Fréttablaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 23
GLEÐILEG JÓL Mörgum finnst jólin ganga í garð þegar jólaguðsþjón- ustan hefst í útvarpinu klukkan sex á aðfangadag. Útvarpað verður frá Dómkirkjunni í Reykjavík þar sem séra Hjálmar Jónsson predikar og séra Sveinn Valgeirsson þjónar fyrir altari. BOÐAR KOMU JÓLA Sigvaldi hefur í 25 ár les- ið jólakveðjur í útvarpinu og oftsinnis verið á vakt- inni á aðfangadagskvöld. Í ár eru 80 ár síðan lestur jólakveðja hófst í útvarpinu og nú í fyrsta sinn hófst lesturinn að kvöldi 22. desember. MYND/GVA Sigvaldi hafði verið með beinverki og fundið fyrir verk á milli herða-blaða síðustu vikuna fyrir jól. „Í móðurættinni er mikið hjartavesen og mamma hvatti mig til að leita læknis. Ég ætlaði að hrista þetta af mér og tengdi verkinn ekki við hjartað því hann leiddi ekki út í handlegg,“ segir Sigvaldi sem fyrir röð tilviljana hrósaði sönnu lífshappi á vetrarsólstöðum fyrir ári. „Ég hafði nýlokið við að pakka inn jólagjöfum þegar Ásgerður Þórisdóttir, vinkona mín og hjúkrunarfræðingur, hringdi og spurði hvernig ég hefði það. Hún tók af mér loforð um að láta tékka á mér í hjartagátt Landspítalans þegar ég sagðist daufur og lýsti fyrir henni verkjunum.“ Minnugur loforðsins og með fullan bíl af jólagjöfum ákvað Sigvaldi að koma við á spítalanum. „Þar tilkynntu læknar mér að ég væri með kransæðastíflu og þyrfti í hjarta- þræðingu hið fyrsta. Ég stakk upp á að ég kæmi þá inn á milli jóla og nýárs,“ segir Sigvaldi, sem uppskar mikinn hlát- ur læknanna þegar hann stakk líka upp á að ljúka við að koma út jólagjöfunum. „Daginn eftir gekkst ég undir þræðingu og fékk að fara heim á aðfangadag enda í góðu formi og ljónheppinn að sleppa við hjartaskemmd. Ég hef stundum grín- ast með að mánuði áður var ég aleinn á rjúpu norður í landi og prílandi upp um fjöll og firnindi. Hefði ég fengið áfall þar væri ég ekki til frásagnar,“ segir Sigvaldi þakklátur almættinu. „Ég lít lífið nú öðrum augum og af meira æðruleysi, er duglegur að trimma og hef minnkað skammtana þótt ég sé mikill nautnamaður í mat.“ Í kvöld gegnir Sigvaldi ábyrgðarhlutverki þegar hann tilkynnir þjóðinni að jólin séu loks komin á undan aftansöng. ■ thordis@365.is ÞAKKLÁTUR LÍFINU BOÐAR KOMU JÓLA Sigvaldi Júlíusson, útvarpsþulur á Rás 1, átti að vera á vakt á aðfangadagskvöld í fyrra þegar örlögin gripu grimmilega í taumana. Hágæða sæn gurverasett og sloppar - Mikið úrval Jólagjöfin í ár 20% afslát tur KEEPING UP WITH THE KARDASHIANS E! ENTERTAINMENT ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.