Fréttablaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 39
MÁNUDAGUR 24. desember 2012 | SPORT | 35
Komin í bíó
100/100
„Ógnvænlega vel gerð.“
100/100
„Einstaklega raunveruleg stórslysamynd,
sem lætur engan ósnortinn“
100/100
„Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir
sem fólk verður að sjá á árinu.“
NAOMI WATTS
TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA
BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI
Jólamyndin 2012
MAN. CITY 1
READING 0
1-0 Gareth Barry (93.)
TOTTENHAM 0
STOKE 0
WEST BROM 2
NORWICH 1
0-1 Rob Snodgrass (22.), 1-1 Zoltan Gera (43.),
2-1 Romelu Lukaku (82.)
SOUTHAMPTON 0
SUNDERLAND 1
0-1 Steven Fletcher (43.)
NEWCASTLE 1
QPR 0
1-0 Shole Ameobi (81.)
WIGAN 0
ARSENAL 1
0-1 Mikel Arteta, víti (60.)
SWANSEA 1
MAN. UTD 1
0-1 Patrice Evra, 1-1 Michu
CHELSEA 8
ASTON VILLA 0
1-0 F. Torres (3.), 2-0 Luiz (29.), 3-0 Ivanovic (34.),
4-0 Lampard (59.), 5-0 Ramires (75.), 6-0 Oscar,
víti (79.), 7-0 Hazard (83.), 8-0 Ramires (91.)
STAÐAN
Man.Utd. 18 14 1 3 44:25 43
Man.City 18 11 6 1 34:15 39
Chelsea 17 9 5 3 36:17 32
Arsenal 18 8 6 4 32:18 30
Everton 18 7 9 2 30:22 30
Tottenham 18 9 3 6 30:25 30
W.B.A. 18 9 3 6 26:22 30
Liverpool 18 6 7 5 27:23 25
Stoke 18 5 10 3 15:13 25
Norwich 18 6 7 5 20:27 25
Swansea 18 6 6 6 27:23 24
West Ham 18 6 5 7 22:22 23
Fulham 18 5 5 8 28:33 20
Newcastle 18 5 5 8 20:26 20
Sunderland 18 4 7 7 19:24 19
Aston Villa 18 4 6 8 15:32 18
Southampton 17 4 3 10 22:33 15
Wigan 18 4 3 11 18:33 15
Q.P.R. 18 1 7 10 15:31 10
Reading 18 1 6 11 21:37 9
Í BEINNI UM JÓLIN
JÓLADAGUR
22.30 Miami Heat - Oklahoma
Thunder
ANNAR DAGUR JÓLA
15.00 Man. Utd - Newcastle Sport 2
& HD
Norwich - Chelsea Sport 3
Sunderland - Man. City Sport
4
Arsenal - West Ham Sport 5
Everton - Wigan Sport 6
17.30 Aston Villa - Tottenham Sport
2 & HD
Flensburg - Kiel Sport & HD
19.45 Stoke - Liverpool Sport 2 &
HD
22.00 Sunnudagsmessan
FÓTBOLTI Alfreð Finnbogason var
hetja Heerenveen sem vann 2-1
sigur á Vitesse Arnheim í Hol-
landssparki um helgina. Alfreð
lagði upp fyrra markið og skoraði
það síðara með bylmingsskoti
af löngu færi. Heerenveen hafði
ekki unnið síðustu sjö leiki og því
kærkominn sigur fyrir jólahlé.
Markið var hans fjórtánda í
sextán deildarleikjum með hol-
lenska liðinu en auk þess skor-
aði hann fernu í bikarleik liðsins.
Alfreð raðaði einnig inn mörkun-
um með Helsingborg auk þess að
vera á skotskónum með Lokeren
og íslenska landsliðinu. Mörkin á
árinu eru 34 í 47 leikjum.
Alfreð er á topp tíu lista
íþróttafréttamanna í kjörinu um
íþróttamann ársins. - ktd
Fullkominn
endir á árinu
FÓTBOLTI Chelsea minnti á sig í
toppbaráttu ensku úrvalsdeildar-
innar með 8-0 sigri á Aston Villa
í gær. Manchester-liðin City og
United mættu mikilli mótspyrnu
í leikjum sínum.
Gareth Barry tryggði City sigur
á botnliði Reading með marki í við-
bótartíma. „Það skiptir miklu máli
að skora snemma í svona leikjum.
Hjartað mitt er ekki nógu sterkt
fyrir svona síðbúin mörk,“ sagði
Roberto Mancini stjóri City þokka-
lega sáttur í leikslok.
United sótti Swansea heim til
samnefndrar borgar í Wales í
gær. Þrátt fyrir töluverða yfir-
burði tókst United ekki að tryggja
sér sigur í 1-1 jafntefli. Upp úr
sauð í síðari hálfleik þegar Ashley
Williams, varnarmaður Swansea,
spyrnti knettinum af stuttu færi í
höfuðið á Robin van Persie sem lá
á jörðinni.
„Hann er heppinn vera á lífi.
Þessi hegðun hjá andstæðingi
okkar var fyrir neðan allar hellur.
Hann hefði getað hálsbrotið van
Persie,“ sagði Sir Alex Ferguson
stjóri United.
Leikmenn Liverpool léku við
hvern sinn fingur í 4-0 heimasigri
á Fulham. Steven Gerrard minnti
á sitt besta form með marki og
tveimur stoðsendingum. Mesta
athygli vakti þó framganga Stewart
Downing sem skoraði og lagði upp
sín fyrstu mörk í sínum 45. úrvals-
deildarleik fyrir Liverpool.
„Ef hann heldur uppteknum
hætti tekst honum vonandi að
stimpla sig inn í liðið. Hæfileikar
hans eru óumdeildir,“ sagði kampa-
kátur Brendan Rodgers stjóri
Liverpool. - ktd
Markaregn á Stamford Bridge
Manchester United missteig sig gegn Swansea og Liverpool slátraði Fulham.
VELKOMINN AFTUR Fernando Torres hefur skorað sjö mörk í sex leikjum Chelsea
undir stjórn Rafael Benitez. NORDICPHOTOS/AFP