Fréttablaðið - 27.12.2012, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 27.12.2012, Blaðsíða 4
27. desember 2012 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 DÓMSMÁL Alls hefur 171 karlmaður verið sakfelldur í Hæstarétti fyrir kynferðisbrot gegn barni á árunum 1920 til 2011. Dómarnir eru 162 og þar af eru stúlkur þolendur í 144 málanna, eða í tæplega 90 prósent- um tilvika. Engin kona hefur verið sakfelld á Íslandi fyrir kynferðis- brot gegn barni, hvorki í héraði né Hæstarétti. Þetta eru niðurstöður rannsóknar Svölu Ísfeld Ólafsdóttur, dósents við lagadeild Háskólans í Reykjavík, á öllum dómum Hæstaréttar frá stofn- un réttarins árið 1920 til 2011 þar sem sakfellt hefur verið fyrir kyn- ferðisbrot gegn barni. „Markmið rannsóknarinnar er að draga upp mynd af gerendum þessara brota. Hverjir fremja brot- in, hvort tengsl séu á milli geranda og þolanda, á hvaða aldri gerendur eru og hver bakgrunnur þeirra sé,“ útskýrir Svala. Algengasta aldursbil gerenda og þolenda er 26 til 30 ár þegar menn- irnir brutu af sér en meðalaldur við brot tæp 37 ár. Langflestir þolendur voru stúlkur á aldrinum 7 til 12 ára. Samkvæmt rannsókn Svölu þekkj- ast gerandi og þolandi í um helm- ingi tilvika. Af þeim voru tæplega 25 prósent gerenda í nánustu fjöl- skyldu brotaþolans, oftast feður og stjúpfeður. Einungis fjögur prósent gerendanna, átta af 171, höfðu áður hlotið dóm fyrir kynferðisbrot, þar af brutu fjórir gegn barni. Í sextán málum var fjallað um kynhneigð gerendanna og hvort þeir teldust haldnir barnagirnd. Sú var niður- staðan í sex dómum af 162. sunna@frettabladid.is ABDUL-AZIZ JASSEM AL SHALLAL Segir Sýrlandsher orðinn að glæpa- gengi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HÆSTIRÉTTUR Frá árinu 1920 til 2011 hefur 171 karlmaður verið dæmdur í Hæsta- rétti fyrir barnaníð. Í tæplega 90 prósentum tilvika hafa stúlkur verið þolendur. SÝRLAND, AP Abdul-Aziz Jassem al Shallal, yfirmaður sýrlensku her- lögreglunnar, hefur flúið land og gengið til liðs við uppreisnarmenn. Hann segir ástæðuna þá að her- inn sé farinn að eyðileggja borgir og fremja fjöldamorð á saklausu fólki. „Herinn hefur farið út af spor- inu,“ segir hann, „og er hættur að sinna því meginverkefni sínu að vernda fólk en er í staðinn orðinn að glæpagengi sem stundar morð og eyðileggingu.“ Tugir herforingja hafa nú hlaupist úr röðum stjórnarliða í Sýrlandi en al Shallal er hæst sett- ur þeirra allra. Margir hinna hafa einnig sagt ástæðu liðshlaups síns vera grimmdarverk sem hermenn fremja gegn almenningi. Stjórnarherinn á nú í vök að verj- ast í úthverfum höfuðborgarinnar Damaskus og víðar í landinu, þar sem uppreisnarmenn sækja hart fram. Átökin í landinu hafa kostað meira en 40 þúsund manns lífið og talið er að allt að 700 þúsund manns hafi flúið land. - gb 228,8443 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 126,03 126,63 204,82 205,82 166,54 167,48 22,319 22,449 22,626 22,76 19,333 19,447 1,4976 1,5064 194,41 195,57 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR GENGIÐ 21.12.2012 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Hæstiréttur sakfelldi 171 níðing á 90 árum Flestir barnaníðingar eru ungir karlmenn í samböndum og launaðri vinnu. Þol- endur eru í langflestum tilvikum ungar stúlkur sem þekkja ofbeldismanninn. 171 karlmaður hefur verið dæmdur sekur fyrir barnaníð í Hæstarétti síðustu 90 ár. MUNUR Á EÐLI BROTA Fréttablaðið greindi frá rannsókn Svölu fyrir skömmu. Þar kom fram að munur er á eðli brota eftir kyni brotaþola. Til að mynda eru ókunn- ugir gerendur í meiri- hluta þegar drengir eiga í hlut. Samkvæmt niðurstöðum Svölu er hinn dæmigerði afbrotamaður sem brýtur kynferðislega gegn barni um 37 ára karlmaður, giftur eða í sambúð. Hann stundar launaða vinnu og hefur hreinan sakaferil. Hinn dæmigerði þolandi er stúlka sem ofbeldismaðurinn þekkir, á aldrinum 7 til 12 ára. Flestir ungir, í launaðri vinnu og sambúð DÓMSMÁL Umbun af einhverju tagi frá ofbeldis- mönnum til þolenda virðist einkenna kynferðis- brot gegn drengjum. Algengast er að gerendur í slíkum málum reyni að múta drengjum með pen- ingum, en einnig er sælgæti, sígarettur og áfengi algengt form umbunar frá ofbeldismönnum til þolenda sinna. Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfir- gripsmikilli rannsókn Svölu Ísfeld Ólafsdóttur, dósents við lagadeild Háskólans í Reykjavík, á öllum dómum Hæstaréttar frá stofnun hans árið 1920 til loka apríl síðastliðins er varða kynferðis- brot gegn drengjum. Samkvæmt skoðun á dómunum virðast dreng- ir vera líklegri en stúlkur til að vera misnotaðir kynferðislega af ókunnugum, en þolandi þekkti ekki ofbeldismanninn í meira en helmingi til- vika. Þolendur voru kunnugir gerandanum í 33 prósentum tilvika og í einu tilviki misnot- aði maður ungan frænda sinn í tólf ár. Í fjöru- tíu prósentum dómanna var um endurtekið brot að ræða. „Má telja það nokkuð athyglisvert í ljósi þess hve margir gerendur voru drengjunum ókunn- ugir og því kannski eðlilegt að gera ráð fyrir að svona nokkuð myndi ekki henda sama þolandann nema einu sinni. Það sem virðist skýra þetta er hversu mörgum drengjanna var umbunað,“ segir Svala í skýrslu sinni. „Þetta er aðferð sem ger- endurnir notuðu til þess að komast í samband við drengina og til þess að halda misnotkuninni áfram. Þeir freista þeirra með gjöfum.“ Hún bendir á að í ljósi þess að gerendur eru oftast ókunnugir drengjunum njóti þeir þar með ekki trausts þeirra. Þetta sé því leið þeirra til að tryggja sér þagmælsku. - sv / sjá síðu 8 Algengt að kynferðisbrota- menn gefi drengjum gjafir Meirihluti dæmdra kynferðisbrotamanna sem brjóta gegn drengjum reynir að kaupa þögn þeirra með gjöfum. Peningar eru algengustu múturnar, samkvæmt nýrri rannsókn á öllum dómum Hæstaréttar frá 1920 til 2012. Samtals hafa fallið 22 dómar þar sem ákært var fyrir kynferðisbrot gegn dreng frá árinu 1920 til 23. apríl 2012. 25 þolendur af 44 fengu gjafir af einhverju tagi frá ofbeldismanninum. ➜ Reyndu að kaupa þögn 25 Peningar19 2 4 1 7 2 2 Sælgæti Áfengi Sígarettur Ökutímar Utanlandsferð Bíóferð 16 karlar sakfelldir í Hæstarétti fyrir kynferðisbrot gegn drengjum. EPSON SKJÁVARPAR FRÁ 79.990 WWW.SM.IS Sýrlenskur herforingi flúði land og gekk til liðs við uppreisnarmenn: Sakar herinn um fjöldamorð Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Laugardagur Stormur NV til en mun hægari vindur austanlands. HLÝNAR í bili með slyddu um tíma en gengur í norðan storm með snjókomu á Vestfjörðurm annað kvöld og vonskuveður verður norðvestanlands á laugardag. Á sunnudag dregur úr vindi og frystir um allt land. 0° 15 m/s 1° 19 m/s 0° 11 m/s 3° 20 m/s Á morgun Fremur hægur vindur víða en stormur á Vestfj örðum um kvöldið. Gildistími korta er um hádegi 2° 0° 3° 1° 0° Alicante Aþena Basel 18° 16° 8° Berlín Billund Frankfurt 7° 3° 10° Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn 7° 4° 4° Las Palmas London Mallorca 21° 9° 16° New York Orlando Ósló 7° 16° -6° París San Francisco Stokkhólmur 12° 11° 1° -1° 9 m/s 1° 9 m/s -3° 8 m/s -2° 12 m/s -1° 8 m/s -1° 15 m/s -6° 12 m/s 2° 1° 3° 3° 2° HEIMURINN 1 4 2 3 Stjórnarskráin samþykkt 1EGYPTALAND Efri deild egypska þingsins kom saman í gær í fyrsta sinn eftir að ný stjórnarskrá var samþykkt með 66 prósentum atkvæða. Efri deildin, sem hefur verið valdalítil, fær nú fullt löggjafarvald þar til efnt hefur verið til kosninga til neðri deildar samkvæmt nýju stjórnarskránni. Stjórnar- andstaðan hefur gagnrýnt nýju stjórnarskrána og hyggst berjast áfram gegn henni. Glímt við efnahaginn 2SPÁNN Shinzo Abe, nýkjör-inn forsætisráðherra Japans, segir að fyrsta verk sitt verði að vinna bug á efnahagskreppunni. „Takist ekki að endurheimta öflugt efnahagslíf er engin framtíð fyrir Japan,“ sagði Abe þegar hann tók við embætti í gær. Hann er sjöundi forsætisráðherra landsins á sex árum en gegndi embættinu áður á árunum 2006 til 2007. Vilja umbætur 3KÍNA Meira en 70 þekktir kínverskir fræðimenn og lögfræðingar hvetja kínverska Kommúnistaflokkinn til þess að gera hófsamar umbætur í lýðræðisátt, meðal annars með því að aðskilja Kommúnistaflokkinn frá stjórnsýslu landsins. Skorað er á ráðamenn að virða stjórnarskrá landsins, verja málfrelsi, hvetja einkafyrirtæki til dáða og leyfa dómsvaldinu að starfa sjálfstætt. Eldur í flugeldum 4NÍGERÍA Mikill eldur kviknaði eftir að sprenging varð í flugeldageymslu í Lagos, stærstu borg Nígeríu, í gær. Þykkur reykur steig upp af geymslu- húsinu og voru íbúðarhús í nágrenninu í hættu. Sprengingin var svo öflug að rúður titruðu í nokkurra kílómetra fjarlægð. Flugeldar og púðurkerlingar eru mikið notaðar í Nígeríu um jól og áramót. Tilraunir til að banna notkun þeirra í ár hafa ekki borið árangur. RÚSSLAND, AP Báðar deildir rúss- neska þingsins hafa nú samþykkt lög sem banna ættleiðingar rúss- neskra barna til Bandaríkjanna. Vladimír Pútín forseti hefur sagst ætla að staðfesta lögin. Þetta er svar rússneska þings- ins við nýjum bandarískum refsiaðgerðum gegn rússneskum embættismönnum sem orðið hafa uppvísir að mannréttindabrotum. Mörgum Rússum er meinilla við ættleiðingar barna til Banda- ríkjanna. - gb Ættleiðingarlög samþykkt: Engin börn til Bandaríkjanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.