Fréttablaðið - 26.11.2012, Page 50
26. nóvember 2012 MÁNUDAGUR| MENNING | 18
BAKÞANKAR
Sr. Sigurðar Árna
Þórðarsonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Myndasögur
LÁRÉTT
2. sálar, 6. frá, 8. hljóð svína, 9. mærð,
11. átt, 12. öngla, 14. rót, 16. í röð,
17. nár, 18. sauðaþari, 20. drykkur,
21. fiska.
LÓÐRÉTT
1. steintegund, 3. númer, 4. sprengi-
efni, 5. maka, 7. forskot, 10. yfirgaf,
13. óvild, 15. klettur, 16. kæla, 19. tveir
eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. anda, 6. af, 8. rýt, 9. lof,
11. na, 12. króka, 14. grams, 16. íj,
17. lík, 18. söl, 20. te, 21. afla.
LÓÐRÉTT: 1. talk, 3. nr, 4. dýnamít,
5. ata, 7. forgjöf, 10. fór, 13. kal,
15. sker, 16. ísa, 19. ll.
Mjög
fyndið!
Mér er bara annt
um velferð
kúnnanna minna!
Notist ef
Jói hefur verið
á klósettinu
Vá! Þetta er málið, Palli!
Góði strákurinn Hektor
er úr sögunni!
Vondi strákurinn
Hektor er mættur!
Hvern hefurðu
verið
vondur við?
Bara þessar ermar,
en ég er að vinna
í þessu.
Ég held að Kata
sé í upphækkunum
og hún er ekki
að gabba neinn.
Hérna er þetta...
Flestir sem smitast af
salmonellu fá niðurgang, hita
og magakrampa fjórum til
sex tímum
eftir smitun.
Veikindin endast vanalega í
fjóra til sjö daga og flestir
jafna sig án læknismeðferðar.
JAFNA SIG?? Ég
er mamma! Ég
hef ekki tíma til
að jafna mig!!
Þetta er
ekki svo
slæmt.
Einu sinni sat lærimeistari með nema-hóp hjá sér og spurði: „Á hvaða augna-
bliki endar nóttin og dagurinn byrjar?“
Einn neminn svaraði: „Það er þegar nógu
bjart er til að hægt sé að greina milli
hunds og kindar.“ Annar sagði: „Það er
þegar nógu bjart er til að greina milli
ólífutrés og fíkjutrés.“ En meistarinn
sagði: „Þetta eru góð svör en þó ekki
þau réttu. Svarið er: Þegar ókunnur
maður kemur og við höldum að hann
sé bróðir okkar og allar deilur hætta,
þá er nákvæmlega stundin þegar
nóttin endar og dagur byrjar.“
ÞESSA daga eru börn
drepin – venjulegt fólk – í
Sýrlandi, á Gasasvæðinu
og fólk í suðurhluta Ísraels
býr við flugskeyta árásir.
Glæpir eru framdir og
fólk er tekið af lífi án
dóms og laga. Þetta eru
ill verk myrkravera.
Hvenær dagar?
SHIMON Peres, nú forseti
Ísraels, kom skyndilega til
Íslands árið 1993 í leyniferð
um Norðurlönd. Til gangurinn
var ný friðar áætlun fyrir
stríðandi þjóðir fyrir botni Mið-
jarðarhafs. Perez hafði áhrif á
alla sem hann hittu og það var
merkilegt að bera saman með
honum sögu Íslendinga og Ísraela. Báðar
voru flóttaþjóðir á leið til fyrirheitna
landsins, báðar gerðu þá hetjulegu tilraun
að byggja land með lögum. Hvað gerir
fólk mennskt, skapar þjóð og elur frið?
Leyniförin bar ríkulegan árangur. Óslóar-
samningurinn var undirritaður skömmu
síðar og Bill Clinton skrifaði upp á til
tryggingar.
NOKKRUM árum eftir Íslands komuna
sagði Shimon Perez – á leiðtogafundi í
Davos – viskusöguna um mun dags og
nætur. Þetta er saga úr gyðinglegri speki-
hefð. Nótt lýkur og dagur hefst þegar við
sjáum ókunnan mann verða að systur eða
bróður og deilur hætta. Það er hægt að
nota allar stundir sólarhringsins til að
gera fólk að óvinum. En þá fyrst dagar
þegar fólk sér hvert í öðru manneskjur
en ekki hugsanlega óvini. Stríðsmenn
munu alltaf finna sér tilefni til að deyða
og eyða. En þá fyrst verður afturelding
þegar þau sem eru öðruvísi en ég og við
geta orðið að grönnum og jafnvel vinum.
SPEKI Ísraels dæmir hernað þessara
daga. Shimon Perez þarf að segja þjóð
sinni söguna um dagrenningu. Abbas þarf
að segja söguna einnig. Sýrlenska þjóðin
þarfnast dagrenningar. Og Ísraelar ættu
að gefa nágrönnum færi á að koma sem
systur friðar og bræður dagsins. Mann-
fólk – ljóssins börn – systkin? Leyniför
ljóssins – og hvenær dagar?
Hvenær byrjar dagurinn?
Sprengi-
sandur
Sigurjón M. Egilsson
Sunnudagsmorgna kl. 10 – 12