Fréttablaðið - 12.12.2012, Page 25

Fréttablaðið - 12.12.2012, Page 25
FRÁ TENERIFE TIL MAROKKÓ Margir Íslendingar dvelja um lengri tíma á Tenerife yfir vetrartímann. Ef fólk vill tilbreytingu þá er hægt að skreppa til Marrakech, Agadir eða Casablanca í Marokkó með flugfélaginu Binter Canarias. Kíkið á www.bintercanarias.com. Hrærari með sleikjuarmi hrærarinn passar á flestar hrærivélar. Hann er með mjúkum sleikjuarmi sem blandar hráefni betur. Það þarf ekki að skafa innan úr skálinni þar sem hrærarinn skefur innan úr henni um leið og hrært er. Þetta gefur auðveldari, betri og hraðari árangur. JÓLATILBOÐ Kr. 4.990 Vertu vinur Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.mistyskor.is Vandaðir þýskir herraskór úr leðri, skinn- fóðraðir. Stórar stærðir. Teg: 206202 23 Stærðir: 41 - 48 Verð: 16.975.- Teg: 206201 23 Stærðir: 40 - 47 Verð: 16.985.- Sími 551 2070 Opið mán.-fös. 10-18. Laugardag 10-14. www.tk.is Falleg gjöf fyrir allan aldur Afmælis- útskrifta- fæðingar- skírnar og jólagjöf Verð kr.10.995.- SWAROVSKI KRISTALSTJARNAN Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 Aðstæður á skíðasvæðinu í Bláfjöll-um hafa verið einstaklega góðar undanfarin ár. Ástæður þess eru ekki bara veðurfarslegar og margt sem kemur til. „Við höfum verið að reisa svo- kallaðar snjógirðingar sem safna saman snjó sem annars fyki bara burt. Hann er svo notaður til að troða í brekkurnar og munar ótrúlega miklu um þetta,“ segir Magnús Árnason, framkvæmdastjóri skíðasvæðisins. Mikil landgræðsla hefur átt sér stað undanfarin sumur á svæðinu sem bætir aðstæður enn frekar. „Hey sem til fellur við slátt í höfuðborginni hefur verið nýtt í brekkurnar. Þannig verður undirlagið mýkra og minna um grjót. Þá þarf minni snjó til að gera brekkurnar skíðafærar. Auk þess verður hér miklu fallegra um að litast á sumrin.“ Magnús hefur starfað sem fram- kvæmdastjóri skíðasvæðisins síðan 2007. „Ég var nú ekki ráðinn út af skíðakunnátt- unni, enda bara miðlungsskíðamaður. Ég kann hins vegar mjög vel við starfið sem er virkilega fjölbreytt og krefjandi. Suma daga er ég allan daginn á skrifstofunni en aðra er ég kominn út í kuldagalla að splæsa víra eða græja einhverja hluti. Það eru auðvitað forréttindi að fá að keyra í vinnuna upp í fjöll á hverjum degi og njóta þeirrar fegurðar sem hér er.“ Á skíðasvæðinu starfa fimm starfs- menn allt árið en á háannatímum eru þeir um 23. „Ef það er lokað þá er verið sinna viðhaldi sem ekki er hægt að sinna þegar lyftur eru í gangi og allt fullt af fólki.“ Um þessar mundir er unnið að upp- setningu á nýrri lyftu sem verður opnuð á næstu dögum. „Við erum að leggja lokahönd á 72 metra langt töfrateppi sem er nýjasta viðbótin í Bláfjöllum. Þetta er svona færiband og einkar hentugt fyrir byrjendur á öllum aldri og börn allt niður í tveggja ára. Í kringum töfrateppið munum við svo leggja áherslu á frekari uppbyggingu sérstaks fjölskyldusvæðis. Skíðaiðkun er nefni- lega mjög ódýr og fjölskylduvæn íþrótt. Hingað koma heilu fjölskyldurnar saman, þótt þær skíði ekkert endilega saman allan tímann þá hittast þær í skálanum og fá sér kakó og allir fara sælir og glaðir heim.“ FAGURT Í BLÁFJÖLLUM BÚIÐ AÐ OPNA Skíðasvæðið í Bláfjöllum var opnað í síðustu viku og eru að- stæður þar einstaklega góðar. Magnús Árnason framkvæmdastjóri segir for- réttindi að fá að keyra upp í fjöll á hverjum degi í vinnuna. TÖFRATEPPI FYRIR BÖRNIN Um þessar mundir er unnið að uppsetningu á svokölluðu töfrateppi sem er færiband sem flytur fólk upp brekk- urnar og er tilvalið fyrir byrjendur og börn allt niður í tveggja ára. MYND/GVA UPPLÝSINGAR Allar upplýsingar um opnun, rútu- ferðir og aðstæður hverju sinni má fá á www.skidasvaedi. is, í síma 5303000 og á Facebook-síðu undir Skíðasvæðin Bláfjöll/Skálafell. DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · Hljóðlát Stórt op > auðvelt að hlaða Sparneytin amerísk tæki. <Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerísk gæðavara Amerísk gæðavara

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.