Fréttablaðið - 27.12.2012, Page 30

Fréttablaðið - 27.12.2012, Page 30
FÓLK|TÍSKA GLIMMER OG ÝKT AUGNMÁLNING VILLT OG TRYLLT Einn dag á ári má algerlega tapa sér í glimmeri og glans en það er daginn sem gamla árið er kvatt og hinu nýja fagnað. FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir | Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 Þennan dag má ýkja augnmálninguna um helming, hafa túberað hár og jafnvel setja upp fjaðraskúf og hatt. Gull- og silfurlitaðir glimmerkjólar eru alger klassík þennan dag og ekkert að því að fjár- festa í einum slíkum sem má draga fram þennan eina dag – ár eftir ár. Sniðið skipt- ir ekki öllu. Bara að kjóllinn glitri. Slíka kjóla er víða að finna fyrir jól og áramót, bæði splunkunýja og notaða. Þeir ættu ekki að fara fram hjá neinum enda stirnir á þá úr órafjarlægð sem tryggir að eig- andinn verður hvarvetna aðal- stjarnan. EINFALDUR EN EFTIR- TEKTARVERÐUR Sniðið er einfalt en kjóllinn fer samt ekki fram hjá neinum. Hér er leikkonan Kate Bosworth áramótaleg. STJARNA Leikkonan Berenice Marlohe í gullbombu á Bafta- verðlaunahátíðinni sem var haldin í Los Angeles í nóvember. SILFRUÐ FRÁ TOPPI TIL TÁAR Söng- og leik- konan Ninel Conde á Grammy-verðlaun- unum um miðjan nóvember. GULLSLEGIN Leikkonan Rosamund Pike, sem leikur á móti Tom Cruise í nýjustu mynd hans, Jack Reacher, í munstruðum og glitrandi gullkjól. KLASSÍSK Leikkonan Isla Fisher í klassísk- um áramótakjól. Áramótasprengja -40% af kjólum og jökkum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.