Fréttablaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 44
KYNNING − AUGLÝSINGVeisluþjónusta FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 20134
Yf ir veiðitímabilið snýst reksturinn um að þjónusta veiðimenn en yfir vetrar-
tímann, hluta sumarsins og á
haustin tökum við við alls kyns
hópum. Hing-
að koma fyrir-
tæki í hvata- og
fundaferðir en
auk þess tökum
við að ok kur
hverskyns veisl-
ur, brúðkaup,
saumaklúbba
og aðra hópa,“
s e g i r m a t -
reiðslumaður-
inn Þórarinn
Eggertsson.
Hann segir
gistirými fyrir fjörtíu manns í
báðum húsunum. „Við getum
svo tekið við allt að áttatíu manns
í mat. Sveigjanleikinn er mik-
ill og getur fólk fengið allar mál-
tíðir dagsins hjá okkur sé þess
óskað. Við útbúum stórar sem
smáar veislur og erum með fjöl-
breytta morgunverðar-, hádegis
- og kvöldverðarmatseðla. Við
leggjum mikla áherslu á að bjóða
úrvalshráefni og er maturinn á
pari við það sem þekkist á fínustu
veitinga stöðum.“
Þórarinn segir v iðsk ipta-
vinum þykja gott að stimpla sig
út og komast í sveitina en Laxá í
Kjós er aðeins í þrjátíu mínútna
aksturs fjarlægð frá höfuðborg-
inni en rúman klukkutíma tekur
að keyra í Borgarfjörðinn. „Við
sjáum um rútuferðir sé þess óskað
og getum þess vegna boðið upp á
nesti í lautar ferðir.“ Hann segir
fólk sækja í náttúrufegurðina í
kringum húsin enda er mikið um
fallegar gönguleiðir. „Eins er hægt
að heimsækja bændur í kring sem
bjóða varning beint frá býli auk
þess sem ýmiskonar afþreyingar-
möguleikar eru í grennd við bæði
húsin.“ Frekari upplýsingar er að
finna á www.hreggnasi.is .
Veisluþjónusta
í sveitasælu
Veiðifélagið Hreggnasi býður upp á fjölbreytta
veisluþjónustu í veiðihúsum sínum við Grímsá í
Borgarfirði og við Laxá í Kjós. Þangað sækja hópar
og fyrirtæki sem vilja njóta úrvalsveitinga í fallegu
og kyrrlátu umhverfi.
Maturinn er á pari við það sem best gerist
á fínum veitingastöðum.
Þórarinn segir við-
skiptavinum þykja
gott að stimpla
sig út og komast
í sveitasæluna
rétt utan borgar-
markanna.
Unnur Guðrún Pálsdóttir, eða Lukka eins og hún er ávallt kölluð, byrjaði með veitinga-
staðinn Happ í kjallaranum heima
hjá sér þar sem afi hennar rak áður
tannlæknastofu. Árin 2006-2009
bauð Happ matarpakka fyrir ein-
staklinga og veisluþjónustu en opn-
aði svo veitingastaðinn á Höfða-
torgi 2010,“ segir Lukka um upphaf
Happs.
Litríkur og frumlegur matur
Maturinn frá Happi sker sig úr að
því leyti að hann er einstaklega lit-
ríkur, fallegur og hollur. „Við notum
mikið af fersku hráefni. Ferskar
kryddjurtir setja til dæmis lit sinn
á matinn og gefa gott bragð í leið-
inni. Við reynum líka að setja hann
saman á frumlegan máta svo sjón-
ræna upplifunin og bragðið veki
góð hughrif. Til dæmis kemur það
fólki oft skemmtilega á óvart að fá
fersk ber og hnetur með kjöti.“
Sérþarfir og hollusta
Þótt Happ leggi áherslu á hollan mat
á sínum matseðli er slakað örlítið á
þeim kröfum er kemur að veislu-
þjónustunni. „Í veislum leyfum við
okkur aðeins meira og sveigjum
reglurnar. Litlu hamborgararnir
okkar hafa verið vinsælir en þeir
eru með lambafilet, litríkir ávaxta-
bakkar með vanillukremi, súkkul-
aðikakan og litríku vefjurnar okkar
hafa einnig vakið mikla lukku.“
Þegar kemur að sérþörfum skar-
ar Happ fram úr. „Við getum út búið
heilar veislur fyrir fólk með glúten-
óþol, fyrir grænmetisætur eða
vegan rétti án allra mjólkur afurða.
Hvort sem það er heil veisla eða
fyrir hluta veislugesta þá leysum
við málið.“ Veisluþjónusta Happs
sinnir allt frá litlum veislum með
pinnamat upp í margrétta brúð-
kaupsveislur, fermingar eða hvaða
tilefni sem er. „Stærsta veislan sem
við höfum sinnt var þúsund manna
samkoma og sú minnsta aðeins
fyrir örfáa. Við erum því fær í flest-
an sjó.“
Nánari upplýsingar um Happ og
matinn er að finna á heimasíðunni
www.happ.is „Fólk getur hringt eða
sent okkur tölvupóst á happ@happ.
is og við gerum tilboð í hverja veislu
og mætum óskum hvers og eins.“
Litríkt og ljúffengt
Árið 2006 opnaði Unnur Pálsdóttir staðinn Happ í kjallaranum heima hjá sér.
Hún bauð veisluþjónustu og matarpakka fyrir einstaklinga. Árið 2010 opnaði
hún veitingastað á Höfðatorgi og í janúar safa- og samlokubar í Austurstræti.
„Við reynum að setja matinn saman á frumlegan máta svo sjónræna upplifunin og
bragðið veki góð hughrif,“ segir Lukka um matinn frá veisluþjónustu Happs. MYND/VALLI
Juices & smoothies
2 fyrir 1 í febrúar
Austurstræti 22