Fréttablaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 2
24. desember 2012 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
VIÐSKIPTI Hannes Smárason,
fyrrum forstjóri FL Group og
aðstoðarforstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, veitti Íslenskri
erfðagreiningu ráðgjöf við sölu-
ferli fyrirtækisins til bandaríska
lyfja- og líftæknifyrirtækisins
Amgen.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í nýjasta þætti Klinksins,
viðtalsþætti um efnahags- og
þjóðfélagsmál, á Vísi þar sem
rætt er við Kára Stefánsson, for-
stjóra Íslenskrar erfðagreiningar.
Í þættinum kemur fram að
viðræður um kaup Amgen á
Íslenskri erfðagreiningu hafi
hafist í kjölfar viðræðna um sam-
starf fyrirtækjanna tveggja í
tengslum við verkefni um hjarta-
bilanir.
Þá segir Kári að Íslensk erfða-
greining hafi fengið þau fyrir-
mæli frá Amgen í kjölfar kaup-
anna að halda áfram vísindastarfi
sínu með óbreyttu sniði en fyrir-
tækið verður rekið sem sjálfstæð
eining innan Amgen.
Gengið var frá kaupunum
hinn 10. desember síðastliðinn
en Amgen greiddi 415 milljónir
Bandaríkjadala, jafngildi um 53
milljarða króna, fyrir Íslenska
erfðagreiningu. Þá segir Kári
að hann hafi átt sáralítinn hlut í
fyrir tækinu en komið ágætlega út
úr kaupunum fjárhagslega. - mþl
Viðtalsþáttinn Klinkið má sjá í
heild sinni á Vísi.is
visir.is
ENDURVINNSLA
Jólapappír í bláu tunnuna
Pappírinn utan af jólapökkunum má
endurvinna og geta þeir sem eru með
bláa endurvinnslutunnu fyrir
pappír sett pappírinn beint
í tunnuna, að því er segir á
vef Reykjavíkurborgar. Þar
er þó tekið fram
að sterkrauðan
pappír eigi ekki
að setja í endur-
vinnslu.
Félagsmiðstöðin Selið á Sel-
tjarnarnesi er eini staðurinn
þar sem undantekning er
gerð varðandi opinn aðgang.
Þar eru tveir starfsmenn og er
Ari Sigurjónsson annar þeirra.
„Það var lokað á okkur á
tímabili í síðustu viku því það
kom einhvers konar þverlokun
á bæinn,“ segir hann. „En við
hringdum og létum opna fyrir
þetta aftur. Facebook er eitt
sterkasta verkfærið sem við höfum
til að ná til krakkanna.“
Nauðsynlegt til að
ná til krakkanna
Kertasníkir, ert þú eitthvað
merkilegri en aðrir af því að
þú kemur síðastur?
„Já, mamma segir að ég sé algert
merkikerti.“
Kertasníkir Leppalúðason, jólasveinn og
sérlegur áhugamaður um kerti, kom síðastur
bræðranna til byggða í nótt.
VERSLUN „Veðrið gæti ekki verið betra fyrir Þorláksmessu,“ sagði
Hörður Ágústsson í Maclandi við Klapparstíg, þegar haft var samband
við hann í gær. „Það er búið að vera mjög gaman síðustu dagana.“
Spurður hvernig traffíkin hafi verið svaraði hann: „Það er náttúrulega
búið að vera alveg gjörsamlega sturlað að gera.“
Stemningin hefur einnig verið góð í jólaösinni og margt fólk í bænum.
Svo margt raunar að Hörður segist hafa óskað þess að Laugaveginum
væri breytt í göngugötu á meðan mest væri um gangandi vegfarendur.
„Það er bara allt of margt fólk í bænum og það þarf að gefa því meira
pláss heldur en bílunum.“ - bþh
Veðurskilyrðin voru góð fyrir jólainnkaup:
„Allt of margt fólk í bænum“
YS OG ÞYS Það var margt um manninn á Skólavörðustíg og Laugavegi í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LÖGREGLUMÁL Matthíasar Mána
Erlingssonar sem strauk af Litla-
Hrauni hefur nú verið leitað í
heila viku en lögreglan hefur
fáar vísbendingar fundið.
Komið hefur í ljós að Matthías
hótaði konunni sem hann réðst
á símleiðis áður en hann strauk
17. desember. Konan hefur flúið
land með börn sín. Matthías hlaut
fimm ára dóm fyrir árásina.
Ábendingar hafa borist lög-
reglunni um fólk sem gæti þekkt
Matthías og hefur verið reynt
að hafa upp á því fólki. Sem fyrr
óskar lögreglan eftir upplýsing-
um um málið í síma 444-1000. - bþh
Matthíasar Mána enn leitað:
Strokufanginn
enn ófundinn
Líknarmál
Fær gönguþjálfunartæki
MS-félagi Íslands hefur verið færður að
gjöf göngulyftubúnaður til göngu-
þjálfunar þeirra sem kljást við MS-
sjúkdóminn. Það er byggingafyrirtækið
Sveinbjörn Sigurðsson hf. sem gefur í
tilefni af 70 ára afmæli fyrirtækisins.
Íslensk erfðagreining verður rekin með óbreyttu sniði hér á landi eftir kaup Amgen:
Hannes veitti ráðgjöf við söluna á ÍE
KÁRI
STEFÁNSSON
HANNES
SMÁRASON
SPURNING DAGSINS
TÆKNI Reykjanesbær og Seltjarnarnes-
bær eru meðal þeirra bæjarfélaga sem
hafa lokað fyrir Facebook á tölvum bæjar-
starfsmanna. Ekki hefur verið opið inn á
síðuna í nokkur ár í bæjunum tveimur.
Guðrún Þorsteinsdóttir, starfsþróunar-
stjóri hjá Reykjanesbæ, segir aðgang inum
hafa verið lokað að beiðni stjórnenda í
stofnunum innan bæjarins, meðal annars
vegna kostnaðar við niðurhal.
„Þá var þessi ákvörðun tekin, en það eru
gerðar undantekningar,“ segir hún. „Ég
get ekki svarað fyrir það hvort þetta hafi
tekið mikinn tíma frá starfsmönnum, en
stjórnendur fögnuðu því þegar þessu var
lokað, enda óskuðu þeir sjálfir eftir því.“
Guðrún segir að alltaf sé verið að ræða
hvort opna eigi fyrir Facebook-aðgang
að nýju, en engar ákvarðanir hafi verið
teknar.
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri
Seltjarnarnesbæjar, segir að lokað hafi
verið alla hennar bæjarstjórnartíð og
fyrir þann tíma. „Það hefur alltaf verið
mín stefna að hafa lokað fyrir Facebook,
Myspace og Youtube,“ segir Ásgerður. „Til
að opna fyrir það þarf bæjarstjórn að fara
yfir málið, móta stefnu og setja sérstakar
reglur og viðmið.“
Nú vilja skólastjórar og fræðslustjórar
innan bæjarins opna aðgang fyrir nem-
endur og kennara grunnskóla. Að sögn
Ásgerðar eru fræðslustjórar nú að safna
upplýsingum um málið til að kynna fyrir
bæjarstjórn.
„Starfsmenn hafa aldrei verið með þetta
opið. Síðan hafa skoðanir og tölfræði sýnt
það að fólk er að eyða mismiklum tíma í
þetta,“ segir hún.
Bæði Seltjarnarnesbær og Reykjanes-
bær eru með skráðar Facebook-síður, en
ekki hefur verið mikil virkni hjá þeim
fyrrnefnda undanfarin misseri. Undan-
tekningar eru gerðar fyrir starfsmenn
Reykjanesbæjar sem sjá um síðuna.
sunna@frettabladid.is
Facebook-lokanir á
Nesinu og Reykjanesi
Seltjarnarnes og Reykjanes hafa haft lokað fyrir Facebook-aðgang starfsmanna
í nokkur ár. Umræður um að endurskoða bannið innan beggja bæjanna. Einnig
lokað fyrir Myspace og Youtube á Seltjarnarnesi. Einstaka undantekningar gerðar.
MÁ EKKI Í VINNUNNI Lokað hefur verið fyrir Facebook hjá starfsmönn-
um bæjarfélaganna í nokkur ár, en nú standa yfir viðræður um hvort
kominn sé tími til að endurskoða bannið. NORDICPHOTOS/GETTY
ÞEKKIRÐU DÆMI?
Sendu línu á
meira@frettabladid.is.
EPSON SKJÁVARPAR
FRÁ 79.990
WWW.SM.IS
Smásagan Tófan eftir Júlíus Vals-
son lækni bar sigur úr býtum í
jólasögusamkeppni Fréttablaðs-
ins sem efnt var til í fyrsta sinn í
ár. Yfir 250 sögur bárust í keppn-
ina og hafði dómnefnd því úr nógu
að moða.
Þrjár sögur urðu að endingu
fyrir valinu. Í þriðja sæti var
sagan Hvít jól eftir Sif Sigmars-
dóttur, í öðru sæti sagan Fjárhús-
in eftir Steinunni Guðmundsdótt-
ur og sem fyrr segir var sagan
Tófan eftir Júlíus Valsson í fyrsta
sæti.
Júlíus er læknir en hefur feng-
ist við ritstörf um langt skeið.
Hann á meðal annars sögu í smá-
sagnasafni sem kom út á rafbók á
vegum Rithrings.is á dögunum og
ætlar að gefa út eigið smásagna-
kver í vor. Tófuna samdi Júlíus
sérstaklega fyrir keppnina en
segir hugmyndina að baki henni
hafa blundað með sér um skeið.
„Ég er sjálfur veiðimaður og
persónurnar eru gamlir kunningj-
ar ef svo má segja.“ Hann segir
það sér mikils virði að hafa sigr-
að í keppninni. „Þetta er heilmikil
hvatning og lyftistöng.“
Júlíus fékk í verðlaun Intel
Pentium-fartölvu frá Toshiba, en
Steinunn og Sif fengu spjaldtölv-
ur af gerðinni United í boði Tölvu-
listans.
Í dómnefnd sátu Steinunn Stef-
ánsdóttir, Guðmundur Andri
Thorsson og Arndís Þórarinsdótt-
ir. Um söguna sem hreppti hnoss-
ið segja þau. „Tófan er haganlega
skrifuð saga. Hún er kannski ekki
hefðbundin jólasaga, í það minnsta
framan af, en boðskapur hennar er
sígildur.“
- bs / Jólasagan Tófan er á síðu 18.
Júlíus Valsson læknir varð hlutskarpastur í jólasögukeppni Fréttablaðsins:
Tófan bar sigur úr býtum
JÚLÍUS VALSSON Segir það heilmikla
hvatningu og lyftistöng að hafa sigrað í
keppninni. Hann hyggur á útgáfu smá-
sagnasafns í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN