Fréttablaðið - 27.12.2012, Blaðsíða 56
27. desember 2012 FIMMTUDAGUR| SPORT | 48
Á L E I Ð T I L Ú T L A N D A
OPTICAL STUDIO
FRÍHÖFN LEIFSSTÖÐ
Verslaðu á hagstæðara verði í okkar fullbúnu
gleraugnaverslun á fríhafnarsvæðinu í Leifsstöð
Sjónmælingar (tímapantanir):
Optical Studio Smáralind, s. 528 8500 og Optical Studio Keflavík, s. 4213811
ALLT AÐ 50% ÓDÝRARI
EN SAMBÆRILEG VARA Á MEGINLANDI EVRÓPU
SPORT
FÓTBOLTI Alfreð Finnbogason hefur átt magnað ár
sem lauk með viðeigandi hætti þegar hann tryggði
Heerenveen sigur í síðasta leik liðsins fyrir jólafrí.
Alfreð var þarna að skora sitt fjórtánda mark í
hollensku deildinni á tímabilinu en hafði áður rofið
tíu marka múrinn hjá sænska liðinu Helsingborg
og skorað eitt að auki fyrir Lokeren í belgísku
deildinni.
Mörkin hans urðu því alls 34 á árinu 2012; hann
skoraði 32 mörk fyrir þrjú félög í þremur löndum
að viðbættum þeim tveimur sem hann skoraði fyrir
íslenska landsliðið.
Ekki hefur verið haldið úti tölfræði yfir mörk
íslenskra knattspyrnumanna á einu almanaksári
en Fréttablaðið hefur nú komist að því að Alfreð
hafi í raun bætt með þessu 33 ára gamalt markamet
Péturs Péturssonar.
Árið 1979 var Pétur á tuttugasta aldursári og á
sínu fyrsta og öðru tímabili með hollenska félaginu
Feyenoord. Pétur skoraði alls 32 mörk í 45 leikjum
með Feyenoord á árinu 1979 og við lok þess var
hann í hópi markahæstu manna Evrópu.
Alfreð er á 23. aldursári og skoraði alls 34 mörk í
48 leikum, þar af 32 mörk í 42 leikjum fyrir félags-
lið sín.
Pétur kom til hollenska félagsins eftir magnað
tímabil með Skagamönnum 1978 þar sem hann
skoraði 24 mörk í deild (19) og bikar (5). Hann lék
sinn fyrsta leik með Feyenoord í október 1978 og
náði að skora tvö mörk áður en deildin fór í vetrar-
frí.
Þegar deildin fór aftur í gang eftir vetrarfrí-
ið var íslenski glókollurinn kominn inn í hlutina.
Hann skoraði reyndar ekki í fjórum fyrstu leikj-
unum en lék betur og betur með hverjum leik og
fór síðan að raða inn mörkum á lokakaflanum, þar
sem hann var meðal annars með tíu mörk í ellefu
leikjum.
Pétur spilaði ekki síðasta leik tímabilsins, þar
sem hann var í eldlínunni með landsliðinu á sama
tíma. Pétur spilaði fjóra landsleiki þetta ár en tókst
ekki að skora. Það eru einmitt landsliðsmörkin tvö
hjá Alfreð sem skila honum upp fyrir Pétur því þeir
félagar skoruðu jafnmörk fyrir félög sín á þessum
miklu markaárum sínum.
Pétur kom reyndar til Íslands í lok júlí 1979 og
skoraði þá 6 mörk í 4 leikjum á móti ÍA, ÍBV og KA
en mörk í vináttuleikjum teljast ekki með enda er
hér um að ræða mörk í opinberum leikjum á alþjóð-
legum vettvangi. Að sama skapi eru ekki tekin
mörk í íslensku deildinni en það væri vissulega efni
í aðra samantekt.
Pétur hóf tímabilið 1979-80 á því að setja met
sem stendur enn í Hollandi þegar hann skoraði í
átta fyrstu deildarleikjunum. Snillingar eins og
Romario, Ronaldo, Marco van Basten og Ruud van
Nistelrooy náðu aldrei að ógna Íslendingnum.
Pétur skoraði alls 22 mörk í fyrstu 24 leikjum
tímabilsins í öllum keppnum og var markahæsti
leikmaður hollensku deildarinnar í árslok með 16
mörk í 17 leikjum en endaði tímabilið í 2. sætinu
með 23 mörk í 33 leikjum. Hann meiddist illa á hné
í sjötta leik tímabilið eftir og náði aldrei að komast
í sama markaform og hann var í þetta magnaða
tímabil fyrir 33 árum.
Hér á síðunni má sjá samanburð á afrekum
þeirra Alfreðs og Péturs en það verður gaman að
sjá hvernig Alfreð tekst upp fyrir framan mark
andstæðinganna þegar árið 2013 er runnið í garð.
ooj@frettabladid.is
Alfreð tók markametið af Pétri
Alfreð Finnbogason skoraði 34 mörk í opinberum leikjum á alþjóðlegum vettvangi á árinu 2012, fl eiri en nokkur annar íslenskur
knattspyrnumaður í sögunni. Pétur Pétursson var búinn að eiga metið í 33 ár, en hann skoraði 32 mörk fyrir Feyenoord árið 1979.
Mörk Péturs eftir mánuðum
Mörk Péturs 1979
Deildarleikir: 34 leikir / 26 mörk
Bikarleikir: 1/2
Evrópuleikir: 6/4
Landsleikir: 4/0
Samtals: 45/32
Fyrir Feyenoord: 41/32
Fyrir Ísland: 4/0
JANÚAR 0 MÖRK
FEBRÚAR 0 MÖRK
MARS 0 MÖRK
APRÍL 5 MÖRK
JÚNÍ 0 MÖRK
JÚLÍ 0 MÖRK
ÁGÚST 5 MÖRK
SEPTEMBER 5 MÖRK
OKTÓBER 8 MÖRK
NÓVEMBER 3 MÖRK
DESEMBER 1 MARK
Mörk Alfreðs eftir mánuðum
Mörk Alfreðs 2012
Deildarleikir: 35 leikir / 27 mörk
Bikarleikir: 3/4
Evrópuleikir: 4/1
Landsleikir: 6/2
Samtals: 48/34
Fyrir Lokeren: 2/1
Fyrir Helsingborg: 22/13
Fyrir Heerenveen: 18/18
Fyrir Ísland: 6/2
0 MÖRK JANÚAR
1 MARK FEBRÚAR
3 MÖRK MARS
2 MÖRK APRÍL
0 MÖRK JÚNÍ
5 MÖRK JÚLÍ
3 MÖRK ÁGÚST
8 MÖRK SEPTEMBER
5 MÖRK OKTÓBER
2 MÖRK NÓVEMBER
4 MÖRK DESEMBER