Fréttablaðið - 27.12.2012, Blaðsíða 29
HOLLT UM HÁTÍÐIR
Granatepli er skemmtilegur ávöxtur. Inni í honum eru lítil ber
sem eru safarík og góð auk þess að vera afar holl. Berin eru
frábær í salöt, heilsudrykki, með sjávarréttum eða í tertur
og eftirrétti. Það getur verið vandasamt að ná berjunum úr
hýðinu en oft nægir að banka í ávöxtinn þegar hann hefur verið
opnaður og þá losna þau.
Árla morguns heldur Chad Keilen hjá Heilsuhóteli Íslands af stað með hópinn sinn í daglegan 20 mínútna
göngutúr. „Eftir það förum við í gegnum
léttar æfingar. Bæði styrktar- og teygju-
æfingar. Markmiðið er að losa um liðina
og koma líkamsvökvum af stað. Líkaminn
er að megninu til vökvi. Ef við hreyfum
okkur ekki safnast hann fyrir og verður
gamall. Með hreyfingu og teygjum komum
við öllu af stað og fáum nýjan vökva inn í
liðina og hreyfingu á vökvaflæðið. Líkaminn
á að vera eins og hrein og tær íslensk á.
Ekki eins og pollur fullur af óhreinindum,“
segir Chad um tilgang æfinganna sem hann
kennir fólki á Heilsuhóteli Íslands.
Hreyfingarleysi er eitt stærsta heilsu-
farsvandamál fólks í dag. Margir vinna
við skrifborð og hreyfa sig lítið yfir daginn
en fara svo í ræktina og hlaupa á bretti í
klukkutíma. „Á Heilsuhótelinu kenni ég fólki
mjög einfaldar æfingar sem það getur gert
heima hjá sér, í vinnunni eða hvar sem er.
Einfaldar æfingar á hverjum degi eru betri
en að ætla sér að bæta upp margra daga
hreyfingarleysi á einum laugardagsmorgni.
Einfaldleikinn gerir það að verkum að fólk
nennir að gera æfingarnar og man þær.“
Heildarmeðferðin á Heilsuhótelinu er
umfangsmikil og miðar að því að mennta
fólk, upplýsa það og senda það heim með
þekkingu til að halda áfram að lifa heil-
brigðara lífi á eigin spýtur. Þar er andlega
hliðin ekki síðri en sú sem snýr að líkama
og næringu. „Fólk getur sagt sér að það sé
veikt og líkaminn lasinn, það skilar sér bara
í vanlíðan. Ég kenni fólki að hugsa jákvætt
um líkamann, hafa trú á honum, þykja
vænt um hann og ekki vorkenna sér yfir
veikleikum hans. Það er svo margt sem við
getum gert með jákvæðri hugsun. Það sem
skiptir þó mestu máli í þessu er einfald-
leikinn. Köllun mín er að hjálpa fólki að ná
betri heilsu, betri líðan og meiri lífsgæðum
á einfaldan hátt.“
HUGMYNDAFRÆÐI
EINFALDLEIKANS
HEILSUHÓTELIÐ KYNNIR Chad Keilen, nuddari, einkaþjálfari og næringar-
fræðingur hjá Heilsuhóteli Íslands, lítur á það sem köllun sína að hjálpa fólki
að öðlast betra líf. Einfaldleikinn er lykillinn að bættri heilsu.
Lokað laugardaginn 29. desember. Eirberg ehf. Stórhöfða 25. eirberg.is
Óskum landsmönnum
gleðilegra jóla, árs og friðar
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Þú mætir - við mælum og aðstoðum
www.misty.is
Opið frá 10-18 virka daga.
lau 29. des kl. 10-14. Gamlársdag kl. 10-12
Jólakílóin í burtu !!
teg Active -
íþrót tahaldarinn
frábæri sem fæst í
D,DD,E,F,FF,G,GG,H
skálum á kr. 9.750, -
Sími 512 8040 www.heilsuhotel.is
Næstu námskeið við
Heilsuhótel Íslands
Heilsunámskeið vorönn 2013
4. - 18. janúar
8. - 22. mars
3. - 17. maí
JÁKVÆTT
HUGARFAR
Chad Keilen segir
mikilvægt að
hugsa jákvætt um
líkamann og þykja
vænt um hann.
MYND/PJETUR