Fréttablaðið - 12.12.2012, Síða 37
| FÓLK | 5HEIMILI
Þetta er nokkuð sem margir vita ekki af og halda að ISS sé bara ræstingafyrirtæki,“
segir Ívar Harðarson, sviðsstjóri
fasteignaumsjónar, en ISS hjálpar
fyrirtækjum að losna við áreiti
og umstang sem fylgir því að
reka fasteign og að halda henni í
ásættanlegu ásigkomulagi.
Hugmyndin á bak við þessa
þjónustu er meðal annars sú að
stjórnendur og eigendur geti
betur einbeitt sér að sinni kjarna-
starfsemi. „Segjum að þú eigir
Kringluna eða einhverja aðra
húseign. Þá gætum við hjá ISS
séð um alla fjármála stjórnun, fjár-
stýringu, greiðslur og innborgun
fyrir húsið, allt bókhald fyrir hús-
eignina, innheimtu á leigugjöld-
um og aðra fjármálastjórnun.
Sjálfur getur þú svo bara verið í
golfi á meðan við sjáum um fjár-
hagsáætlanir, rekstraráætlun og
samskipti við endurskoðendur,“
segir Ívar og telur upp lítið eitt
af þeirri þjónustu sem ISS býður
upp á. Hann útskýrir að ekkert sé
ISS óviðkomandi í fasteignaum-
sýslunni, allt frá því að laga hurð
til þess að jafna ágreining við
leigjendur og nágranna, og að sjá
um að halda lóð umhverfis hús
snyrtilegri sem og bílastæðum.
ISS sér ekki aðeins um veraldleg-
ar eignir fyrirtækja heldur býður
fyrirtækið líka upp á stoðþjón-
ustu. Í henni felst meðal annars
símavarsla, móttaka, ljósritun,
póstumsjón og umsjón fundar-
herbergja.
Svo má ekki gleyma veitingasvið-
inu: „Hvort sem þú þarft að láta
sjá um mötuneyti starfsmanna,
kaffistofuna eða umsjón með
fundum og öðrum viðburðum
þá búum við til lausn sem er
sérsniðin. Við seljum núna yfir
2.000 matarskammta á dag sem
er ekkert smotterí,“ segir Ívar
en maturinn er keyrður út þó að
einnig sé hægt að fá kokk til að
elda á staðnum ef aðstæður eru
fyrir hendi.
ISS býður líka upp á lausnir
varðandi móttökur, fundi, boð
og veislur þar sem fagfólk á
snærum ISS annast umsjón og
framkvæmd. „Svo geta fyrirtæki
valið þessa þjónustuþætti, hvað
viltu að við tökum að okkur?“
segir Ívar. Hann minnist svo á að
ISS Ísland hafi náð þeim árangri
að vera fyrirmyndarfyrirtæki VR
árið 2011.
„Það er í sjötta skipti sem fyrir-
tækinu hlotnast sá heiður. Fyrir-
myndarfyrirtækið er valið eftir
ánægju starfsmanna. Það sem
starfsmenn okkar gera í stuttu
máli er að sjá um eignir frá A
til Ö, alveg sama hvort það er
á fasteignasviði, veitingasviði,
ræstingasviði eða í stoðþjónust-
unni eða skrifstofuaðstoðinni,“
segir Ívar.
BÝÐUR UPP Á RÆSTINGU
OG FASTEIGNAUMSJÓN
ISS ÍSLAND KYNNIR ISS Ísland er stærsta eignaumsýslufyrirtæki í heimi með um 530.000 starfsmenn
í 52 löndum, þar af 800 á Íslandi. Fyrirtækið hefur verið valið Fyrirmyndarfyrirtæki VR.
■ HRÓS Ein af ástæðum þess
að ISS Ísland kemur vel út úr
mælingum VR á ánægju starfs-
manna er sú að fyrirtækið gerir
sér grein fyrir því að hrós er
mikilvægt. Reglulega er gerð
könnun á meðal viðskipta-
vina ISS og í leiðinni er at-
hugað hvað þeir eru ánægðir
með. Þegar við á er hrósinu
komið til skila. En þetta segir
á heimasíðu ISS: „Okkur Ís-
lendingunum er ekki gjarnt að
hrósa og við eigum oft erfitt
með að taka við hrósi. Í hrósi
er hins vegar fólgin viðurkenn-
ing á að vel sé gert og í því felst
lærdómsferli.“
ISS ER FYRIR-
MYNDARFYR-
IRTÆKI VR
■ MATUR Eitt af því sem ISS
býður upp á er hollur og góður
hádegismatur til fyrirtækja.
Boðið er upp á tvo rétti þrjá
daga í viku til að allir fái eitt-
hvað við sitt hæfi. Lögð er
áhersla á hollt og gott hráefni
en hollur og góður matur er
mikilvægur þáttur í að tryggja
ánægju, heilbrigði og aukin
afköst starfsfólks.
HÁDEGIÐ ER
HÁPUNKTUR
DAGSINS HJÁ
ISS
ISS
Fyrirtækið er með víðtæka þjónustu
hér á landi með um 800 starfsmenn.