Fréttablaðið - 12.12.2012, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 12.12.2012, Blaðsíða 62
12. desember 2012 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 46 Tvær franskar þungarokkssveitir, Ĺ esprit du clan og Hangman´s Chair, taka þátt í þungarokkshátíð- inni Fjandinn sem verður haldin hér á landi um helgina. Fyrrnefnda sveitin kom síðast hingað til lands fyrir tveimur árum. Einnig stíga Angist, Dimma, Momentum og fleiri íslenskar sveitir á svið á hátíðinni. Fjandinn er hluti af stærri alþjóðlegri hátíð sem ferðast á milli landa. Rokkarinn Kalchat hefur skipulagt hana síðan 2007. Hann vinnur hjá bók- unarskrifstofunni Rage Tour sem sér um að bóka tónleika með þekktum sveitum á borð við Napalm Death, Biohazard og Sepultura bæði í Frakklandi og víðar um Evrópu. Núna verður hátíðin haldin á Íslandi og stendur hún yfir í tvo daga. Fyrri dagurinn verður á föstu- dagskvöld á Gauki á Stöng í Reykjavík, og sá seinni á Græna hattinum á Akureyri á laugardagskvöld. Tugir manna úr vinahópi Kalchat ætla að ferðast til Íslands á hátíðina. Miðaverð er 1.500 krónur í Reykjavík en 2.000 krónur á Akureyri og er átján ára aldurstakmark. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni Kice.cc. Franskir rokkarar á Fjandanum Tvær franskar þungarokkssveitir spila á hátíðinni Fjandinn um helgina. TIL ÍSLANDS Frönsku þungarokkararnir í L´esprit du clan eru á leiðinni til Íslands. „Þetta byrjaði vel en svo fór allt í steik,“ segir útvarpsmaðurinn og kontrabassaleikarinn Smutty Smiff, en grúppían Cynthia Albritton reyndi að gera afsteypu af getnaðarlim hans árið 1980. Albritton, sem er betur þekkt sem Cynthia Plaster Caster, gerði garðinn frægan á 7. og 8. áratug síðustu aldar með gifs- afsteypum sínum af æxlunar- færum frægra tónlistarmanna. Hennar frægasti skúlptúr er án efa af veldissprota gítargoðsins Jimi Hendrix. „Við vorum bæði blindfull og gifsblandan var eitthvað mis- heppnuð. Ég fékk því aldrei að vera meðal sýningargripa,“ segir Smutty, sem hefur verið búsettur hér á landi síðustu fimm ár og á íslenska eiginkonu. Nafn Smuttys má engu að síður finna á vefsíðu Albritton, en þar hefur hún skrásett allar þær afsteypur sem hún hefur gert. Á lista Albritton, sem bauð sig fram til borgarstjóra Chicago árið 2010, kennir ýmissa grasa. Má þar nefna nöfn á borð við fyrrnefndan Hendrix, Jello Biafra úr pönksveitinni Dead Kennedys, Eric Burdon úr The Animals, og söngkonurnar Peaches og Karen O. „Ég spilaði reglulega í Chicago með hljómsveitinni minni, The Rockats, og hún kom að sjá okkur. Okkur varð vel til vina og hún stakk upp á því að við gerð- um þetta,“ segir Smutty, en hann hugsaði sig ekki tvisvar um. „Til- hugsunin um afsteypur okkar Hendrix, hlið við hlið, var nóg til þess að ég lét slag standa.“ Spurður um hvað eiginkonunni finnist um þetta uppátæki segist Smutty reyndar aldrei hafa sagt henni frá þessu. „Ég var tvítug- ur og ógiftur. Hún á bara eftir að hlæja að mér.“ haukur@frettabladid.is Blindfullur og gifs- blandan misheppnuð Rokkabillíkóngurinn Smutty Smiff , útvarpsmaður á X-inu, leyfði goðsagnakenndu grúppíunni Cynthiu Plaster Caster að taka gifsafsteypu af getnaðarlim sínum. ALLT Í STEIK Gifsafsteypan sem Cynthia Plaster Caster tók af Smutty Smiff var algjört klúður. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Gifsdrottningin hefur vakið athygli fjölmargra tónlistarmanna, og í nokkrum tilfellum ortu þeir til hennar í söngtextum sínum. Frægasta dæmið um það er lagið Plaster Caster, þar sem öskudagsbúnir meðlimir Kiss sungu af innlifun um listsköpun hennar. Þá greinir breski hjartaknúsarinn Rod Stewart frá því í ævisögu sinni að hann hafi hafnað boði Albritton um að taka af honum afsteypu. Stewart, ásamt Ron Wood, sem seinna varð gítarleikari The Rolling Stones, fékk að líta á sýningargripina áður en hrært var í gifsinu. Þegar þeir félagar ráku augun í vel útilátið sýnishornið af Jimi Hendrix, hættu þeir snarlega við, og höfðu orð á því að hvor- ugur þeirra myndi njóta góðs af samanburðinum. Rod Stewart guggnaði og Kiss samdi lag „Þetta tókst eins og í einhverjum draumi í lokin. Það gekk allt upp,“ segir Pétur Ben um fjármögnun plötunnar sinnar God´s Lonely Man. Þegar upptökum var lokið óskaði Pétur, sem gaf út plötuna sjálfur, eftir styrkjum vegna framleiðsl- unnar á söfnunarsíðunni Alpha. karolinafund.com, eins og Frétta- blaðið greindi frá. Markmiðið var að safna hálfri milljón króna og það tókst innan þess tímaramma sem gefinn var upp. „Um einum og hálfum sólarhring áður en söfnun- in kláraðist var ég bara hálfnað- ur en þá fór allt í gang. Bæði vinir og vandamenn og fólk sem held- ur með manni „póstaði“ þessu og deildi,“ segir hann. „Það er gaman fyrir listamenn að sjá að það er hægt að framkvæma þetta í krafti fjöldans í gegnum netið.“ Pétur bauð þeim sem vildu borga mest, eða 80 þúsund krónur, einka- tónleika á Skype fyrir aðstoðina en enginn lagði í þá upphæð. „Þetta var sennilega bara fyrir olíufursta í Mið-Austurlöndum,“ segir hann og hlær. Pétur segist hafa lagt rosalegan tíma í plötuna, sem átti alltaf að vera „þyngri“ en sú síðasta sem fékk Íslensku tónlistarverðlaunin 2007. „Ég vandaði mig við að reyna að halda út þessari tilfinningu sem er á plötunni,“ segir hann. Og hvert var þá þemað? „Guð, dauðinn og einmanaleiki.“ Næstu tónleikar Péturs Ben verða á Ellefunni á föstudaginn og er ókeypis inn. - fb Safnaði hálfri milljón króna á netinu Pétur Ben syngur um Guð, dauðann og einmanaleika á nýjustu plötu sinni God´s Lonely Man. SAFNAÐI Á NETINU Pétur Ben hefur gefið út plötuna God´s Lonely Man. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Ég er að lesa teiknimyndasöguna Crossed: Wish You Were Here, en hún fjallar um uppvakningafar- aldur, þar sem uppvakningarnir eru morðingjar, nauðgarar, náriðlar og allt það hryllilegasta sem maður getur hugsað sér. Crossed-sögurnar eru ógeðslegustu myndasögur sem ég hef lesið og ég er „húkkd“.“ Hugleikur Dagsson listamaður BÓKIN Fissler pottar, pönnur og önnur búsáhöld í miklu úrvali. Einnig vandaðir hraðsuðupottar sem gera matseldina hraðari og hollari. Þýsk hágæðavara. Fissler hefur framleitt hágæða potta og pönnur í Þýskalandi í 167 ár. ÚTSÖLUSTAÐIR: ht.is SUÐURLANDSBRAUT 26 - REYKJAVÍK - SÍMI 569 1500 Umboðsmenn um land allt LAUGAVEGI 178. Sími: 568 9955.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.