Fréttablaðið - 26.11.2012, Side 18

Fréttablaðið - 26.11.2012, Side 18
FÓLK|HEIMILI FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir jmh@365.is s 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, s 512 5432 Elsa Jensdóttir elsaj@365.is s. 512-5427 LITATÓNAR „Teppið er ekki alveg svart því hrafninn er ekki kolsvartur. Þegar sólin skín á fjaðr- irnar koma í ljós margir fjólublá- ir og blágrænir lita- tónar.“ TÍUNDA TEPPIÐ Bryn- hildur Pálsdóttir vöru- hönnuður og Ólafur Páll Torfason, framkvæmda- stjóri Víkur Prjónsdóttur, með nýjustu vörurnar, trefil og teppið Nátt- hrafninn á milli sín. MYND/ANTON Vík Prjónsdóttir hefur sent frá sér tvær nýjar vörur, ullarteppi sem kallast Nátthrafninn og trefil. Nátthrafninn er tíunda teppið sem kemur frá Vík og er úr íslenskri ull eins og allar vörur hönnunarfyrir- tækisins. Teppið er tileinkað hrafn- inum en áður hefur Vík Prjóns gefið út Verndarvænginn, ullarteppi, tileinkað haferninum. Brynhildur Pálsdóttir, einn af hönnuðum Víkur Prjónsdóttur, segir Nátthrafninn nokkurs konar framhald af Verndarvængnum. „Nátthrafninn er talsvert minni enda er vænghaf hrafnsins miklu minna en arnarins. Nátthrafninn er því léttari og meðfærilegri en hann er 85 sentímetrar á breidd og 190 sentímetrar á lengd,“ segir Brynhildur. Teppið er íslensk framleiðsla eins og allar vörur Víkur Prjónsdóttur, prjónað úr íslenskri ull, í dökkum litatónum. „Teppið er ekki alveg svart þó því hrafninn er ekki kol- svartur. Þegar sólin skín á fjaðrirnar koma í ljós margir fjólubláir og blá- grænir litatónar,“ segir Brynhildur. „Hrafninn hefur lifað í návist mannsins eins lengi og menn muna. Tilvist hans hefur hefur spilað stórt hlutverk í goð- sögnum sem og þjóðsögum og eru fáir fuglar sem hafa öðlast slíkan sess í sögu okkar og menningu. Hrafninn er talinn sérstaklega úrræðagóður, skynsamur, gáfaður og kátur, og hafa menn ávallt borið mikla virðingu fyrir honum og spádómsgáfum hans.“ Vík Prjónsdóttir sendir einnig frá sér trefil undir sömu merkjum, Nátthrafna- trefilinn, í sömu litatónum og teppið. Trefillinn fæst á öllum útsölustöðum Víkur Prjónsdóttur en teppið verður til sölu í Sparki og Kraumi til að byrja með. Þá voru að bætast við fleiri litir í treflalínuna, Verndarhendurnar. „Í vor kemur einnig út glæný treflalína frá okkur og svo eru margir fleiri spenn- andi hlutir í bígerð,“ segir hún og vill helst ekki útskýra það nánar, en forvitni blaðamanns er vakin. „Við skulum segja að það sé samstarf við mjög spennandi erlenda hönnuði. En framhaldið verður bara að koma í ljós.“ Vík Prjónsdóttir hefur verið víðförul undanfarin misseri og er nýlega komin heim af sýningu í Helsinki. Þá er Bryn- hildur á leið til Stokkhólms ásamt Guð- finnu Mjöll Magnúsdóttur vöruhönn- uði á næstu dögum. „Vík Prjónsdóttir fékk boð á málstofu á vegum Editions in Craft en það er verkefni sem leggur áherslu á vinnu með staðbundið hráefni og framleiðslu. Þar ætlum við að kynna Vík Prjóns, staðbundna framleiðslu og íslensku ullina.“ ■ heida@365.is TILEINKAÐ KRUMMA ÍSLENSK HÖNNUN Vík Prjónsdóttir hefur nú sent frá sér tíunda teppið úr ís- lenskri ull. Teppið hefur fengið nafnið Nátthrafninn. handhægi D-vítamín úðinn, hámarksnýting Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum. Eru ekki allir örugglega að fá sér D vítamín núna? 3 mánaða skammtur www.gengurvel.is flísar fyrir vandláta PORCELANOSA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 GEFÐU HÆNU gjofsemgefur.is 9O7 2OO3 Fréttablaðið efnir til verðlaunasamkeppni um bestu frumsömdu jólasöguna. Verðlaunasagan birtist í Fréttablaðinu á aðfangadag, myndskreytt af Halldóri Baldurssyni teiknara. Samkeppnin er öllum opin. Einu skilyrðin eru þau að sagan fjalli um jólin eða fangi anda jólanna með einum eða öðrum hætti. Lengdarmörk eru 1.000 til 1.300 orð en að öðru leyti eru efnistök frjáls. Sögur skal senda á netfangið jolasaga@frettabladid.is. Skilafrestur er til 5. desember. Fyrstu verðlaun eru Intel Pentium-fartölva frá Toshiba. Verðlaun fyrir annað og þriðja sæti eru spjaldtölvur af gerðinni United. Sigurlaunin eru frá Tölvulistanum. Jólasagan þín

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.