Fréttablaðið - 24.12.2012, Síða 13

Fréttablaðið - 24.12.2012, Síða 13
MÁNUDAGUR 24. desember 2012 | HELGIN | 13 sem Gunnar og kona hans Else Hoffmann biðu með kvöldverð og uppbúin rúm handa öllum hópn- um.“ „Gunnar var forstjóri hjá inn-og útflutningsfyrirtæki sem hét G. Helgason og Melsted og næsta dag fórum við öll með honum á skrif- stofu hans á Manhattan. Þar hófst hann handa við að greiða götu okkar,“ heldur Sigurjón áfram frásögninni. „Fljótlega kom í ljós að allt flug var upppantað til Kali- forníu, sama var að segja um lestir svo ekkert var í boði nema rútu- ferð í fjóra sólarhringa. Gunnar sýndi okkur það helsta á Manhatt- aneyju og bauð okkur á dýrindis veitingastað. Síðan aðstoðaði hann okkur við að kaupa farmiða og veifaði þegar bíllinn rann af stað í vesturátt þvert yfir meginland Ameríku.“ Stóri vinningurinn Sigurjóni þótti sléttan tilbreyting- arlaus en á milli var stoppað í stór- borgum. „Í Las Vegas var áð til að borða og þegar við vorum að tínast aftur út í rútuna setti Kristinn 25 sent í eina peningavélina, skellti handfanginu niður – og fékk stóra vinninginn! Við hinir vorum hjálp- legir að tína aurana saman því bílstjórinn var farinn að hóta að skilja okkur eftir,“ rifjar hann upp. Fegurð musterisbyggingar mor- móna í Salt Lake City er Sigur- jóni minnisstæð úr ferðalaginu og líka mikilfengleg sólarupp- rás er hann var staddur í miðjum hlíðum Klettafjalla. „Fjöllin eru rauð og við sólarkomuna sló svo undarlegum bjarma yfir allt að ég varð alveg furðu lostinn. Síðan tók Mohave-eyðimörkin við með rauðleitan sand og einstaka runna á stangli og Dauðadalurinn sem er talsvert undir sjávarmáli.“ Það var að kvöldi 23. október sem Sigurjón og félagar komu til Los Angeles, slæptir og syfj- aðir. Nú var bara eftir að finna næturstað eina nótt. „Þá kom til okkar maður sem spurði hvort við værum frá Íslandi. Mr. Páls- son hefði hringt frá New York og beðið um að okkur yrði séð fyrir mat og húsnæði fyrstu nóttina. Hann gerði það ekki endasleppt við okkur,“ rifjar Sigurjón upp. „Það voru syfjulegir ungir menn sem mættu í fyrsta tímann í skól- anum næsta morgun en við náðum fljótlega fullum dampi.“ Alls voru fjórtán Íslending- ar við nám í Cal-Aero skólanum á sama tíma, í ýmsum deildum, að sögn Sigurjóns. „Minn hópur fór heim að námi þar loknu en ég fór í annan skóla og kom heim ári seinna,“ lýsir hann og held- ur áfram. „Oft vorum við búnir að velta fyrir okkur hvernig við gætum sýnt Gunnari Pálssyni þakklætisvott fyrir allt sem hann gerði fyrir okkur. Þegar félagar mínir komu til New York á heim- leið, haustið 1946, buðu þeir honum út að borða og báðu hann að velja einhvern góðan stað. Hann fór með þá á mjög fínan stað, þar sem þeir sátu dýrindis veislu honum til heiðurs. Ásgeir Samúelsson var gerður út til að gera upp borðið en yfirþjónninn rak upp stór augu og sagði mjög virðulega: „Hér borgar enginn fyrir matinn, sérstaklega. Mr. Pálsson er klúbbmeðlimur.“ VEGABRÉFSMYNDIN Sigurjón áður en hann hélt til Ameríku, 18. október 1945. Starfsfólk Orkuveitu Reykjavíkur óskar þér gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. www.or.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 6 24 48 1 2/ 12 Við erum til taks Við treystum sjaldan meira á orkuna en um jól og áramót. Starfsfólk Orkuveitu Reykjavíkur er í viðbragðsstöðu til að tryggja þér birtu og yl um hátíðirnar. Gleðilega hátíð!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.