Fréttablaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 18
Það var aðfangadagur jóla og komið fram yfir hádegi. Þórður sat tein-réttur og grafkyrr á litlum kolli í eldhúsinu og starði svipbrigðalaus út um gluggann. Túnin voru þakin þykku snjóteppi og vindurinn hafði feykt snjónum í skafla við útihúsin svo þau risu eins og dökkar eyjar upp úr snjóbreiðunni. Þykkur snjó- rammi með klakahröngli hafði myndast utan um eldhúsgluggann svo þverrandi dagskíman náði vart að þrengja sér inn um hann. Frá útvarpinu barst lágur kliður. Þul- urinn var að lesa jólakveðjur til landsmanna og inn á milli voru spiluð jólalög. — Bölvað ónæði er alltaf af þess- um Jesúmönnum. Þórður dæsti. Hann teygði sig í tóbaksdósir á borðinu, drap á lokið, opnaði þær með hægri hreyfingu og setti góðan slurk af neftóbaki á handar- bakið. Hann leit aftur um stund út um gluggann áður en hann sogaði tóbakið með áfergju upp í nasirn- ar til skiptis. Slatti af því hafnaði í grásprengdu skegginu en hluti af því á gólffjölunum. Það var tekið að skyggja og hann sá andlit sitt endurspeglast í rúðunni í upplýstu eldhúsinu. — Mikið er karlinn orðinn þreytulegur, tautaði hann fyrir munni sér. — Það er vegna þess að karlinn hugsar of mikið um tófuræksnið, sagði Ásta eiginkona hans um leið og hún kom inn í eldhúsið og setti á sig rauða jólasvuntu. — Hættu nú þessari störu út um gluggann og hjálpaðu mér heldur við að setja upp hangikjötið. Láttu tófuna í friði rétt á meðan. Það eru að koma jól. — Á ég þá að láta varginn éta upp allan bústofninn? spurði Þórð- ur án þess að líta upp. Allar roll- urnar með tölu og hænurnar með? Hvers kyns búmennska er það eig- inlega? Ég bara spyr? — Tófan er bara að reyna að bjarga sér, svaraði Ásta annars hugar. Suðan var að koma upp í pottinum og daufan ilm af tað- reyktu hangikjöti lagði um bæinn. Þórður hristi höfuðið og hét áfram að stara út um gluggann. — Það er ekki eðlilegt hve tófan er orðin nærgöngul upp á síðkast- ið. Ég rakti sporin í kring um hlöð- una og alveg að hænsnakofanum. Það vantar bara að hún laumi sér alla leiðina inn í fjárhúsin, helvítis vargurinn að tarna. Þórður stóð upp og klæddi sig í lopapeysu. — Ætlarðu ekki að hjálpa mér með hangikétið Þórður minn? spurði Ásta. Það þarf líka að fara að leggja á borðið. Krakkarnir fara bráðum að koma. — Ég ætla aðeins að ganga suður fyrir húsin áður en það dimmir alveg, svaraði Þórður. — Vertu ekki lengi. Það fer bráð- um að verða heilagt, sagði Ásta. Á leiðinni út úr bænum kom Þórður við í geymslunni, klæddi sig í kuldaúlpu, tók stóran veiði- riffil með sjónauka ofan af hillu fyrir ofan dyrnar og stakk nokkr- um skotum í úlpuvasann. Svo gekk hann í áttina að hlöðunni. Veðrið var stillt og hann andaði að sér ísköldu heimskautaloftinu. Það var alltaf sérstök vetrarlykt af frostinu. Hann skimaði vandlega í kringum sig er hann óð hnédjúpa skaflana. Illviðrið undanfarna daga hafði útmáð öll spor eftir tóf- una. Það var merkilegt hvað hún var orðin frökk. Eflaust var lítið um fugl og aðra bráð í fjallinu í þessari ótíð og því sótti hún til byggða. En Þórður ætlaði ekki að fórna sínum skepnum fyrir tófu- ræksnið. Bóndinn yrði stöðugt að standa vörð um húsdýrin og þótt tófan ætti sinn tilverurétt í nátt- úrunni þá væri sá réttur ekki á ábyrgð bóndans. Þórður hafði aldrei getað skilið þá menn sem héldu því fram í fúl- ustu alvöru, að sauðkindin hefði frá upphafi gert íslensku þjóðinni meiri bölvun en refurinn og band- ormurinn til samans. Það var erfitt að opna hlöðu- dyrnar því fokið hafði í stóran snjó- skafl fyrir framan þær og það tók Þórð talsverðan tíma að moka snjó- inn frá henni. Hann kom sér fyrir í enda hlöðunnar þar sem var lítið útskot með gluggaboru. Hann opn- aði gluggann varlega, setti skot í riffilinn og stakk hlaupinu út um gluggann. Hann stillti skerpu sjón- aukans og beið svo átekta. Hann kæmist ekki í jólaskap fyrr en hann vissi að hann hefði náð tóf- unni. Fyrr yrði hann ekki í rónni, því hann vildi vita af sauðfénu og fuglunum öruggum yfir jólin. Þrátt fyrir lognið, andaði köldu inn um gluggann, svo hann hneppti að sér úlpunni og setti á sig hanska. Hann vissi að Ásta var farin að bíða eftir honum en hún yrði bara að bíða enn um sinn. Hann athugaði umhverfið vand- lega í gegnum sjónaukann en hvergi var neina hreyfingu að sjá. Tófan var helst á ferð í ljósaskiptunum og í myrkri. Þórður hafði reynt að egna fyrir hana með dauðyfli af gömlum sauð, en hún hafði ekki litið við því. Hún var of klók, bannsett tófan. Hann skyldi þó sjá við henni. Hún átti ekki von á fyrirsát í lognmoll- unni þegar enginn sála var á ferð. Skyndilega sá hann einhverja hreyfingu út undan sér. Gat það verið tófan? Hann hallaði sér fram á gluggakarminn og mund- aði byssuna í áttina að staðnum þar sem honum hafði sýnst hann sjá hreyfinguna. Tunglið var komið upp og tunglsljósið sindr- aði á hjarninu. Það fór ekki milli mála. Þarna var lágfóta að læð- ast á milli þúfna. Hann lokaði byssulásnum og tók öryggið af. Nú voru dagar hennar taldir. Nú gæti hann haldið jól án þess að hafa áhyggjur af skepnunum. Hann beið rólegur eftir því að tófan kæmi í skotfæri. Hún var enn eitthvað að bardúsa á bak við lágan hól. Þórður beið rólegur. Honum lá ekkert á. Hann hafði áður legið á greni, oft í einn til tvo sólarhringa í senn. Hann gat því beðið en skotið mátti ekki geiga í þetta sinn. Hann fylgdist spenntur með tófunni sem var enn talsverðan spöl frá honum en hún þokaðist smám saman nær. Það var þó engu líkara en hún skynjaði nærveru hans í hlöð- unni. Hún kæmist ekki að fjár- húsunum eða hænsnakofanum án þess að fara fyrst fram hjá hlöðunni. Þórður fann að hjarta hans sló hraðar og hann svitnaði í lófun- um þrátt fyrir kuldann. Tófan þokaðist enn nær og hann sá í sjónaukanum að hún hélt á ein- hverju í kjaftinum. Þórður sá sér til undrunar að þetta var dauð rjúpa, nýdauður alhvítur karri. Þetta var undarlegt. Hvern fjand- ann var tófan að þvælast með bráð sína inn á milli húsa? Var hún gengin af göflunum? Hafði illviðrið undanfarna daga ruglað hana í ríminu? Þórður lagði vísi- fingurinn varlega á gikkinn. Tófan var nú komin í skotfæri. Kúlan, sem var með holum oddi myndi tæta hana í sundur, hrein- lega sprengja hana í loft upp og hann fengi nýveidda rjúpu í kaup- bæti, tilvalda í jólamatinn. Þórð- ur kreisti gikkinn varlega. Hann gjörþekkti gamla Sako-riffilinn sinn og vissi nákvæmlega hvenær skotið myndi ríða af. Hann sá að tófan stóð enn hreyf- ingarlaus og virtist horfa beint á hann þefandi út í loftið með sperrt eyrun. Hann yrði að hafa hraðan á til að missa hana ekki úr skotlínu. Rétt í þann mund fann hann fyrir einhverri hreyfingu við fætur sér. Hvað var fjandans kötturinn að þvælast fyrir honum núna? Eftir að Seppi, gamli hundurinn hans dó, óðu þessir kettir stjórnlaust um allt. Seppi hefði svo sannar- lega haldið tófunni frá bænum, það eitt var víst. Tófan stóð enn hreyfingarlaus í sömu sporum eins og hún væri að bíða eftir einhverju. Þá fann Þórður aftur eitthvað strjúkast við fætur sér. Hann bölvaði og sparkaði í heyið með stígvélinu. Þá heyrði hann ámátlegt væl. Hann leit niður og sá þrjá nýfædda yrðlinga sem lágu í einum hnapp í litlu bæli í heyinu. Þórður horfði undrandi á tófuna og yrðlingana til skiptis. Hann andvarpaði og horfði eftir gufu- stróknum frá heitum andardrætti sínum liðast hægt upp í kalt loft- ið og leysast upp. Himinninn var stjörnubjartur en sumar stjörn- urnar voru bjartari en aðrar. Hann opnaði lásinn á byssunni, tók skotið og stakk því í vasann. Hann lokaði glugganum. Í fjarska heyrðist ómurinn frá kirkju- klukkunni innar í dalnum sem var að hringja inn jólin. Það var orðið heilagt. ➜ Illviðrið undan- farna daga hafði útmáð öll spor eftir tófuna. Það var merkilegt hvað hún var orðin frökk. Eflaust var lítið um fugl og aðra bráð í fjallinu í þessari ótíð og því sótti hún til byggða. En Þórður ætlaði ekki að fórna sínum skepnum fyrir tófuræksnið. Tófan Jólasaga eftir Júlíus Valsson M YN D /H ALLD Ó R BALD U RSSO N 24. desember 2012 MÁNUDAGUR| HELGIN | 18

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.