Fréttablaðið - 24.12.2012, Qupperneq 9
MÁNUDAGUR 24. desember 2012 | SKOÐUN | 9
Aðfangadagur jóla er í dag. Dagur-
inn sem yngsta kynslóðin hefur
beðið eftir með eftirvæntingu.
Dagur sem einhverjir hafa kviðið.
Aðstæður fólks eru misjafnar.
Sumir tilheyra stórum fjölskyldum,
samheldnum fjölskyldum, aðrir
ekki. Einsemdin verður aldrei
meiri en á þessum degi ef hún er til
staðar á annað borð. Sorgin nístir
sárar og söknuðurinn verður meiri
en aðra daga ef þannig stendur á.
Þetta er dagur tilfinninga. Ef hægt
er að kalla einhvern tíma heilagan
þá er það kvöldið í kvöld. Hin helga nótt. Á
tónleikum aðventunnar hefur sálmurinn
um hana oft heyrst:
Ó helga nótt, þín stjarna blikar blíða,
Þá barnið Jesús fæddist hér á jörð.
Í dauða myrkrum daprar þjóðir stríða,
uns Drottinn birtist sinni barna hjörð.
Ég spurði vinkonu mína hvort hún vildi
koma með mér á stutta aðventutónleika
og sagði henni að þar væri meðal annars
sunginn þessi sálmur. Hún treysti sér ekki
til þess. Ég er búin að gráta nóg, sagði hún.
Þetta eru fyrstu jólin hennar eftir frá-
fall móður hennar. Á þessum tíma árs-
ins, aðventunni, þegar myrkrið er mest
og tilfinningarnar brjótast fram hver af
annarri, er stutt í tárin hjá þeim sem misst
hafa, stutt í hláturinn hjá þeim sem gleðj-
ast, stutt í væntumþykjuna hjá þeim sem
hafa reynt hana.
Minnt á ljósið
Mitt í þessu myrkri og myrkrinu sem fylgir
árstímanum erum við minnt á ljósið. Það
lýsir ekki aðeins okkar innri manni heldur
einnig umhverfi okkar. Jólaljósin skreyta
og lýsa upp dimmasta tíma ársins. Jóla-
guðspjallið, sem Lúkas læknir skráði og
er að finna í 2. kafla guðspjalls hans, segir
líka frá því þegar birtan lýsti upp dimma
nóttina. „En í sömu byggð voru hirðar úti í
haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar.
Og engill Drottins stóð hjá þeim og dýrð
Drottins ljómaði kringum þá“.
Fátækir hirðar, sem sátu yfir kindum,
fengu fyrstir fréttirnar. Reynsla þeirra
hefur verið lesin og leikin og fræðimenn
hafa rannsakað þátt þeirra í jólasögunni
og þýðingu þess að þeir voru valdir fyrstir
til að heyra boðskapinn. Þeirra sem ekki
voru hátt skrifaðir í samfélagi mannanna
hefur verið minnst um aldir. Það hefur
verið tekið eftir viðbrögðum þeirra, en þau
eru í samræmi við það sem við þekkjum
úr mannlegu eðli. „Þegar englarnir voru
farnir frá þeim til himins sögðu hirðarnir
sín á milli: „Förum beint til Betlehem að
sjá það sem gerst hefur og Drottinn hefur
kunngjört okkur.“ Og þeir fóru með skyndi
og fundu Maríu og Jósef og ungbarnið sem
lá í jötu. Þegar þeir sáu það skýrðu þeir
frá því er þeim hafði verið sagt um barn
þetta. Og allir sem heyrðu undruðust það
er hirðarnir sögðu þeim. En María geymdi
allt þetta í hjarta sér og hugleiddi það. Og
hirðarnir sneru aftur og vegsömuðu Guð
og lofuðu hann fyrir það sem þeir höfðu
heyrt og séð en allt var það eins og þeim
hafði verið sagt.
Fagnaðarboðskapur
Margir fara í aftansöng í kirkju sinni í
kvöld og aðrir fara í jólaguðsþjónustur um
hátíðirnar. Þar er fluttur fagnaðarboð-
skapurinn um fæðingu frelsarans. Jóla-
boðskapurinn vekur upp þá tilfinningu er
hirðarnir höfðu, að fara og sjá og lofa Guð.
Boðskapur himinsins hafði náð eyrum
hirðanna og þeirra mannlegu viðbröð voru
að fara og sjá. Eins er það með okkur sem
nú lifum. Reynslan mótar okkur og hvetur
okkur til viðbragða. Reynsla okkar er ekki
sýnileg öðrum en þeim er við segjum frá,
en hún mótar og breytir. Við erum ekki
söm á eftir. Og þannig hefur það verið með
hirðana. Þeir lofuðu Guð, segir í guðspjall-
inu.
Við komum saman á jólum og lofum
Guð fyrir það að fá að heyra þennan him-
neska boðskap. Fyrir það að barnið hennar
Maríu er líka okkar. Fyrir það að í jötunni
er bæði Guð og maður. Jesús sem þekkir
mannlegar tilfinningar og þrár. Jesús sem
gerir heilt samband okkar við Guð. Guð
sem er frelsari okkar, vinur og sálufélagi.
Guð sem skilur okkur ekki eftir ein og
yfirgefin heldur sendir okkur hjálparann,
huggarann, andann heilaga. Við erum ekki
eyland í þessum heimi. Við erum tengd
öðru fólki á ýmsan hátt, en án tengingar
við Guð er líf okkar sem í lausu lofti. Jólin
minna okkur á það og þau minna okkur á
að boðskapurinn sem engillinn flutti er
okkur líka ætlaður: „Verið óhræddir, því
sjá, ég boða yður mikinn fögnuð sem veit-
ast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frels-
ari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg
Davíðs.“
Hirðarnir fóru og sáu barnið í jötunni.
Það megum við líka gera. Við megum falla
á kné og láta blessun barnsins í jötunni
streyma til okkar. Þökkum og njótum.
Gleðilega hátíð.
Þökkum og njótum
JÓL
Agnes M.
Sigurðardóttir
biskup Íslands
Við erum tengd öðru
fólki á ýmsan hátt, en
án tengingar við Guð er líf
okkar sem í lausu lofti. Jólin
minna okkur á það og þau
minna okkur á að boðskap-
urinn sem engillinn flutti er
okkur líka ætlaður.
Bjarni Haukur Þórsson
Miðasala
www.harpa.is
Sími: 528 5050
Sýningartímar milli jóla og nýárs:
27. desember kl. 20:00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
28. desember kl. 20:00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
29. desember kl. 19:00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
30. desember kl. 19:00 ÖRFÁ SÆTI LAUS
„I have not laughed
this much... ever!”
Celina Merino,
Travel Agent Madrid
„Comic perfection.
What are you waiting for?
Book Now!!”
Richard Ings, WOR
Nokkrar aukasýningar milli jóla
og nýárs fyrir Íslendinga sem
og erlenda ferðamenn.
Komdu og sjáðu frábæra,
fyndna og fræðandi
gamansýningu!
Erum við
virkilega
svona?