Fréttablaðið - 12.12.2012, Side 29

Fréttablaðið - 12.12.2012, Side 29
Framkvæmdastjóraskipti. Jórunn Magnúsdóttir kveður eftir 16 ára starf í þágu Vímulausrar æsku. bls 1 og 4. Umsagnir foreldra bls. 2., 4, 5, 6 og 8 Eru framlög til forvarna í þágu barna og ungmenna viðunandi? bls. 2 V.E.R.A - Úrræði fyrir börn og unglinga með áhæt- tuhegðun og fj ölskyldur þeirra. bls. 5 Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir unglinga í vanda. bls. 5 Farsælt samstarf bls. 6 Styrkarmannakerfi Vímu- lausrar æsku bls. 8 Vermdarengill æskunnar bls. 8 Nýlega var efnt til samstarfs við Atvinnutorg Reykjavíkurborgar, sem er atvinnutengt úrræði fyrir unga atvinnuleitendur á aldrinum 16-25 ára, óháð rétti þeirra til atvinnuleysisbóta. Í samstarfi Foreldrahúss og Atvinnutorgs felst meðal annars að markhópnum er boðið upp á námskeið í sjálfseflingu. Þátttak- endur skoða og vinna með sig í hóp og takast á við þær aðstæður sem hver og einn glímir við. Þannig myndast tækifæri til að þiggja og veita stuðning, brjóta upp óæskilegt mynstur, finna nýjar leiðir og ekki síst, raunhæf og persónuleg markmið. Til að tengjast Atvinnutorginu hefur ungmenni samband við Vinnumálastofnun eða þjón- ustumiðstöð í sínu hverfi og fær þaðan tilvísun í ráðgjöf hjá Atvinnutorgi. Torgið sinnir sérstaklega því fólki sem er án bótaréttar en sinnir einnig þeim einstaklingum sem eru að missa bótarétt sinn hjá Vinnumálastofn- un eða þurfa frekari einstaklings- miðaðan stuðning við að koma sér út á vinnumarkaðinn. Síðastliðin tvö ár hefur Vel- ferðarsvið Reykjavíkurborgar unnið að sérstöku virkniverkefni með það að markmiði að hvetja atvinnuleitendur með fjárhagsaðstoð til virkni. Á því tímabili hefur komið í ljós að skortur er á tækifærum fyrir ungt fólk til að öðlast starfsreynslu á vinnumarkaði. Atvinnutorgi er ætlað að koma til móts við þennan hóp. Nánari upplýsingar um Atvinnutorg má finna á www. reykjavik.is/atvinnutorg. Samstarf Foreldrahúss og Atvinnutorgs Sálfræðingurinn Hrafndís Tekla Pétursdóttir tók við starfi framkvæmdastjóra Vímulausrar æsku af Jórunni fyrr á árinu. Framkvæmdastjóraskipti urðu hjá Vímulausri æsku – Foreldrahúsi fyrr á árinu. Hrafndís Tekla Pétursdóttir sálfræðingur tók við starfinu af Jórunni Magnúsdóttur sem kvaddi samtökin eftir tæplega 16 ára starf. Jórunn hóf fyrst afskipti af starf- semi Vímulausrar æsku árið 1996 en þá var hún í hópi öflugra for- eldra sem létu sig málefni ung- menna varða og vímuvarnarstarf. „Það tók sig saman hópur for- eldra sem áttu börn sem höfðu leiðst út í vímuefnaneyslu, áfengi og/eða önnur vímuefni. Flestir foreldrarnir áttu börn í meðferð á Tindum sem þá voru og hétu og við foreldrarnir kynntumst í eftirmeð- ferðarstarfinu og fórum að bera saman bækur okkar. Þegar svo kom upp sú tillaga að loka Tind- um þá mynduðum við Foreldra- hóp til að þrýsta á um endurskoð- Grasrótarstarfið er gulls ígildi framhald á síðu 4

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.