Fréttablaðið - 27.12.2012, Blaðsíða 22
27. desember 2012 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 22
Nú þegar áramótin eru
fram undan munu lands-
menn fagna nýju ári.
Margir njóta áramótanna
með því að skála í mis-
sterkum veigum. Það til-
heyrir á þessum tímamót-
um. En hvað gerist síðan
þegar halda skal heim á
leið og erfitt að fá leigubíl?
Er ekki í lagi að aka eftir
eitt eða tvö glös? Er ég
bara ekki betri ökumaður?
Mér finnst það að minnsta
kosti stundum.
Ekki er óeðlilegt að þeir sem aka
eftir að hafa neytt áfengis finnist
það sjálfum eða að þeir reyni að
réttlæta hegðun sína með þessum
rökum. Sem betur fer sýna tölur að
dregið hefur úr ölvunarakstri en á
móti hefur fíkniefnaakstur aukist.
Fyrir 10 árum sýndu tölur að um
33% ökumanna höfðu ekið undir
áhrifum áfengis og 35% farþega
viðurkenndu að hafa setið í bíl með
ölvuðum ökumanni.
Hvað með hálfan bjór?
Vísindamenn hafa marg sannað
að lítið magn áfengis hafi áhrif
á hæfni ökumanna til að aka til
hins verra. Það er talið að strax
við 0,2 prómill áfengis í blóði
dragi úr hæfni ökumanns til
aksturs og mætti ætla að það
jafngilti hálfum bjór hjá sumum
einstaklingum.
Áhrifin
En hvaða áhrif hefur áfengið á
ökumenn? Nefnum nokkur dæmi:
1.Ökumaður undir áhrifum áfengis á erfiðara með að
einbeita sér að einum þætti
lengi í einu og einbeit-
ingin minnkar, auk þess
sem hæfnin til að ein-
beita sér að tveimur eða
fleiri atriðum samtímis
minnkar verulega. Þessi
eiginleiki er mjög mikil-
vægur hjá ökumanni. Að
þurfa að fylgjast sam-
tímis með bíl á ferð og
gangandi vegfaranda
getur orðið mjög erfitt.
2.Viðbragð lengist verulega og við 0,4-
0,5 prómill (u.þ.b. einn sterkur
bjór að meðaltali) getur það
aukist um 35%. Þetta skýrir
meðal annars hvers vegna ölv-
aðir ökumenn lenda gjarna í
aftanákeyrslum. Við 0,5-1,5 pró-
mill er hætta á banaslysi allt að
13 sinnum meiri.
3.Eftir einn bjór getur mis-tökum í akstri fjölgað allt
að 25%. Rangar ákvarðanir
geta skipt sköpum þegar taka
þarf ákvörðun á innan við einni
sekúndu, eins og oft vill verða í
akstri.
4.Samhæfing milli tauga og vöðva versnar. Hreyfingar
stýris verða erfiðari, notkun
bensíngjafar, kúplingar og
bremsu verður ónákvæmari.
Þetta skýrir hvers vegna erfið-
ara er fyrir ökumenn undir
áhrifum að halda bílnum á rétt-
um stað á götunni: Þegar skoðuð
er tjónatíðni ölvaðra ökumanna,
má rekja 49% þeirra til þess að
ekið er á mannvirki, ljósastaura,
umferðarmerki eða kyrrstæða
bíla.
5.Sjón og heyrn verður lak-ari. Ökumaðurinn á erfið-
ara með að greina aðra ein-
staklinga, sérstaklega í myrkri.
Hann sér verr til hliðanna og
greinir því síður umferðina, bíla
eða fólk sem ekki er beint fram-
an við bílinn.
6.Dómgreind minnkar og hæfnin til að meta aðstæð-
ur rétt einnig. Þetta gerir það
að verkum að við erfiðar eða
hættulegar aðstæður er við-
komandi mjög hættulegur. Fólk
með skerta dómgreind telur
sig geta ekið eftir að hafa neytt
áfengis. Þótt það hafi haft þann
ásetning í huga í upphafi að aka
ekki undir áhrifum er hann ekki
lengur í huga fólksins þegar það
finnur bíllykilinn í vasanum á
leið heim.
Þessir örfáu punktar um áhrif
áfengis á aksturshæfni ættu að
duga til að sannfæra okkur um
að akstur og áfengi sé lífshættu-
leg blanda og nú þegar hátíð
fer í hönd er mikilvægt að hafa
þetta í huga.
Endum ekki jólahátíðina með
ölvunarakstri.
Einstaklings og atvinnu-
frelsi – frelsisstefna eru
einkunnarorð og grunn-
stef Hægri grænna,
flokks fólksins. (HG).
Flokkurinn er grænn
borgaraflokkur. HG er
f lokkur tíðarandans,
raunsæisstjórnmála
og er umbótasinnaður
endurreisnar flokkur. HG
er landsmálaflokkur og
ætlar ekki að taka þátt í
bæjar- og sveitarstjórnar-
kosningum. Framtíð
Íslands er samofin framleiðslu
á matvælum, orku og blómlegri
ferðaþjónustu. Við viljum Ísland
sem stærsta þjóðgarð Evrópu,
friðland dýralífs og náttúru.
Ísland er fjársjóður framtíðar-
innar.
Raunsær umhverfisverndar-
flokkur
HG er umhverfisverndar flokkur
og hugsar um hnattræn áhrif
umhverfisins á ábyrgan hátt.
Raunsæisstefna flokksins vill
stefnumarkandi umhverfis lausnir
t.d. þar sem erfitt er að vernda
almannaeign. Þessi raunsæis-
stefna er stundum kölluð blágræn
hugmyndafræði, „Blue Green“ eða
„Conservative Green“, en stefnan
aðhyllist skynsamleg umhverfis-
væn haggildi. Flokkurinn vill
byggja upp grænt markaðs-
hagkerfi á Íslandi. Bæði náttúru-
verndarsinnaðir íhaldsmenn sem
og frjálslyndir félagshyggjumenn
eða allir þeir sem aðhyllast frjálst
markaðshagkerfi geta fylkt sér
um stefnu flokksins um alhliða
skynsam lega notagilda náttúru-
vernd. Íslendingar hafa ávallt
verið í farabroddi fyrir náttúru-
vernd og sýnt það í verki. Það er
stefnan að það verði aðall okkar.
Vandamálið er fjórflokkurinn
Það er ljóst að við eigum sem þjóð
og einstaklingar við ýmis vanda-
mál að stríða, sem fjórflokkurinn
ber alfarið stjórnmála-
lega ábyrgð á. Það þýðir
að stjórnmálastéttin
hefur sýnt sig að vera
oft vanhæf til verkanna,
en vonandi geta flokk-
arnir þó endurnýjað líf-
daga sína með því að nýtt
efnilegt og praktískt fólk
komist þar að. Annað
vandamál er að stjórn-
málamenn efna gjarnan
ekki þau fyrirheit, sem
þeir gefa fyrir kosning-
ar, fyrirheit um að takast
á við vanda, sem þeir samt vita
að þeir valda ekki. Það lýsir t.d.
lélegum stjórnarháttum og sið-
bresti, þegar menn sjá fram á það
að þeir ráða ekki við verkefnin,
að reyna þá með blekkingum og
orðfimi að koma sökinni yfir á
aðra, en óafvitandi bersýnir það
þekkingar- og hæfileikaskort
þeirra þegar upp er staðið. Það
er því algjör nauðsyn að skipta út
fólki, sem á einn eða annan hátt
hefur ekki staðið sig í stjórnun
landsins. Við viljum öll nýtt
Alþingi með fólki, sem ber ríkan
kærleika til landsins og þjóð-
arinnar og skilur engan okkar
útundan. Fólk með vit og þekk-
ingu, hugsjónir og lausnir. Við
eigum okkar litla land, við erum
ein lítil fjölskylda, tölum sama
tungumálið og með sömu hags-
munina öll saman sem eitt. Þeir,
sem vilja vinna í þessum anda,
munu ná kjöri í næstu kosning-
um. En ef það því miður reynist
ekki þor eða vilji hjá meirihluta
þjóðarinnar að ná fram slíkum
breytingum, þá verður hér áfram
allt eins og það er og þá meira af
því sama og því sama.
Úrelt embættismannakerfi
Gamla íslenska fjórflokks- og
embættismannakerfið er úr
sér gengið. Það sýndi sig vel í
aðdraganda íslenska efnahags-
hrunsins og svo til dagsins í
dag, en Alþingi er núna nánast
óstarfhæft svo sem menn vita.
Því miður er ekki hægt að segja
að hlutirnir hafi mikið breyst
eftir hrun, nema þá til hins verra.
Vandamálið var og er samtrygg-
ingin og mjög náin tengsl stjórn-
málamanna við embættismenn
við verkalýðshreyfinguna við
fjármagnseigendur. Þetta marg-
eyki stöðnunarinnar er það, sem
heldur landinu í heljargreipum
verðtryggingarinnar í gegn-
um handstýrða verðbólgu, sem
orsakast af of háum neyslu-
sköttum, peningastefnu Seðla-
bankans og 3,5% raunávöxtunar-
kröfu lífeyrissjóðanna.
Smátt er smart
Skilgreina þarf betur hlutverk
hins opinbera, þannig að það þjóni
hlutverki sínu gagnvart fólkinu í
landinu og standi vörð um grunn-
þjónustuna. Tómarúm hefur
skapast gagnvart heimilunum
og litlum og meðalstórum fyrir-
tækjum, en stefna stjórnvalda
hefur hingað til verið að standa
vörð um stórfyrirtæki og fyrir-
tækjasamstæður í skjóli fjár-
málastofnana, hvort sem er þau
eru í ríkis- eða í einkaeigu. Þessu
verður að breyta. Þetta á sérstak-
lega við um ákvarðanir varðandi
heilbrigðisþjónustuna og upp-
byggingu heilbrigðiskerfisins.
Hægri grænir ætlar að taka allar
nýlokaðar spítala- og heilsugæslu-
stofnanir strax aftur í notkun og
auka nálægðina aftur við þjón-
ustu við fólkið, sem gleymist allt
of oft í háloftum herranna.
Hægri grænir er flokkur fólks-
ins og flokkur heiðarleika, lausna
og breyttra stjórnarhátta.
➜ Skilgreina þarf betur
hlutverk hins opinbera,
þannig að það þjóni
hlutverki sínu gagnvart
fólkinu í landinu og standi
vörð um grunnþjónustuna.
➜ Þessir örfáu punktar um
áhrif áfengis á aksturshæfni
ættu að duga til að sannfæra
okkur um að akstur og
áfengi sé lífshættuleg blanda
og nú þegar hátíð fer í hönd,
er mikilvægt að hafa þetta í
huga.
Smáralind | Sími 512 1330
Laugavegi 182 | Sími 512 1300
Fyrir fyrirtækið þitt
Opið til 18.00 milli jóla og nýárs.
Opið til 16.00 29. des.
Fyrirtækjadagar
Nýr
iMac
Hægri grænir er
fl okkur fólksins
Það kemur ekkert fyrir mig!
UMFERÐ
Einar
Guðmundsson
formaður Brautar-
innar– bindindis-
félags ökumanna
STJÓRNMÁL
Guðmundur
Franklín Jónsson
formaður Hægri
grænna, fl okks
fólksins