Fréttablaðið - 31.01.2013, Side 30
31. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 30TÍMAMÓT
Tónlistarskóli Álftaness heldur tón-
leikana „Álftanes er utan úr geimnum“
í Kaldalóni í Hörpu klukkan 17 á föstu-
dag. Tónleikarnir eru hluti af hátíðinni
Myrkir músíkdagar og er þetta í fyrsta
sinn sem tónleikar frá tónlistarskóla
eru teknir inn í hátíðina.
„Að við skulum fá inni á Myrkum
músíkdögum er þvílíkur heiður,“ segir
Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir, skólastjóri
og píanókennari við Tónlistarskóla
Álftaness. „Þetta er svolítið einstakt
því þetta hefur aldrei gerst áður.“
Frá stofnun hefur Tónlistar skólinn á
fimm ára fresti pantað tónverk frá tón-
skáldi búsettu á Álftanesi og nemendur
flutt á afmælistónleikum. Í tilefni af
25 ára afmæli skólans nú í haust voru
fjögur tónskáld fengin til að skrifa jafn
mörg tónverk fyrir nemendur með mis-
munandi hljóðfærasamsetningu í huga.
Tónskáldin eru Hilmar Örn Hilmars-
son, John Speight, Karólína Eiríks-
dóttir og Tryggvi Baldvinsson.
Í verki sem Hilmar Örn samdi ásamt
hópi nemenda er notast við hljóðrás,
hljómborð, slagverk og steinahörpu
Páls á Húsafelli. „Hann fór með þeim
út í náttúruna og þau tóku upp alls
konar hljóð. Svo fóru þau í stúdíóið
hjá honum og unnu úr þessu,“ segir
Sveinbjörg. Öll verkin sem verða flutt
á tónleikunum eru frumsamin og
voru þau frumflutt á 25 ára afmælis-
tónleikum Tónlistarskólans 3. nóvem-
ber síðastliðinn í Víðistaðakirkju.„Það
er einsdæmi að eingöngu sé flutt frum-
samin tónlist á nemendatónleikum þar
sem grunnskólabörn eiga í hlut,“ segir
hún.
Þess má geta að til margra ára
hefur tónsmíðahátíð verið fastur liður
í skólastarfinu en þar gefst nemendum
tækifæri til að flytja eigin tónsmíðar
sem þau semja undir leiðsögn eða með
aðstoð kennara og tónfræðikennara.
„Þetta hefur gengið mjög vel,“ segir
Sveinbjörg. freyr@frettabladid.is
Heiður að spila á
Myrkum músíkdögum
Tónlistarskóli Álft aness spilar á Myrkum músíkdögum í Hörpu á föstudaginn.
Á AFMÆLISTÓNLEIKUM Hilmar Örn Hilmarsson ásamt hópi nemenda úr Tónlistarskóla Álftaness á afmælistónleikunum í nóvember.
Þennan dag árið 1971 var geimflauginni
Apollo 14 skotið á loft frá Canaveral-höfða
í Flórída í Bandaríkjunum. Um borð voru
geimfararnir Alan B. Shepard Jr., Edgar D.
Mitchell og Stuart A. Roosa. Ferðinni var
heitið til tunglsins.
Hinn 5. febrúar, eftir að hafa lent í
nokkrum erfiðleikum við tengingar hluta
tunglfarsins og íverustöðvar um borð,
héldu geimfararnir Shepard og Mitchell
út á yfirborð tunglsins, en þetta var þriðja
lendingin á tunglinu á vegum Bandaríkja-
manna. Þegar Shepard steig á tunglið varð
hann fimmti geimfarinn til að ganga þar
um. Hann var hins vegar fyrsti Bandaríkja-
maðurinn til að halda út í geim árið 1961
um borð í Freedom 7-flauginni, nokkru á
eftir rússneska geimfaranum Júrí Gagarín
sem var fyrstur.
Shepard og Mitchell héldu til á yfirborði
tunglsins í næstum 34 klukkustundir og
framkvæmdu einfaldar vísindatilraunir.
Þar á meðal var tilraun sem fólst í að slá
golfkúlum út í geiminn með golfkylfu
Shepards. Þá söfnuðu þeir jarðvegssýnum,
alls 43,5 kílóum af grjóti.
9. febrúar lauk geimferðinni þegar farið
sneri heilu og höldnu aftur til jarðar. Með
ferðinni var aftur tekinn upp þráðurinn í
tunglferðum á vegum NASA eftir að við
stórslysi lá í för Apollo 13-farsins. Rann-
sóknir sem átti að framkvæma í þeirri för
voru færðar nánast án breytinga yfir á för
Apollo 14.
ÞETTA GERÐIST APOLLO 14 SKOTIÐ Á LOFT
Apollo 14 skotið á loft frá Canaveral-höfða
MERKISATBURÐIR
1709 Fyrirmynd Daníels Defoe að Robinson Krúsó, breska sjó-
manninum Alexander Selkirk, er bjargað eftir fjögurra ára dvöl
á eyðieyju.
1950 Harry Truman Bandaríkjaforseti greinir frá því að hann
hafi farið fram á þróun vetnissprengjunnar.
1951 Tuttugu manns farast með flugvélinni Glitfaxa út af Vatns-
leysuströnd á leið frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur.
1977 Mjólkursamsalan hættir rekstri allra mjólkurbúða utan
einnar.
1980 Ferðamönnum leyft að kaupa tollfrjálsan bjór við komuna
til landsins.
1982 Stofnfundur Samtaka um kvennaframboð í Reykjavík.
1992 Þjóðviljinn kemur út í síðasta sinn.
Á LEIÐ TIL TUNGLSINS Alan B. Shepard
áður en hann flaug af stað til tunglsins með
Apollo 14. NORDICPHOTOS/GETTY
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
INGUNN EGILSDÓTTIR
lést á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn
25. janúar 2013. Jarðsungið verður
frá Áskirkju þriðjudaginn 5. febrúar 2013
kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Barnaspítala Hringsins.
Sigríður Matthíasdóttir Guðmundur Kristinsson
Helga Matthíasdóttir Valmundur Gíslason
Erna Matthíasdóttir Víðir Bergmann Birgisson
Egill Matthíasson Linda Lek Thieojanthuk
barnabörn og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
KARÓLÍNA FRIÐRIKA
HALLGRÍMSDÓTTIR
Laugarvegi 33, Siglufirði,
sem andaðist 23. janúar verður jarðsungin
frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 2. febrúar
kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er
vinsamlega bent á Björgunarsveitina Stráka, reikn. 1102-26-2717
kt. 551079-1209.
Ólöf Þórey Haraldsdóttir Ásgeir Sigurðsson
Helga Haraldsdóttir Erlingur Björnsson
Ragnheiður Haraldsdóttir
Árni Haraldsson Ragnheiður Árnadóttir
Eyþór Haraldsson
Árni Þór Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra,
HALLDÓRA FRÍÐA ÞÓRÐARDÓTTIR
MATZAT
lést að morgni 23. janúar á Flórída í
Bandaríkjunum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ragnar Þór Jörgensen.
Okkar ástkæra,
SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR
Bræðraborgarstíg 7, Reykjavík,
lést þann 22. janúar. Útförin fer fram
frá Bústaðakirkju föstudaginn 1. febrúar
kl. 11.00. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Krabbameinsfélag Reykjavíkur.
Guðmundur Guðmundsson
Kristján Gylfi Guðmundsson
Eyrún Guðmundsdóttir Unnar Bragi Bragason
Brynhildur Guðmundsdóttir Jón Valgeirsson
Borghildur Guðmundsdóttir Kolbeinn Sveinbjörnsson
Kristrún, Lúkas, Tryggvi, Felix, Emil Bragi, Eva Karen,
Guðmundur, Hildur, Sólveig.
Ástkær dóttir okkar, systir og mágkona,
DR. HEKLA SIGMUNDSDÓTTIR
dósent,
Löngumýri 26, Garðabæ,
sem lést á Landspítala fimmtudaginn
17. janúar, verður jarðsungin frá
Digraneskirkju, Kópavogi, föstudaginn
1. febrúar kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á líknarstofnanir.
Margrét Þorvaldsdóttir Sigmundur Guðbjarnason
Snorri Sigmundsson Sara Jewett Sigmundsson
Logi Sigmundsson
Ægir Guðbjarni Sigmundsson Anna Linda Bjarnadóttir
Elskulegur eiginmaður, bróðir og mágur,
GUNNAR KRISTINSSON
Hásteinsvegi 6, Vestmannaeyjum,
varð bráðkvaddur föstudaginn 11. janúar.
Útför hans fór fram í kyrrþey frá Landakirkju
laugardaginn 26. janúar. Þökkum auðsýnda
samúð og hlýhug.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Valgerður Andersen, Helga Kristinsdóttir, Ríkharð Laxdal.
Sýning verður opnuð í Gamla sjúkrahúsinu – Safnahúsi
Ísafjarðar á laugardaginn kl. 14 um vestfirska leiklist.
Á sýningunni er farið yfir sögu leikstarfs á Ísafirði og
öðrum helstu byggðarlögum Vestfjarða í máli og myndum.
Að sýningunni stendur Leikminjasafn Íslands í samvinnu
við Kómedíuleikhúsið, Gamla sjúkrahúsið – Safnahúsið
Ísafirði og Listasafn Ísafjarðar. Sýningin nýtur framlags
frá Safnasjóði.
Leiklistin hefur frá upphafi þéttbýlis á Vestfjörðum
verið merkur þáttur í menningar- og skemmtanalífi
íbúanna. Á Ísafirði hefur verið sterk leikhefð um langan
aldur og má rekja hana allt aftur til miðrar nítjándu aldar.
Sýning um leiklist
Sýning um vestfi rska leiklist verður haldin
á Ísafi rði.