Fréttablaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 34
24. desember 2012 MÁNUDAGUR| MENNING | 30
Segja má að afhending bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs þann
2. nóvember 2011 hafi gefið tóninn
fyrir bókaárið 2012. Þar tók Gyrðir
Elíasson við verðskulduðum verð-
launum fyrir smásagnasafnið Milli
trjánna og það má færa gild rök fyrir
því að 2012 hafi verið ár Gyrðis. Hann hlaut Íslensku
þýðingaverðlaunin fyrir ljóðasafnið Tunglið braust
inn í húsið í apríl. Í vor sendi hann frá sér ljóðasafnið
Hér vex enginn sítrónuviður, sem hlaut einróma lof og
Egill Helgason tilkynnti í Kiljunni að væri sennilega
bókmenntatíðindi ársins. Gyrðir lét ekki þar við sitja
heldur sendi á haustdögum frá sér skáldsöguna Suður-
gluggann sem sömuleiðis vakti einróma hrifningu
og er tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í
ár. Í bókakrítík Fréttablaðsins hlaut hvor bók um sig
hvorki meira né minna en fimm stjörnur og er árið
2012 því tíu stjarna ár hjá Gyrði. Geri aðrir betur.
Í heild var bókaárið óvenju glæsilegt. Metfjöldi
skáldrita kom út á árinu og mjög margir af okkar
viður kenndustu höfundum sendu frá sér skáldsögur.
Svo römm var einokun „gömlu“ höfundanna á mark-
aðnum að nýliðar áttu vart möguleika á að koma
bókum sínum á framfæri. Útgáfa á bókum eftir áður
óútgefna höfunda fór fram á miðju sumri eða hjá litlu
forlögunum, jólabókavertíðin hjá stóru forlögunum
var þéttskipuð kanónum sem sagan segir að hafi verið
í startholunum fyrir bókamessuna í Frankfurt í fyrra
en ekki náð að klára.
Eins og við mátti búast frá þessu stórskotaliði er
mikið um góðar skáldsögur í ár. Flestir höfundanna
halda sig á gamalkunnum slóðum í söguefni og efnis-
tökum, gera það sem þeir gera best og gera það vel.
Eini óvænti smellurinn er Illska Eiríks Arnar Norð-
dahl sem vakið hefur mikla athygli og hrifningu, skot-
ið Eiríki úr röðum jaðarskálda í fremstu röð íslenskra
skáldsagnahöfunda og er tilnefnd til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna.
Ævisagan er sprelllifandi
Annar óvæntur smellur er ævisaga Gísla á Uppsölum
eftir Ingibjörgu Reynisdóttur sem trónað hefur á toppi
metsölulista öllum að óvörum. Spár um endalok ævi-
sögunnar virðast því úr lausu lofti gripnar og því til
áréttingar hefur ævisaga Ellyjar Vilhjálms, sem Mar-
grét Blöndal skráði, selst eins og hinar margumtöluðu
heitu lummur. Svavar Gestsson sendir frá sér sjálfs-
ævisögu með áherslu á pólitískan feril, Jón Gnarr
sendir frá sér skáldaða ævisögu þar sem óhugnan-
legar myndir af einelti eru ríkjandi og Borghildur
Guðmundsdóttir lýsir hatrammri baráttu sinni fyrir
börnum sínum í sinni bók, svo nokkur dæmi séu tekin.
Viðtalsbókin virðist hins vegar liðin undir lok og
sjálfsævisögur þar sem höfundur rekur líf sitt frá a til
ö eru á undanhaldi. Breytingin í áherslum í ævisagna-
útgáfu birtast í því að mikil gróska hefur ríkt í vönd-
uðum ævisögum liðinna stórmenna undanfarin ár og
á þessu ári ber þar hæst bók Gunnars F. Guðmunds-
sonar um æviferil Jóns Sveinssonar, Nonna. Appels-
ínur frá Abkasíu eftir Jón Ólafsson vegur salt á brún
ævisagnageirans, en þar eru örlög Veru Hertzsch í
brennipunkti.
Barnabókin blómstrar
Þótt nýir höfundar eigi ekki auðvelt með að komast
inn á skáldsögumarkaðinn fyrir fullorðna gildir öðru
máli um barnabækur. Þar virðist eftirspurnin eftir
ferskum röddum vera mikil. Nýliðarnir Kjartan Yngvi
Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson hlutu Íslensku
barnabókaverðlaunin fyrir bókina Hrafnsauga, Þórdís
Gísladóttir hefur vakið mikla athygli fyrir Randalín
og Munda, Kristján Hjálmarsson skaust í sviðsljósið
með Flóðhestinn sem vildi sjá rassinn á sér og fleiri
mætti nefna. Auk þess eru margir okkar bestu barna-
bókahöfunda með bækur í ár og sumir mundu jafnvel
ganga svo langt að segja að mesta gróskan í íslenskum
bókmenntum væri í barnabókaskrifum.
Erótík og furðusögur
Erótíska bylgjan margumtalaða stakk sér niður á
Íslandi með útgáfu frægustu bókarinnar úr þeim
flokki, 50 gráum skuggum eftir. E.L. James. Í kjöl-
farið sigldi Þú afhjúpar mig eftir Sylviu Day og síðan
bók númer tvö í skuggaflokknum. Íslenskir höfundar
hafa ekki enn hoppað upp í vagn erótíkur svo neinu
nemi, að frátalinni Sirrýjar Sig sem sendi frá sér eró-
tíska rafbók. Fantasíur íslenskra kvenna sem Hildur
Sverrisdóttir safnaði saman og bjó til útgáfu slá þó
tóninn fyrir næstu bókavertíð, að sögn eins útgefanda,
og búast má við aukningu í útgáfu erótískra bóka 2013.
Annað heimstrend – furðusögur og fantasíur – er
að byrja að skjóta hér rótum; Emil Hjörvar Peters-
sen og Elí Freysson sendu báðir frá sér aðra bókina
í framhaldsflokkum sínum í þessum geira og Davíð
Þór Jónsson sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu sem
rækilega fellur í þennan flokk. Game of Thrones kom
út á íslensku og nokkuð ljóst að við höfum rétt fengið
smjörþefinn af furðusagnaheiminum.
Þýðingar á metsölubókum
Þýðingaárið var gjöfult þótt ekki kæmu út neinar þýð-
ingar á stórvirkjum heimsbókmenntanna. Bækur sem
notið hafa velgengni erlendis undanfarið voru hins
vegar þýddar um hæl og Íslendingar gátu til dæmis
lesið nýja skáldsögu J.K. Rowling á íslensku nokkrum
vikum eftir að hún kom út á frummálinu. Krimmar,
flestir frá Skandinavíu, voru þýddir í erg og gríð og
yfir höfuð stóð þýðingaútgáfa með miklum blóma.
Gjöfult ár
Eins og gefur að skilja er hér farið ansi hratt yfir sögu.
Ýmsum kann til dæmis að finnast að ljóða- og fræði-
bækur liggi óbættar hjá garði. Þó áttu ekki minni skáld
en Gerður Kristný og Sigurður Pálsson merkisbækur
í flóðinu og fræðibókaútgáfan var öflug. Heilt yfir var
bókaárið hið glæsilegasta, 1.012 titlar, og vonandi að
fólk haldi áfram að lesa og ræða útgáfuna þótt vertíð
sé formlega lokið og nýtt bókaár gangi í garð.
Bókaárið 2012 var gjöfult, þótt ekki
drægi til neinna stórtíðinda. Maður
ársins í bókmenntaheiminum var
tvímælalaust Gyrðir Elíasson sem
sendi frá sér hvert meistaraverkið af
öðru. Friðrika Benónýsdóttir stiklar á
stóru yfi r útgáfufl jótið sem bar með
sér fj ölbreytt úrval bóka.
Bækur
2012
Dansk julegudstjeneste
holdes i domkirken mandag den
24. december kl. 15.00
ved pastor María Ágústdóttir.
Danmarks ambassade
MENNING
Ár Gyrðis,
ÍSLENSKU
BÓKMENNTAVERÐLAUNIN
VERÐLAUNAHAFAR ÁRSINS
Fagurbókmenntir
Guðrún Eva
Mínervudóttir
Allt með kossi vekur
Fræðirit og bækur
almenns efnis
Páll Björnsson
Jón forseti allur?
ÍSLENSKU ÞÝÐINGA-
VERÐLAUNIN
Gyrðir Elíasson
Tunglið braust inn
í húsið
FJÖRUVERÐLAUNIN
Fagurbókmenntir
Oddný Eir Ævars-
dóttir
Jarðnæði
Fræðibækur
Birna Lárusdóttir
Mannvist
Barna- og
unglingabækur
Margrét
Örnólfsdóttir
Með heiminn
í vasanum
MENNINGARVERÐ-
LAUN DV bókmenntir
ÍSLENSKU BARNA-
BÓKAVERÐLAUNIN
Kjartan Yngvi
Björnsson
og Snæbjörn
Brynjarsson
Hrafnsauga
Vigdís Grímsdóttir
Trúir þú á töfra
Gísla og
grárra skugga