mandý jóla-
kortin sem pakkamerkispjöld á pakka
sem hún gaf vinum og vanda mönnum.
Út frá því ákvað hún að hanna minni
pakkamerkispjöldin sem hún hlaut
verðlaunin fyrir. „Bæði kortin og
merkispjöldin hafa framhaldslíf eða
tvöfalt hlutverk því það er líka hægt að
stilla þeim upp og nota sem jólaskraut.
Jólakortin koma vel út ef þeim er raðað
saman á borð eða í glugga og fallegt er
að hengja litlu spjöldin á jólatréð.“
Mandý segir umbúðir skipta miklu
máli í framsetningu verslana og í mark-
aðssetningu en fyrirtæki hennar hannar
umbúðir fyrir bæði lítil og stór fyrir-
tæki. „Það hefur oft verið vandamál
fyrir hönnuði og handverksfólk að finna
umbúðir sem passa fyrir þeirra vöru. Ég
sérhanna formið á umbúðunum svo það
smellpassi,“ segir hún.
Jólakortin og pakkamerkispjöldin frá
Mandý fást í helstu gjafa- og hönnunar-
verslunum bæði á höfuðborgarsvæðinu
og á landsbyggðinni.
■ lilja.bjork@365.is
LÍKA JÓLASKRAUT
VERÐLAUNUÐ PAKKAMERKISPJÖLD María Manda umbúðahönnuður hlaut
Skúlaverðlaunin í ár fyrir pakkamerkispjöld sem hún hannaði.
HLAUT SKÚLAVERÐLAUNIN
María Manda hannaði standandi
jólakort fyrir jólin í fyrra. Núna
hefur hún bætt við standandi
pakkamerkispjöldum sem hún
hlaut verðlaun fyrir.
MYND/ANTON
Hágæða sæn
gurverasett
og sloppar -
Mikið úrval
Jólagjöfin í ár
20%
afslát
tur