Fréttablaðið - 31.01.2013, Síða 6
31. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Botn-
fiskafurðir
fóru að lækka
umtalsvert á
mörkuðum
erlendis þegar
leið á árið
2012. Það stafar fyrst og
fremst af meira framboði,
sérstaklega af þorski.
Arnar Sigurmundsson, formaður
stjórnar Samtaka fiskvinnslustöðva
SJÁVARÚTVEGUR Verðmæti afla
íslenskra fiskiskipa á fyrstu
tíu mánuðum ársins var 137,9
milljarðar króna. Það er aukning
um 8,1 prósent miðað við sama tíma
árið 2011 og hefur aflaverðmætið
því aukist um 10,3 milljarða á milli
ára. Þetta kemur fram í tölum frá
Hagstofu Íslands.
Af þessari tíu milljarða
aukningu skilaði góð loðnuvertíð
4,4 milljörðum króna. Árið 2012
skilaði loðnan 13,1 milljarði króna
en 8,7 milljörðum árið 2011. Það er
aukning um rétt rúmlega 50 pró-
sent.
Sem fyrr er það þó botnfisk-
aflinn sem skilar mestum verð-
mætum. Verðmæti þorskafla jókst
um 12,7 prósent á milli ára, var 41,5
milljarðar árið 2012. Þorskurinn
ber því höfuð og herðar yfir aðrar
fisktegundir en loðnan kemst næst
honum í aflaverðmæti þegar horft
er til einstakra fisktegunda. Verð-
mæti ýsuafla var 10,4 milljarðar
og karfans tæpir 12 milljarðar á
fyrstu árum ársins 2012.
Arnar Sigurmundsson, for maður
stjórnar Samtaka fiskvinnslu-
stöðva, segir ánægjuefni hve afla-
verðmætið hafi aukist. Hins vegar
séu blikur á lofti á mörkuðum.
„Botnfiskafurðir fóru að lækka
umtalsvert á mörkuðum erlendis
þegar leið á árið 2012. Það stafar
fyrst og fremst af meira framboði,
sérstaklega af þorski. Svo má ekki
gleyma því að það eru erfiðleikar
í mörgum okkar helstu markaðs-
löndum í Evrópu.“
Arnar segir það birtast í því sem
snýr að útflutningsverðmæti. Hann
segir menn hafa nokkrar áhyggjur
af stöðunni á þessu ári, bæði þegar
kemur að efnahagsástandinu ytra
og einnig af auknu framboði á
þorski úr Barentshafi. Athyglisvert
er að aflaverðmæti eftir verkunar-
stöðum eykst alls staðar á landinu
á árinu 2012 nema á Norðurlandi
eystra. Þar dregst það saman um
24 prósent. Erfitt er að segja hvað
veldur en sala á skipum og tilfærsla
aflaheimilda getur komið þar inn í.
Verðmætið á höfuðborgarsvæðinu
hækkaði hins vegar um tæp 30 pró-
sent milli ára. kolbeinn@frettabladid.is
VEISTU SVARIÐ?
Verðmæti afla eftir verkunarstað
29,3% 10,8%
18,8%
4,4%
13%
16,6%
11,5% -24%
Suðurland
17.892 milljónir króna
Austurland
21.642 milljónir króna
Vesturland
6.746 milljónir króna
Vestfi rðir
7.557 milljónir króna
Norðurland vestra
9.284 milljónir króna
Norðurland eystra
15.996 milljónir króna
Breyting frá fyrra ári
janúar til október 2012
Höfuðborgarsvæðið
31.466 milljónir króna
Suðurnes
21.363 milljónir króna
Aflaverðmæti jókst um tíu
milljarða á tíu mánuðum
Aflaverðmæti íslenskra skipa var 138 milljarðar á fyrstu tíu mánuðum ársins, eða 8,1 prósenti hærra en á sama
tíma 2011. Verðmæti minnkar um fjórðung á Norðausturlandi. Meira selt í beinni sölu til vinnslu innanlands.
Gámaútflutningur hefur dregist saman á sama tíma og verðmæti afla til
vinnslu innanlands hefur aukist og var tæpir 65 milljarðar á fyrstu tíu
mánuðum ársins 2012. Arnar segir það jákvæða þróun að fiskurinn sé
unninn meira innanlands.
„Þessi þróun hefur verið nokkurn tíma að innlendir fiskmarkaðir hafa
reynst fyllilega samkeppnisfærir við að flytja fiskinn út í gámum. Undan-
farin tvö til þrjú ár hefur hlutfall botnfiskafla sem unninn hefur verið
innanlands farið heldur hækkandi. Þetta er ánægjuleg þróun þannig að við
stöndum betur að vígi í samkeppninni.“
➜ Meira unnið innanlands
1. Hvernig vill Landsnet bæta
afhendingu rafmagns á Vestfjörðum?
2. Af hverju verða karlar veikari en
konur af umgangspestum?
3. Hvað óttast Reyðfi rðingar að trufl i
þjónustu við olíuleitarfyrirtæki?
SVÖRIN
1. Með línum í jörð í göngum úr Dýrafi rði
undir Hrafnseyrarheiði. 2. Vegna ólíkrar
virkni heilastöðva kynjanna. 3. Laxeldiskvíar.
ICESAVE Sigur Íslands í Icesave-málinu er sigur
lögfræðinnar og efnahagslegrar skynsemi. Hann
sýnir fram á að innstæðutryggingakerfi gjörvallrar
Evrópu er ófullnægjandi og þarfnast endurskoðunar.
Þetta er mat leiðarahöfundar breska blaðsins
Financial Times, sem skrifar um dóm EFTA-
dómstólsins í Icesave-málinu í gær.
„Dómurinn leiðir skýrlega í ljós að evrópsk lög
skylda ekki skattgreiðendur til að koma einka-
reknum bönkum til bjargar, stefnan sem reyndist
Írum svo hörmulega en virðist þó enn vera ríkjandi
í Evrópu,“ segir í leiðaranum.
Niðurstaða leiðarahöfundar er að Evrópu-
sambandið ætti að nota tækifærið við endurskoðun
innstæðutryggingakerfisins til að draga almennt úr
áhættunni sem fylgir bankarekstri fyrir hið opin-
bera.
„Reykjavík reyndist hafa rétt fyrir sér að lögum;
Evrópa ætti að viðurkenna að stefnan sem þar var
mörkuð var skynsamleg líka.“ - sh
Leiðarahöfundur Financial Times segir ríki ekki eiga að bjarga einkabönkum:
Endurskoða þarf kerfið allt
ÍSRAEL, AP Ísraelskir og banda-
rískir vísindamenn segja að heila-
starfsemi sé merkjan leg hjá Ariel
Sharon, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Ísraels, sem hefur verið í
dái frá því hann fékk heilablóðfall
fyrir sjö árum.
Gerðar voru nýjar rannsóknir
á Sharon í síðustu viku, þar sem
honum voru sýndar ljósmyndir
af fjölskyldu hans og leikin fyrir
hann upptaka af rödd sonar hans.
Myndir af heilanum sýndu eðlileg
viðbrögð við þessu skynáreiti. - gb
Nýjar rannsóknir í Ísrael:
Heili Sharons
starfar í dáinu
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
ness hefur dæmt tæplega fertugan
mann í átta mánaða fangelsi
fyrir kannabisræktun. Heima hjá
honum fundust
155 plöntur, tæp-
lega 200 grömm
af maríjúana
og 340 grömm
af kannabis-
laufum.
Maðurinn
kvaðst hafa
ætlað þetta allt til
einkanota. Hann sagðist reykja
mjög mikið kannabis – allt að tvö
grömm á dag. „Telur dómurinn,
með tilliti til þess magns sem
fannst hjá honum, þá skýringu
fráleita, enda um nokkurra ára
birgðir að ræða hafi það verið til
eigin neyslu,“ segir í dómnum.
Maðurinn hefur ítrekað hlotið
dóma fyrir fíkniefnabrot frá árinu
2003. - sh
Dæmdur fyrir kannabisrækt:
Fráleit vörn um
155 plöntur til
einkareykinga
STJÓRNSÝSLA Forsætisráðuneytið
hefur undirritað samning við
Blindrafélagið um að bjóða upp-
lestur á íslensku efni á vefsíðum
Stjórnarráðs Íslands með svo-
nefndum veflesara.
Um er að ræða hugbúnað sem
bætir aðgengi blindra og sjón-
skertra að textuðu efni á vefjum
allra ráðuneytanna, er fram kemur
í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Samningurinn er gerður til eins
árs en að þeim tíma liðnum verð-
ur hann endurskoðaður. Í honum
er kveðið á um að ráðuneytin geti
nýtt veflesarann á allt að 20 vefjum
stjórnarráðsins samtímis. Auk
ráðuneytanna má gera ráð fyrir að
hann verði nýttur á vefjum á borð
við starfatorg.is og kosning.is. - sv
Ráðuneytið gerir samning:
Blindir geta nú
notað síðurnar