Fréttablaðið - 26.11.2012, Side 52
26. nóvember 2012 MÁNUDAGUR| MENNING | 20MENNING
DANS ★★★ ★★
Á nýju sviði
Íslenski dansflokkurinn
NÝJA SVIÐ BORGARLEIKHÚSSINS
Fimmtudaginn 22. nóvember
frum sýndi Íslenski dansflokk-
urinn fjögur dansverk eftir sex
unga og upprennandi danshöf-
unda. Kærkomið tækifæri fyrir
þessa höfunda og áhugavert að
sjá en það má þó spyrja sig hvort
Íslenski dansflokkurinn, eini
atvinnudansflokkur landsins, eigi
að setja upp verk óþekktra dans-
höfunda og jafnvel dansnemenda.
Það er ekki yfir þessum einstak-
lingum að klaga heldur er gagn-
rýnisvert að ekki sé nægt fé veitt
til listgreinarinnar til þess að ÍD
geti boðið upp á danssýningar
allt árið þar sem atvinnudansar-
ar dansa verk eftir atvinnudans-
höfunda. Fyrsta verk kvöldsins,
Til eftir Frank Fannar Peder-
sen, var grípandi og fallegt, sér-
staklega fyrri hlutinn. Búningar
hefðu mátt vera meira afgerandi
og lýsingin skýrari. Innkoma
Ásgeirs í rólunni varð til dæmis
ekki eins áhrifamikil og efni stóðu
til vegna þess að hún var of dökk.
Frank sýnir með verkinu þroska í
danssmíðum sem er áhugavert hjá
ungum danslistamanni.
Næst kom … Og þá aldrei framar
eftir Steve Lorenz. Það verk var
ljúft en áhrifamikið með flæðandi
og fallegum hreyfingum. Það
voru mörg eftirtektarverð augna-
blik í verkinu, ekki síst upphafið
og endirinn, en í meginkaflanum
hefði mátt skerpa áherslur. Lýs-
inguna skorti aftur styrk og skýr-
leika til að hún næði að styðja
hreyfingarnar og stemminguna.
Steve hefur sýnt að hann er mjög
efnilegur danshöfundur.
Síðasta verkið fyrir hlé var
Allegro con brio eftir Karl Frið-
rik Hjaltason. Það var skondið
verk og mjög áhorfendavænt enda
hafði það persónur og leikræna
tjáningu, leikmynd, búninga og
húmor. Flott byrjandaverk.
Ótta eftir þau Ásgeir Helga
Magnússon, Hjördísi Lilju Örn-
ólfsdóttur og Unni Elísabetu
Gunnarsdóttur var síðasta verkið
á boðstólum. Danssköpunin var
mjög flott en það voru hnökrar
í notkun rýmis í tengslum við
lýsingu og tónlistarval. Verkið
fjallar um andvökuna og gaf
tóninn strax í upphafi þar sem
einn dansari „bylti“ sér undir
dúndrandi tónlist úr næstu íbúð.
Í verkinu er síðan skyggnst inn í
heim fleiri sem ná ekki að hverfa
á náðir svefnsins þar til í lokin
að allt fellur í ró. Þó framvinda
verksins væri skemmtileg hefði
mátt halda fastar í stemmingu,
söguna sem lagt var upp með í
upphafi. Þetta var þarna einhvers
staðar en ekki nægilega skýrt.
Veröldin sem dansinn fór fram
í var byggð upp á ljósferningum
á gólfinu. Ferningarnir virkuðu
eins og gluggar sem sýndu mis-
munandi heima og komu mjög
vel út, sérstaklega í upphafi
verksins. Þegar líða tók að lokum
urðu tengslin á milli dansins og
lýsingarinnar óskýrari sem gerði
erfiðara fyrir áhorfandann að sjá
hreyfingar dansaranna. Musku-
legir búningarnir hjálpuðu þar
ekki til.
Sýningin Íslenska dansflokksins
var í raun ágætis sýning þó að hún
væri ekki hnökralaus. Dansinn
var í fyrirrúmi og dansararnir
sýndu hvers þeir eru megnugir,
sérstaklega þeir reyndari. Um-
gjörð sýningarinnar var ágalli
hennar og gerði hana litlausari en
efni stóðu til.
Sesselja G. Magnúsdóttir
NIÐURSTAÐA: Ágæt sýning en ekki án
hnökra, þar sem umgjörðin spillti helst
fyrir.
Dansað í rökkrinu
ÚR SÝNINGU ÍD Gagnrýnandi segir kærkomið að sjá verk eftir upprennandi
höfunda en veltir því fyrir sér hvort eini atvinnudansflokkur landsins eigi að setja
upp verk óþekktra höfunda.
Eyrarrósin, viðurkenning fyrir fram-
úrskarandi menningarverkefni, verður
veitt í níunda sinn í febrúar árið 2013
og hefur verið opnað fyrir umsóknir um
hana. Það eru Byggðastofnun, Flugfélag
Íslands og Listahátíð í Reykjavík sem
standa að Eyrarrósinni og nýlega skrif-
uðu forsvarsmenn þeirra undir áfram-
haldandi samstarfssamning til fjögurra
ára. Einnig hækkuðu þeir verðlaunaféð
í 1.650.000.
Nú má sækja um Eyrarrósina
Handhafi verðlaunanna hlýtur 1.650.000 og fl ugferðir með Flugfélagi Íslands.
VIÐ UNDIRRITUN Aðalsteinn Þorsteinsson, Hanna Styrmisdóttir og Árni
Gunnarsson.
Danssköpunin var
mjög flott en það voru
hnökrar í notkun rýmis í
tengslum við lýsingu og
tónlistarval.