Fréttablaðið - 12.12.2012, Síða 18
12. desember 2012 MIÐVIKUDAGUR| SKOÐUN | 18
Í ljósi frétta undanfarna daga um
atvik og álag í heilbrigðisþjón-
ustunni, ekki síst á Landspítala,
viljum við deila með lesendum
vitneskju okkar um mögulega
áhrifaþætti atvika (mistaka og
nærmistaka) í heilbrigðis þjónustu.
Undanfarin ár höfum við í rann-
sóknum okkar skoðað vinnu og
vinnuumhverfi hjúkrunarfræð-
inga og sjúkraliða. Rannsóknar-
niðurstöðurnar hafa dregið skýrt
fram hversu margflókin sú þjón-
usta er sem veitt er við rúmbeð
sjúklings. Um leið og vinna hjúkr-
unarfræðinga og sjúkraliða krefst
nákvæmni og athygli felur hún í
sér álag sem er líkamlegt og ekki
síður félagslegt og andlegt. Eitt af
því sem einkennir vinnu þessara
fagstétta eru tíðar truflanir sem
tengjast samskiptum.
Ljóst er að þjónusta sjúklinga
verður æ flóknari eftir því sem
tækni og framförum í þjónustu
fleygir fram. Þessu fylgir flókið
samspil margs konar þjónustu og
samskipti þeirra fjölmörgu einstak-
linga sem koma að þjónustu sjúk-
linganna. Starf hjúkrunarfræðinga
og sjúkraliða er af þessum sökum
erilsamt og getur falið í sér trufl-
anir sem ógna öryggi þjónustunnar
sem innt er af hendi.
Fjöltefli
Rannsóknir okkar hafa til dæmis
sýnt að hjúkrunarfræðingar og
sjúkraliðar sem starfa á bráða-
legudeildum fara á hverri klukku-
stund að jafnaði í um 16 ferðir
innan deildarinnar vegna ýmissa
erinda þeirra á herbergi sjúklinga
eða annað og tengist umönnun
sjúklinga. Þessi fjöldi ferða endur-
speglar eril sem einkennir dagleg
störf á bráðalegudeildum á Land-
spítala í því húsnæði og við þær
aðstæður sem þjónustan býr við.
Sjúklingar sem þurfa á sjúkra-
húsþjónustu að halda hafa flóknar
þarfir sem kalla á flókna þjón-
ustu sem útheimtir einbeitingu
og alúð. Það eru ekki eingöngu
tíðar ferðir milli staða sem flækja
vinnu við bráðahjúkrun, heldur
einnig sú staðreynd að hver hjúkr-
unarfræðingur og sjúkraliði er að
sinna mörgum sjúklingum í senn
og vinna með mörgum aðilum.
Vinnu hjúkrunarfræðinga hefur
verið líkt við fjöltefli. Það sem
vantar þó inn í þessa samlíkingu
er að hjúkrun snýst um lifandi
einstaklinga í kviku umhverfi
þar sem ástand einstakra sjúk-
linga getur breyst snögglega og
ástand sjúklingahópsins einnig.
Ofan á þetta bætist síðan áreiti úr
umhverfinu sem er ýmist nauðsyn-
legt eða ekki.
Miðað við rannsóknarniður stöður
okkar er líklegt að hjúkrunarfræð-
ingar og sjúkraliðar eigi fullt í fangi
með að einbeita sér að störfum
sínum enda ein kennist vinna þeirra
einnig af tíðum óvæntum sam-
skiptum sem raska flæði þjónust-
unnar eða geta beinlínis truflað
þjónustuna. Í mörgum tilvikum er
um ítrekaðar og margþættar trufl-
anir og tafir að ræða. Dæmi um
þetta er að hjúkrunarfræðingur sem
er að taka til lyf er snögglega beðinn
um að koma til sjúklings þar sem
ástand hans hefur breyst skyndi-
lega og á leiðinni til þess sjúklings
er hjúkrunarfræð ingurinn stöðv-
aður af samstarfsmanni sem gefur
honum upplýsingar um eða óskar
eftir sérstakri ráðgjöf vegna ann-
ars sjúklings. Truflanir af þessum
toga raska verulega flæði verkefna
og auka hættu á að eitthvað fari
úrskeiðis.
Truflanir
Lyfjagjafir hjúkrunarfræðinga
eru eitt af þeim verkefnum sem
krefjast mikillar einbeitingar og
hjúkrunarfræðingar verja um
17% af vinnutíma sínum til slíkra
verkefna. Í niðurstöðum okkar
kom í ljós að lyfjavinna hjúkrunar-
fræðinga er rofin að meðaltali 11
sinnum á hverri vakt. Truflanir af
þessum toga geta ógnað nákvæmni
vinnubragða og þar með öryggi
þjónustunnar. Rannsóknir erlendis
hafa sýnt að truflanir við lyfja-
gjafir geta aukið líkur á mistökum
um allt að 12%.
Þegar hjúkrunarfræðingur
er truflaður við lyfjagjöf reynir
fyrst og fremst á þekkingu og ein-
beitingu hjúkrunarfræðingsins og
færni hans í að greina og forgangs-
raða verkefnum, auk hinnar verk-
legu og tæknilegu færni. Öruggt
samspil allra þessara þátta er afar
mikilvægt í hjúkrun og allri heil-
brigðisþjónustu. Í rannsóknum
okkar koma fram mýmörg dæmi
sem lýsa afar flóknum að stæðum
og flóknum ferlum á bráðalegu-
deildum þar sem frávik geta
varðað gæði þjónustunnar sem og
öryggi sjúklinga og starfsfólks.
Niðurstöður rannsókna okkar
hafa staðfest að styrkja þarf enn
frekar fagmennsku í heilbrigðis-
þjónustunni, þannig að þekking
og færni starfsmanna njóti sín
og nýtist sem best fyrir velferð
sjúklinganna. Vinna á bráðalegu-
deildum er einnig háð mörgum
þáttum í starfsumhverfinu svo
sem upplýsingaflæði, húsnæði og
annarri aðstöðu auk verklags og
menningu. Meðal þessara þátta
er margt sem starfsfólk hefur lítil
eða engin bein áhrif á.
Í umbótavinnu er því algerlega
nauðsynlegt að skoða og greina
kerfið í heild sinni, allt frá starfs-
manninum og vinnu hans, hans
nánasta vinnuumhverfi, lög og
reglugerðir, og samstarf hinna
ólíku hluta kerfisins. Að draga
einn þátt út og einblína á hann
varðandi atvik í heilbrigðisþjón-
ustu er eins og að ganga upp að fíl
og lýsa eingöngu þeim hluta fílsins
sem blasir við beint fyrir framan
augu manns. Við skorum á koll-
ega okkar í heilbrigðis vísindum,
heilbrigðisstarfsmenn, stjórn-
endur og ráðamenn þjóðarinnar
að falla ekki í þá gryfju að velja
þröngt sjónarhorn og lýsa ein-
göngu þeim hluta kerfisins sem
blasir við hverju sinni. Mikilvægt
er að víkka sjónarhornið þannig að
umræðan varpi ljósi á velferðar-
kerfið í heild sinni. Brýnt er að
takast á við viðfangsefnin á heild-
rænan hátt, greina alla mögulega
áhrifaþætti atvika í heilbrigðis-
þjónustunni og vinna að úrbótum
á þeim grunni.
Mögulegir áhrifaþættir
atvika í heilbrigðisþjónustu
Ég er Íslendingur í út-
löndum þessa aðventu,
eins og oft áður. Í gegnum
netið fylgist maður þó með
dægurmálaumræðunni á
Íslandi og er áhugavert að
skoða hana utan frá. Eins
og undanfarnar aðventur
hefur rykið verið dustað
af umræðunni um kirkju-
ferðir skóla og sýnist
sitt hverjum. Um ræðan
snýst um trúfrelsi en þá
gleymist að slíkir siðir
snúast ekki um trúarsann-
færingu heldur um menningu.
Ég bý í fjölmenningarsamfélagi
þar sem ákveðnir trúarhópar eru
mjög áberandi bæði hvað hegðun
og klæðaburð varðar. Samfélagið
er upphaflega kaþólskt og heitir
önnur hver gata hér eftir dýr-
lingi. Maður er daglega minntur
á trúar- og menningarlegan bak-
grunn svæðisins og ólíkra hópa
sem hér búa. Þegar fólk ber trúar-
legan bakgrunn utan á sér eða
segist vera ákveðinnar trúar þá
er það sjaldnast til að játa pers-
ónulega trú.
Þetta var ég ekki búin að læra
fyrir 18 árum síðan. Ég var í tón-
listardeild með fólki sem kom víða
að. Þar sem ég var nýbúi misskildi
ég ef fólk sagði mér í óspurðum
fréttum að þau væru gyðingar,
kaþólikkar eða mótmælendur. Ég
hélt fyrst að þau væru að opin-
bera trúarlega sannfæringu sína
og fannst það sérstakt en var fljót
að átta mig á að þarna vildi fólk
í stuttu máli gefa mér innsýn í
menningarlegan bakgrunn sinn.
Ég held til dæmis ekki að neinn
af vinum mínum í kórstjórn hafi
verið sérstaklega trúhneigður. En
tónlistarbakgrunn mátti skýra
með þeirri trúarbragðamenningu
sem hafði mótað okkur.
Ekki trúarofbeldi
Heima á Íslandi hefur trúar-
bragðamenning kristni mótað
samfélag og siði öldum saman.
Að skilgreina íslenskt samfélag
sem kristið er ekki trúarofbeldi.
Að afneita kristnum sið sem hluta
af íslenskri menningu er í besta
falli undarlegt. Öll okkar menning
er undir áhrifum frá kristni eins
og menn túlkuðu hana og skildu á
hverjum tíma. Við finnum kristin
minni í öllum þjóðararfi. Ef við
viðurkennum það ekki hvernig
getum við þá skilið okkur sjálf?
Nú á aðventu er mikið um tón-
leikahald þar sem trúarleg tónlist
er í hávegum höfð. Fyrir suma
hefur þessi tónlist merkingu sem
snertir þeirra persónulegu trú.
En margir taka þátt einungis tón-
listarinnar vegna og tengja ekki
trúarlega tónlist við persónulega
sannfæringu. Svo vill til að fullt
af þeirri tónlist sem við höfum
alist upp við og telst til stórvirkja
tónbókmenntanna er af trúar-
legum toga. Einstaklingar sem
hafa valið sér trúlausa afstöðu
í lífinu mæta samt í Kringluna
eða í kirkju og syngja hástöfum
Hallelúja! því tónlist Händels er
óviðjafnanleg og tilheyrir menn-
ingu okkar. Ég heyri engan velta
fyrir sér meintum áhrifum boð-
skaparins.
Hluti af heilbrigðri sjálfsmynd
Hverjum er frjálst að iðka sína
trú eða enga trú. Það er óumdeilt
í vestrænu samfélagi. En eins og
það að fullorðnast felst í að skilja
hvað mótaði mann í æsku þá er
það hluti af heilbrigðri sjálfs-
mynd þjóðar að horfast í augu við
hvað mótaði hana öldum saman.
Að þykjast ætla að dauðhreinsa
íslenskt menntakerfi af meintum
trúarlegum áhrifum kristni
með því að banna kirkjuferðir á
aðventu virkar frekar hjáróma í
jólaundirbúningnum. Kirkju ferðir
á vegum skóla hljóta að vera upp-
fræðandi fyrir hvern sem elst upp
í íslensku samfélagi. Frekar væri
ámælisvert ef íslensk börn hefðu
ekki tækifæri einu sinni á ári til
að skoða heimkynni gamallar
trúarhefðar sem lengi hefur mótað
okkar samfélag og siði.
Það er ekkert hættulegt að
heimsækja íslenska kirkju, sam-
kunduhús gyðinga eða mosku.
En maður lærir margt um eigin
trúarmenningu og annarra með
slíkum heimsóknum. Því öll erum
við sprottin úr einhverri trúar-
menningu. Við þurfum bara að
viðurkenna það.
Íslensk menning
á aðventu
HEILBRIGÐISMÁL
Helga
Bragadóttir
hjúkrunarfræðingur
Sigrún
Gunnarsdóttir
hjúkrunarfræðingur
➜ Sjúklingar sem þurfa á
sjúkrahúsþjónustu að halda
hafa fl óknar þarfi r sem kalla
á fl ókna þjónustu sem út-
heimtir einbeitingu og alúð.
Það eru ekki eingöngu tíðar
ferðir milli staða sem fl ækja
vinnu við bráðahjúkrun,
held ur einnig sú staðreynd
að hver hjúkrunarfræð-
ingur og sjúkraliði er að
sinna mörgum sjúklingum í
senn …
MENNING
Helga Rut
Guðmundsdóttir
lektor við HÍ í
rannsóknarleyfi
2012-2013
➜ Ég held til dæmis
ekki að neinn af
vinum mínum
í kórstjórn hafi
verið sérstaklega
trúhneigð ur. En tón-
listarbakgrunn mátti
skýra með þeirri
trúarbragðamenn-
ingu sem hafði mótað
okkur.
GLÆSILEG GJÖF FYLGIR
FRAMTÍÐARREIKNINGI
Við stofnun eða innlögn á Framtíðarreikning
barns að upphæð 5.000 kr. eða meira fylgir
Stóra Disney heimilisréttabókin með*.
Tilvalin jólagjöf sem vex með barninu.
Komdu við í næsta útibúi Arion banka.
Framtíðarreikningur — gjöf til framtíðar
*Á meðan birgðir endast©DISNEY