Fréttablaðið - 26.11.2012, Síða 58
26. nóvember 2012 MÁNUDAGUR| SPORT | 26
Ö
ll
ve
rð
e
ru
b
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r o
g/
eð
a
m
yn
da
br
en
gl
.
Ö
l
fæst á www.kronan.is
GJAFAKORT
ALLTAF
ÓDÝR!
1498kr.pk.
Orlyfiskur, frosinn, 800 g
ve
rð
e
ru
b
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r o
g/
eð
a
m
yn
da
br
en
gl
.
l v
998kr.pk.
Þorskbitar, frosnir, 800 g
KÖRFUBOLTI Botnlið Dominos-
deildarinnar stóð óvænt uppi sem
sigurvegari þegar Lengjubikar-
úrslitin fóru fram í Stykkishólmi
um helgina. Tindastóll vann
fimm tán stiga sigur á heima-
mönnum í Snæfelli í úrslita-
leiknum á laugardaginn, 96-81,
en hafði kvöldið áður unnið
dramatískan eins stigs sigur á
Þór í undanúrslitunum.
„Ég var búinn að bíða í mörg
ár eftir því en það er ekki langt
í þann næsta. Við höldum áfram
og nú er leiðin bara upp á við,“
sagði Helgi Rafn Viggósson, fyr-
irliði Tindastóls, aðeins nokkrum
mínútum eftir að hann lyfti fyrsta
bikar Stólanna í þrettán ár.
„Það voru allir mættir í þennan
leik, hvort sem það voru áhorf-
endur, mennirnir á bekknum eða
þeir sem voru inni á vellinum,“
sagði Helgi Rafn en það var eink-
um frábær þriðji leikhluti sem
lagði grunninn að sigrinum.
„Þetta var jafn og flottur
leikur í byrjun en svo
missa þeir hausinn
í þriðja leikhlut-
anum og við
gengum á lagið,“
sagði Helg i
Rafn sem
fór fyrir
spretti Stólanna í þriðja leikhlut-
anum.
Maður leiksins var þó hinn 23
ára gamli Þröstur Leó Jóhanns-
son. „Ég vona að ég sé alltaf svona
en ég reyni allavega alltaf að vera
með þvílíkan kraft og
læti. Ég reyni að fagna
hverri körfu og halda
uppi stemningu. Það
hefur verið mitt
hlutverk í liðinu og
þetta tókst hjá mér í
dag,“ sagði
Þröstur Leó
en hann kom þá af bekknum með
27 stig á 25 mínútum.
„Ég vissi að það kæmi að þessu.
Við vorum komnir svo langt í
fyrra að við ætluðum að ná titli
núna. Við erum samt ekki hættir
og það eru tveir titlar eftir. Við
erum fullir sjálfstrausts eftir
þessa helgi,“ sagði Þröstur Leó en
nú þurfa Stólarnir að einbeita sér
að því að laga slæma stöðu í deild-
inni.
„Það er alveg á
tæru að það er hell-
ings vinna fram
undan þar,“ sagði
Þröstur að lokum.
Tindastóll er búinn að
tapa fyrstu sex leikjum
sínum í deildinni.
„Það vita það allir að
við eigum ekkert að vera í
botnsætinu í deildinni. Það
er bara undir okkur komið að
snúa þessu við,“ sagði Bárður
Eyþórsson, þjálfari liðsins,
en hann varð aðeins annar
þjálfarinn til að vinna Fyrir-
tækjabikarinn með tveimur
félögum (Snæfell 2004).
ooj@frettabladid.is
Við erum ekki hættir
Stólarnir ætla sér stóra hluti eft ir sigur í Lengjubikarnum í Hólminum um
helgina. Tindastóll er á botninum í deildinni en vann fyrsta titil sinn í þrettán ár.
SÁTTUR
FYRIRLIÐI
Helgi Rafn
Viggósson
með uppskeru
helgarinnar
hjá Tinda-
stólsmönnum.
TVÆR ÚTGÁFUR AF TINDA-
STÓLSLIÐINU Í VETUR
Sigurhlutfall
Dominos-deild: 0 prósent (0-6)
Lengjubikar: 88 prósent (7-1)
Stig í leik:
Dominos-deild: 77,2
Lengjubikar: 89,6
Stig fengin á sig í leik:
Dominos-deild: 86,5
Lengjubikar: 79,4
ÞRIÐJI LEIKHLUTINN
AFDRIFARÍKI
Tindastóll-Snæfell
Stig skoruð 28-14
Skotnýting 50%-31%
2ja stiga körfur 11-2
Fráköst 13-7
Tapaðir boltar 2-6