Fréttablaðið - 12.12.2012, Side 42
12. desember 2012 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 26
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. á eftir, 6. samanburðart., 8. lífs-
hlaup, 9. pumpun, 11. öfug röð, 12.
stoðgrind, 14. fáni, 16. sjó, 17. knæpa,
18. geislahjúpur, 20. frá, 21. blað.
LÓÐRÉTT
1. sæti, 3. tveir eins, 4. svelgja, 5.
málmur, 7. nýta, 10. hlaup, 13. rúm
ábreiða, 15. hæfileiki, 16. andi, 19.
tvíhljóði.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. næst, 6. en, 8. ævi, 9. sog,
11. on, 12. stell, 14. flagg, 16. sæ, 17.
krá, 18. ára, 20. af, 21. lauf.
LÓÐRÉTT: 1. sess, 3. ææ, 4. svolgra,
5. tin, 7. notfæra, 10. gel, 13. lak, 15.
gáfa, 16. sál, 19. au.
Nei, vá! Þetta
lítur mjög vel út!
Rauðvín og kósí
bara!
Hið
besta
mál!
Það er eitt sem þú verður að
skilja fröken! Við Húgó erum lið!
Blóðbræður! Við yfirgefum hvor
annan ekki á vettvangi! Við erum
jafn fastir saman og lærin á
móður Theresu!
Svo þess vegna hafið
þið líkegast ekkert
á móti því að ég næli
mér í stól og ...
... setjist við
barinn!
Þetta er ástæðan fyrir
því að ég kvíði fyrir raf-
segulfræði-tímunum.
HAHA! Má ég
prófa!
Þegar ég bið þig um að
taka til í herberginu þá
þýðir það ekki að raða
bara steinunum upp á
nýtt.
Hannes!
Hvar ertu?
Hérna uppi
í gula turn-
inum!
Hvernig
komstu
þarna upp?
Það er
auðvelt.
Skríddu bara í gegnum græna rörið
að reipisbrúnni, klifraðu svo upp
appelsínugulu rennibrautina þar til
þú kemur að stóra gula hliðinu!
Af hverju
þarf þetta
að vera
svona ansi
stórt??
Passaðu þig!
Það búa rónar
í boltalandinu!
Ég skelli í mig lýsinu og gretti mig. Gleypi fjölvítamín og sýp á soðnu
vatni sem ég hef látið standa með sítrón-
um, engifer og chili út í. Bæti svo nokkr-
um C-vítamín töflum við kokteilinn og sól-
hatti og sting hvítlauksrifi undir tunguna.
Ég er ekki lasin, ég er stálslegin. En allur
er varinn góður.
ALLT er þegar þrennt er segir
máltækið. Ég heyrði þessu
fleygt í framhjáhlaupi ein-
hvers staðar um daginn og án
þess að vera hjátrúarfull, svona
yfirleitt, þá fékk ég hroll niður
bakið. Lófarnir urðu þvalir og
svitinn spratt fram. Hvað ef
þetta yrði þriðja árið í
röð? Ég mátti ekki til
þess hugsa.
Á ÞORLÁKS-
MESSUKVÖLD
árið 2010 helltist
nefnilega yfir mig
pest af verstu sort,
þeirri sort sem á ekki
við á jólum. Ég var
ekki mönnum sinnandi
og snerist öll á rönguna
við ilminn úr eldhúsinu.
Hafði aldrei lent í öðru
eins og fannst sem bein-
in molnuðu innan í mér
af verkjum. Ég missti
af jólunum það árið. Náði áramótunum
með herkjum, úrvinda, guggin og grá.
VONT var það meðan á því stóð en við
hlógum að þessu seinna. Grínuðumst
meira að segja með þetta á Þorláksmessu
í fyrra, jahérna, það yrði nú saga til næsta
bæjar ef ég missti af tvennum jólum í röð.
Ný jólahefð á heimilinu!
ÞORLÁKSMESSA leið í friði og spekt en
á aðfangadag gerðust hlutirnir hratt. Pest-
in kom og kom með offorsi. Hún lagði mig
kylliflata fyrir klukkan sex. Nákvæm-
lega sama pestin, versta sort. Ilmandi
jólasteikin kólnaði á borðum meðan ég
engdist og klingjandi jólaklukkurnar ætl-
uðu að kljúfa á mér höfuðið. Í þetta skiptið
féllu fleiri á heimilinu í kjölfarið svo allir
hátíðisdagarnir fóru fyrir lítið. Aftur.
VIÐ reyndum auðvitað að hlæja að þessu
þegar frá leið og nú reyni ég að sann-
færa sjálfa mig um að ólíklegt sé að pest-
in banki á dyr þriðju jólin í röð. En mér
stendur ekki á sama. Allt er þegar þrennt
er segja þeir, er það ekki? Ég fer því var-
lega. Tek enga áhættu. Reyni að ofbjóða
ekki magasýrunum með mandarínuáti
og maltöli og fer ekki út úr húsi nema í
föður landinu.
Í KVÖLD bæti ég fennel út í kokkteilinn
minn. Það er víst svo róandi fyrir mag-
ann.
og pestin kom
Góa og Fjarðarkaup
kynna með stolti
www.jolagestir.is
Síðustu
forvöð að
tryggja sé
r
miða
Miðasala á Miði.is
og í síma 540 9800
15. desember
í Höllinni