Fréttablaðið - 27.12.2012, Side 31
| FÓLK | 3TÍSKA
Hinn tíu ára gamli Romeo Beckham hefur nú fetað í
fótspor foreldra sinna í fyrirsætuheiminum. Hann er
nýjasta stjarnan fyrir vor- og sumartísku Burberry
2013. Móðir hans er þekkt í fyrirsætu- og hönnunar-
heiminum og það var í gegnum hana sem sonurinn
var valinn í þetta hlutverk.
Christopher Bailey, yfirhönnuður hjá Burberry,
óskaði eftir Romeo í fyrirsætustarfið og foreldrarnir
virðast hafa verið sáttir við það.
Á myndum klæðist drengurinn klassískum
Burberry-frakka, með bindi og með hina frægu köfl-
óttu regnhlíf í hönd.
Romeo er vel greiddur og herramannslegur á
myndunum, sem teknar voru af ljósmyndaranum
Mario Testino. Daily Mail birtir myndirnar og
hafa þær vakið mikla athygli víða um heim, enda
Beckham-fjölskyldan ein sú frægasta í heimi. Hjónin
hafa verið ófeimin að birta myndir af sér með börn-
um sínum.
Beckham-börnin eru fjögur, þrír drengir og ein
stúlka, sem er ársgömul. David Beckham sjálfur
er fyrirsæta fyrir nærföt undir eigin nafni í H&M.
Fjöl skyldan þénar því mikla peninga á fyrirsætu-
bransanum.
■ FLOTTUST
Tímaritið Forbes hefur valið
tólf best klæddu konur ársins.
Blaðamaður tímaritsins segir
að þegar Gwyneth Paltrow
gekk eftir rauða dreglinum
í hvíta kjólnum hafi verið
ógleymanlegt augnablik.
Glæsileikinn var algjör þrátt
fyrir að kjóllinn væri með
einföldu sniði. Yfir honum bar
Paltrow síða skikkju í stíl. Það
var hinn frægi hönnuður Tom
Ford sem á heiðurinn af kjóln-
um. „Að sjá Paltrow í þessum
fallega, hvíta kjól var án efa
tískumóment ársins.“
Í öðru sæti er Beyonce
þegar hún mætti á hátískusýn-
ingu Givenchy. Í þriðja sæti
Blake Lively sem leit út eins
og Hollywood-
stjarnan Veronica
Lake (f. 1922) í
glamúrdressi sem
hönnuðurinn
Zuhair Mu-
rad á heiður-
inn af.
Í fjórða sæti
leikkonan
Emma Stone
á frumsýn-
ingu The
Amazing
Spiderman
í Lund-
únum í því
fimmta
Rooney
Mara í
svörtum
kjól frá
Givenchy.
TÍSKUKONA
ÁRSINS
Gamlárskvöld gæti verið versti
tími ársins til að eiga „slæman
hárdag“. Ef klukkan nálgast
óðum miðnætti má alltaf grípa
til „neyðargreiðslunnar“.
Bleyttu allt hárið og berðu í það
froðu eða gel. Skiptu hárinu
í miðju eða vel til hliðar og
greiddu það slétt aftur í hnakk-
ann. Notaðu fíngerða greiðu til
að fá það rennislétt. Ef þú ert
með sítt hár skaltu festa það
saman í tagl neðst
í hnakkanum
með gúmmí-
teygju. Veiddu
einn lokk innan
úr taglinu og
vefðu honum
utan um teygj-
una. Festu hann
svo undir með
spennu.
- Úðaðu yfir
allt með hár-
lakki og þú ert
til í slaginn.
NEYÐAR-
GREIÐSLA
Staðurinn - Ræktin
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Innritun hafin á janúarnámskeið
Hringdu núna til að tryggja þér pláss!
Velkomin í okkar hóp!
Þú getur strax byrjað að æfa!
Um leið og þú skráir þig á námskeið og greiðir fyrir það geturðu strax byrjað að sækja tíma í opna kerfinu okkar og tækjasal þar til námskeiðið
hefst. Öllum námskeiðum fylgir frjáls aðgangur að opna kerfinu og tækjasal!
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
S&S
stutt og strangt
Rétta leiðin til að breyta um lífsstíl, komast í kjörþyngd og gott form.
8 eða 16 vikna námskeið – 3x í viku – morgun-, dag og
kvöldtímar. TT3 fyrir 16-25 ára.
Sjáðu frábæran árangur haustsins á vefnum!
Æfingakerfi Báru Magnúsdóttur - aðaláherslan lögð á styrk, liðleika og góðan líkamsburð. Aðeins 15 í hóp.
8 eða 16 vikna námskeið 2x í viku – morgun- og síðdegistímar.
Markvissar æfingar í tækjasal með persónulegri leiðsögn og aðhaldi. Hámark 6 í hóp.Tilvalin leið til að
koma sér í gang! 2 vikna námskeið – 5x í viku.
Farið í gegnum röð af yogastöðum í heitum sal. Teygjanleiki vöðvanna aukinn, mikill sviti og vellíðan.
8 vikna námskeið – 2x í víku – kvöldtímar.
Líkamsrækt á rólegri nótunum fyrir konur 60 ára og eldri.
8 eða 16 vikna námskeið - 2x í viku - morguntímar.
Opnir tímar með fjölbreytilegri líkamsrækt frá morgni til kvölds 6 daga vikunnar. Þrek, þol, liðleiki,
pallar, kraft yoga, tabata, zumba... eitthvað fyrir alla!
Heildrænt hug- og heilsuræktarkerfi. Frábær leið til líkamlegrar og andlegrar uppbyggingar.
8 eða 16 vikur – 2x í viku – morgun-, hádegis- og síðdegistímar.
Krefjandi æfingakerfi sem miðar að betri líkamsstöðu m.a. með því að styrkja djúpvöðva í kvið og baki
og lengja vöðva. 8 eða 16 vikur – 2x í viku – síðdegistímar.
Frábær viðbót fyrir korthafa í opna kerfinu:
Áherslumiðaður árangur - 35 mínútna hádegistímar.
Í FÓTSPOR FORELDRANNA