Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.11.2012, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 26.11.2012, Qupperneq 50
26. nóvember 2012 MÁNUDAGUR| MENNING | 18 BAKÞANKAR Sr. Sigurðar Árna Þórðarsonar 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 KROSSGÁTA PONDUS Eftir Frode Øverli GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Myndasögur LÁRÉTT 2. sálar, 6. frá, 8. hljóð svína, 9. mærð, 11. átt, 12. öngla, 14. rót, 16. í röð, 17. nár, 18. sauðaþari, 20. drykkur, 21. fiska. LÓÐRÉTT 1. steintegund, 3. númer, 4. sprengi- efni, 5. maka, 7. forskot, 10. yfirgaf, 13. óvild, 15. klettur, 16. kæla, 19. tveir eins. LAUSN LÁRÉTT: 2. anda, 6. af, 8. rýt, 9. lof, 11. na, 12. króka, 14. grams, 16. íj, 17. lík, 18. söl, 20. te, 21. afla. LÓÐRÉTT: 1. talk, 3. nr, 4. dýnamít, 5. ata, 7. forgjöf, 10. fór, 13. kal, 15. sker, 16. ísa, 19. ll. Mjög fyndið! Mér er bara annt um velferð kúnnanna minna! Notist ef Jói hefur verið á klósettinu Vá! Þetta er málið, Palli! Góði strákurinn Hektor er úr sögunni! Vondi strákurinn Hektor er mættur! Hvern hefurðu verið vondur við? Bara þessar ermar, en ég er að vinna í þessu. Ég held að Kata sé í upphækkunum og hún er ekki að gabba neinn. Hérna er þetta... Flestir sem smitast af salmonellu fá niðurgang, hita og magakrampa fjórum til sex tímum eftir smitun. Veikindin endast vanalega í fjóra til sjö daga og flestir jafna sig án læknismeðferðar. JAFNA SIG?? Ég er mamma! Ég hef ekki tíma til að jafna mig!! Þetta er ekki svo slæmt. Einu sinni sat lærimeistari með nema-hóp hjá sér og spurði: „Á hvaða augna- bliki endar nóttin og dagurinn byrjar?“ Einn neminn svaraði: „Það er þegar nógu bjart er til að hægt sé að greina milli hunds og kindar.“ Annar sagði: „Það er þegar nógu bjart er til að greina milli ólífutrés og fíkjutrés.“ En meistarinn sagði: „Þetta eru góð svör en þó ekki þau réttu. Svarið er: Þegar ókunnur maður kemur og við höldum að hann sé bróðir okkar og allar deilur hætta, þá er nákvæmlega stundin þegar nóttin endar og dagur byrjar.“ ÞESSA daga eru börn drepin – venjulegt fólk – í Sýrlandi, á Gasasvæðinu og fólk í suðurhluta Ísraels býr við flugskeyta árásir. Glæpir eru framdir og fólk er tekið af lífi án dóms og laga. Þetta eru ill verk myrkravera. Hvenær dagar? SHIMON Peres, nú forseti Ísraels, kom skyndilega til Íslands árið 1993 í leyniferð um Norðurlönd. Til gangurinn var ný friðar áætlun fyrir stríðandi þjóðir fyrir botni Mið- jarðarhafs. Perez hafði áhrif á alla sem hann hittu og það var merkilegt að bera saman með honum sögu Íslendinga og Ísraela. Báðar voru flóttaþjóðir á leið til fyrirheitna landsins, báðar gerðu þá hetjulegu tilraun að byggja land með lögum. Hvað gerir fólk mennskt, skapar þjóð og elur frið? Leyniförin bar ríkulegan árangur. Óslóar- samningurinn var undirritaður skömmu síðar og Bill Clinton skrifaði upp á til tryggingar. NOKKRUM árum eftir Íslands komuna sagði Shimon Perez – á leiðtogafundi í Davos – viskusöguna um mun dags og nætur. Þetta er saga úr gyðinglegri speki- hefð. Nótt lýkur og dagur hefst þegar við sjáum ókunnan mann verða að systur eða bróður og deilur hætta. Það er hægt að nota allar stundir sólarhringsins til að gera fólk að óvinum. En þá fyrst dagar þegar fólk sér hvert í öðru manneskjur en ekki hugsanlega óvini. Stríðsmenn munu alltaf finna sér tilefni til að deyða og eyða. En þá fyrst verður afturelding þegar þau sem eru öðruvísi en ég og við geta orðið að grönnum og jafnvel vinum. SPEKI Ísraels dæmir hernað þessara daga. Shimon Perez þarf að segja þjóð sinni söguna um dagrenningu. Abbas þarf að segja söguna einnig. Sýrlenska þjóðin þarfnast dagrenningar. Og Ísraelar ættu að gefa nágrönnum færi á að koma sem systur friðar og bræður dagsins. Mann- fólk – ljóssins börn – systkin? Leyniför ljóssins – og hvenær dagar? Hvenær byrjar dagurinn? Sprengi- sandur Sigurjón M. Egilsson Sunnudagsmorgna kl. 10 – 12
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.