Fréttablaðið - 27.12.2012, Page 2
27. desember 2012 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
STJÓRNSÝSLA Jóni Pálma Pálssyni,
bæjarritara á Akranesi, sem vikið
var frá störfum í vikunni fyrir jól,
hefur verið veittur andmælafrestur
til 7. janúar á næsta ári. Jón Pálmi
var leystur frá vinnuskyldu til 7.
janúar.
„Þegar andmælin liggja fyrir
meta menn það hvort málunum
sé þannig háttað að viðeigandi sé,
það er bara þannig,“ sagði Sveinn
Kristins son, forseti bæjarstjórnar
Akraness, í gær.
Jón Pálmi hefur sinnt skyldum
bæjarstjóra síðan í byrjun nóvem-
ber þegar Árni Múli Jónsson lét af
störfum sem bæjarstjóri. Hann var
leystur frá vinnuskyldum sínum
þegar grunur vaknaði um að hann
hefði ekki uppfyllt starfsskyldur
sínar í embættinu.
„Þar sem um yfirmann er að
ræða getur hann eðli málsins
samkvæmt ekki verið á vinnu-
staðnum,“ segir Sveinn, „vegna
þess að það er verið að kalla eftir
gögnum sem eru á vinnustaðnum.“
Samkvæmt lögum á Jón Pálmi
rétt á því að andmæla ákvörðun
bæjarstjórnarinnar. Hann hefur
fengið í hendur greinargerð sem
unnin hefur verið til rannsóknar
á málavöxtum. - bþh
Þar sem yfirmann er
að ræða þá getur hann eðli
málsins samkvæmt ekki
verið á vinnustaðnum.
Sveinn Kristinsson,
forseti bæjarstjórnar Akraness.
NEYTENDUR Bandaríski tölvuleikjarisinn
Electronic Arts (EA) markaðssetti stríðsleikinn
Medal of Honor Warfighter í október með því að
vísa beint af vefsíðu leiksins á vefsíður byssu-
framleiðenda.
Tenglarnir hafa nú verið fjarlægðir og EA
segir þá hafa verið setta upp fyrir mistök. Frá
þessu greinir vefmiðill dagblaðsins New York
Times.
Ofbeldistölvuleikir komust í umræðuna eftir
skotárásirnar í Newtown í Connecticut þegar
samtök byssueigenda í Bandaríkjunum kenndu
tölvuleikjunum um árásina og sögðu þá hvetja
fólk til að beita ofbeldi. Engar rannsóknir hafa
sýnt fram á að tölvuleikir hvetji til ofbeldis.
Tengingin á milli vefja tölvuleiksins og byssu-
framleiðenda er sögð til marks um markaðsleg
hagsmunatengsl þessara aðila.
Byssuframleiðendur eru helstu bakhjarlar
samtaka byssueigenda í Bandaríkjunum og koma
einnig að markaðssetningu tölvuleikja sem inni-
halda vörur frá þeim, eins og Medal of Honor.
- bþh
Byssuframleiðendur styðja við útgáfu ofbeldistölvuleikja og öfugt:
EA vísaði á byssuframleiðendur
MEDAL OF HONOR Í tölvuleiknum geta spilarar valið vopn úr
miklum fjölda vopna sem til eru í raunveruleikanum.
KÍNA, AP Lengsta háhraðalestarleið heims var tekin í notkun í Kína í
gær, og er ekið frá höfuðborginni Beijing til viðskiptastórborgarinnar
Guangzhou, sem er skammt frá Hong Kong.
Vegalengdin milli borganna er nærri 2.300 kílómetrar, og tekur ferðin
nú aðeins átta klukkustundir í stað 20 stunda áður, jafnvel þótt stoppað
sé í stærri borgum á leiðinnni.
Kínverskir ráðamenn hafa gert mikið úr þessum viðburði, sem sýni
hvers Kínverjar eru megnugir. Á ýmsu hefur þó gengið í aðdragandan-
um, meðal annars hrundi hluti lestarleiðarinnar í kjölfar mikilla rign-
inga í mars. Þá kostaði slys í annarri kínverskri háhraðalest fjörutíu
manns lífið sumarið 2011. - gb
Lengsta háhraðalestarleið heims tekin í notkun:
Ferðin tekur átta tíma í stað 20
BRUNAR MILLI STAÐA Stolt kínverskra stjórnvalda tekið í notkun. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Benedikt, hefðuð þið viljað fá
fréttirnar fyrr?
„Simmi er alls ekki nógu snar í
snúningum.“
Benedikt Valsson er annar Hraðfréttamanna
ásamt Fannari Sveinssyni. Fyrir jól fengu þeir
að vita að þeir fengju að halda áfram með
Hraðfréttir í Kastljósi fram á næsta sumar.
Sigmar Guðmundsson er ritstjóri Kastljóss.
Sigmar B. Hauksson, fjölmiðla-
maður og fyrrverandi formað-
ur Skotveiði-
félags Íslands,
er látinn. Hann
lést á Landspít-
alanum aðfara-
nótt aðfanga-
dags eftir stutt
veikindi og bar-
áttu við krabbamein. Hann var
62 ára.
Sigmar hóf störf hjá Ríkis-
útvarpinu árið 1970. Hann
starfaði í útvarpi og sjónvarpi
og varð þjóðþekktur fyrir dag-
skrárgerð sína. Sigmar var
einnig formaður Skotveiði-
félags Íslands til margra ára.
Sigmar lætur eftir sig tvo
uppkomna syni og barnabörn.
Sigmar B.
Hauksson látinn
EGYPTALAND
Ferðamenn óttast
Sölumenn við píramídana miklu í
Egyptalandi eru orðnir svo aðgangs-
harðir að ferðafólk er tekið að óttast
þá. Undanfarin misseri hefur ferðafólki
fækkað, og hópast sölumenn nú
ógnandi að bílum þeirra sem koma.
ÍSRAEL
Fleiri byggingar leyfðar
Ísraelsstjórn hefur gefið leyfi fyrir þús-
und nýjum byggingum landtökumanna
á herteknum svæðum í Jerúsalem. Þar
með hafa verið veitt leyfi fyrir nærri
fimm þúsund nýjum íbúðum.
SUÐUR-AFRÍKA
Mandela af sjúkrahúsi
Nelson Mandela, 94 ára fyrrverandi
forseti Suður-Afríku, fékk að fara heim
af sjúkrahúsi í gær, eftir nærri þriggja
vikna legu þar vegna lungnasýkingar.
Hrísranar eru útbreiddir um mestallan heim-
inn en eru taldir vera upprunir í ræktunar-
löndum hrísgrjóna í Austur-Asíu, samkvæmt
upplýsingum Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Hrísrani lifir alfarið innanhúss og finnst þar
allan ársins hring. Hann lifir fyrst og fremst á
hrísgrjónum, maís og annarri harðri og grófri
kornvöru. Kvendýrin naga holur og verpa
eggjum sínum inni í hrísgrjónin og lirfurnar
sem klekjast út halda áfram að éta grjónin
innan frá þangað til þær hafa náð fullum
vexti. Þá púpa þær sig þar. Undir 17 gráðu
hita stöðvast allur þroski þeirra og við frostmark deyja þær. Hrísranar
fundust fyrst á Íslandi í Reykjavík árið 1931 í ómöluðum maís, en þeir
berast reglulega til landsins í kornvörupakkningum.
SPURNING DAGSINS
NÁTTÚRA „Við keyptum fyrsta
pokann seint í sumar og það varð
allt morandi þá. Allt í einu voru
komnir svartir maurar út um
allt,“ segir Sandra Clausen.
Hún keypti hamstrafóður
fyrir hamstur fjölskyldunnar í
sumar og geymdi það inni í skáp.
Skömmu seinna höfðu hrísranar,
litlar bjöllur, fjölgað sér gríðar-
lega um allt eldhúsið. Bjöllurn-
ar éta hrísgrjón og ýmsa korn-
vöru og kvendýrin verpa í þessar
vörur.
„Þetta var í tugatali, sérstak-
lega inni í þvottaherbergi þar
sem er góður raki og hiti. Svo
náðum við tökum á þessu í októ-
ber, við höfðum reynt það sjálf
en það var ekkert að ganga,“
segir Sandra, en hún fékk mein-
dýraeyði til að eyða dýrunum.
„Svo núna í desember byrjaði
þetta að koma aftur upp, en í
mun minna magni. En ég skaust
þá út með matinn, það var frost
og þeir drepast við frostmark.“
Þær bjöllur höfðu að öllum lík-
indum komið upp úr matardalli
hamstursins.
Steindór Aðalsteinsson hjá
Dýralandi, sem flutti inn umrætt
fóður, segir því miður ómögulegt
að koma algjörlega í veg fyrir að
skordýr af þessu tagi berist hing-
að til lands í fóðri. „Þetta getur
alltaf komið upp á en við lend-
um ekki oft í þessu. Þetta ger-
ist vegna þess að fóðrið er ekki
geislað, sem er merki um að fóðr-
ið sé ferskt,“ segir Steindór.
„Þetta hefur fylgt fóðri sem
flutt hefur verið inn til lands-
ins frá því að innflutningur
hófst. Þetta er ekkert hættulegt
Verpa eggjum í hrísgrjón
og bæði bjöllurnar og lirfurnar
deyja í frosti á tveimur sólar-
hringum. Þetta kemur bara upp
á sumrin vegna þess að bjöllurn-
ar klekjast út við talsvert mikinn
hita,“ segir Steindór. Þess vegna
sé best að geyma fóður ekki á
heitum eða rökum stað. „Það
er best að geyma aldrei fóður
nálægt matvælum, og geyma það
í alveg lokuðum umbúðum.“
thorunn@frettabladid.is
HAMSTUR Í hamstrafóðri geta leynst skordýr eins og ranabjöllur.
Ranabjöllur flugu
út úr skápunum
Hrísranar gerðu fjölskyldu lífið leitt í haust, en þær bárust á heimili hennar með
hamstrafóðri í sumar. Innflytjandi segir aldrei hægt að koma alveg í veg fyrir að
skordýr berist til landsins með þessum hætti en það sé þó mjög sjaldgæft.
Bæjarstjórn veitir bæjarritara á Akranesi frest til að andmæla ákvörðun bæjarstjórnar:
Jón Pálmi fær tvær vikur til andmæla
AKRANES Starfandi bæjarstjóri var
leystur frá vinnuskyldu sinni í síðustu
viku til 7. janúar 2013. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
hátíðarkalkúnn
– umvafinn ferskleika
gottimatinn.is