Fréttablaðið - 26.11.2012, Page 52

Fréttablaðið - 26.11.2012, Page 52
26. nóvember 2012 MÁNUDAGUR| MENNING | 20MENNING DANS ★★★ ★★ Á nýju sviði Íslenski dansflokkurinn NÝJA SVIÐ BORGARLEIKHÚSSINS Fimmtudaginn 22. nóvember frum sýndi Íslenski dansflokk- urinn fjögur dansverk eftir sex unga og upprennandi danshöf- unda. Kærkomið tækifæri fyrir þessa höfunda og áhugavert að sjá en það má þó spyrja sig hvort Íslenski dansflokkurinn, eini atvinnudansflokkur landsins, eigi að setja upp verk óþekktra dans- höfunda og jafnvel dansnemenda. Það er ekki yfir þessum einstak- lingum að klaga heldur er gagn- rýnisvert að ekki sé nægt fé veitt til listgreinarinnar til þess að ÍD geti boðið upp á danssýningar allt árið þar sem atvinnudansar- ar dansa verk eftir atvinnudans- höfunda. Fyrsta verk kvöldsins, Til eftir Frank Fannar Peder- sen, var grípandi og fallegt, sér- staklega fyrri hlutinn. Búningar hefðu mátt vera meira afgerandi og lýsingin skýrari. Innkoma Ásgeirs í rólunni varð til dæmis ekki eins áhrifamikil og efni stóðu til vegna þess að hún var of dökk. Frank sýnir með verkinu þroska í danssmíðum sem er áhugavert hjá ungum danslistamanni. Næst kom … Og þá aldrei framar eftir Steve Lorenz. Það verk var ljúft en áhrifamikið með flæðandi og fallegum hreyfingum. Það voru mörg eftirtektarverð augna- blik í verkinu, ekki síst upphafið og endirinn, en í meginkaflanum hefði mátt skerpa áherslur. Lýs- inguna skorti aftur styrk og skýr- leika til að hún næði að styðja hreyfingarnar og stemminguna. Steve hefur sýnt að hann er mjög efnilegur danshöfundur. Síðasta verkið fyrir hlé var Allegro con brio eftir Karl Frið- rik Hjaltason. Það var skondið verk og mjög áhorfendavænt enda hafði það persónur og leikræna tjáningu, leikmynd, búninga og húmor. Flott byrjandaverk. Ótta eftir þau Ásgeir Helga Magnússon, Hjördísi Lilju Örn- ólfsdóttur og Unni Elísabetu Gunnarsdóttur var síðasta verkið á boðstólum. Danssköpunin var mjög flott en það voru hnökrar í notkun rýmis í tengslum við lýsingu og tónlistarval. Verkið fjallar um andvökuna og gaf tóninn strax í upphafi þar sem einn dansari „bylti“ sér undir dúndrandi tónlist úr næstu íbúð. Í verkinu er síðan skyggnst inn í heim fleiri sem ná ekki að hverfa á náðir svefnsins þar til í lokin að allt fellur í ró. Þó framvinda verksins væri skemmtileg hefði mátt halda fastar í stemmingu, söguna sem lagt var upp með í upphafi. Þetta var þarna einhvers staðar en ekki nægilega skýrt. Veröldin sem dansinn fór fram í var byggð upp á ljósferningum á gólfinu. Ferningarnir virkuðu eins og gluggar sem sýndu mis- munandi heima og komu mjög vel út, sérstaklega í upphafi verksins. Þegar líða tók að lokum urðu tengslin á milli dansins og lýsingarinnar óskýrari sem gerði erfiðara fyrir áhorfandann að sjá hreyfingar dansaranna. Musku- legir búningarnir hjálpuðu þar ekki til. Sýningin Íslenska dansflokksins var í raun ágætis sýning þó að hún væri ekki hnökralaus. Dansinn var í fyrirrúmi og dansararnir sýndu hvers þeir eru megnugir, sérstaklega þeir reyndari. Um- gjörð sýningarinnar var ágalli hennar og gerði hana litlausari en efni stóðu til. Sesselja G. Magnúsdóttir NIÐURSTAÐA: Ágæt sýning en ekki án hnökra, þar sem umgjörðin spillti helst fyrir. Dansað í rökkrinu ÚR SÝNINGU ÍD Gagnrýnandi segir kærkomið að sjá verk eftir upprennandi höfunda en veltir því fyrir sér hvort eini atvinnudansflokkur landsins eigi að setja upp verk óþekktra höfunda. Eyrarrósin, viðurkenning fyrir fram- úrskarandi menningarverkefni, verður veitt í níunda sinn í febrúar árið 2013 og hefur verið opnað fyrir umsóknir um hana. Það eru Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík sem standa að Eyrarrósinni og nýlega skrif- uðu forsvarsmenn þeirra undir áfram- haldandi samstarfssamning til fjögurra ára. Einnig hækkuðu þeir verðlaunaféð í 1.650.000. Nú má sækja um Eyrarrósina Handhafi verðlaunanna hlýtur 1.650.000 og fl ugferðir með Flugfélagi Íslands. VIÐ UNDIRRITUN Aðalsteinn Þorsteinsson, Hanna Styrmisdóttir og Árni Gunnarsson. Danssköpunin var mjög flott en það voru hnökrar í notkun rýmis í tengslum við lýsingu og tónlistarval.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.