Fréttablaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 31.01.2013, Blaðsíða 60
31. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 44 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2013 Fundir 12.00 Vilborg Arna Gissurardóttir pólfari segir frá ævintýrum sínum á Suðurpólnum á súpufundi á Hallveigar- stöðum, Túngötu 14. Yfirskrift fundarins er Jákvæðni, áræðni og hugrekki en aðgangur og veitingar eru ókeypis. Félagsvist 20.00 Félagsvist Rangæinga og Skaft- fellinga verður haldin í Skaftfellinga- búð, Laugavegi 178. Allir velkomnir og gott með kaffinu. Málþing 13.00 Málþing um varðveislu og skráningu gagna er tengjast Halldóri Laxness verður haldið í Norræna húsinu. Málþingið er öllum opið. Tónlist 12.15 Myrkir músíkdagar 2013 hefjast í Hörpu, tólistarhúsi. Dagskrá má finna á heimasíðunni www.myrkir.is. 20.00 Í tilefni af útgáfu sinnar þriðju breiðskífu, Flowers, heldur Sin Fang útgáfuhóf á skemmtistaðnum Harlem. Léttar veitingar í boði og platan á sér- stöku forsölutilboði. 21.00 The Saints of Boogie Street spila á Café Rosenberg. Aðgangseyrir er kr. 1.500. 22.00 Magnús Einarsson, Eðvarð Lárusson, Karl Pétur Smith og Tómas Tómasson leika tónlist eftir the Rolling Stones á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8. Aðgangseyrir er kr. 1.000. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá inni á visir.is. Philip Kotler er í boði: Iceland Business Forum kynnir: Í Háskólabíói – 24. apríl 2013 Philip Kotler Heilsdags námskeið með föður nútíma markaðsfræði Marketing 3.0 Values Driven Marketing Markaðssetning fyrir stærri og smærri fyrirtæki Arðsemi Ávöxtun Sjálfbærni Tilboð í forsölu 69.900.- Fullt verð 99.900.- Gildir til og með 31.janúar 2013 Takmarkað magn miða í boði Nánari upplýsingar og forsala er á miði.is og ibf.is Ljósmyndasýningin Found/Dot eftir Paulu Prats verður opnuð í Skotinu í Ljósmyndasafni Reykjavíkur klukkan 12 í dag. Sýningin Found samanstendur af myndaröð, eins konar mynda- tvennum; annars vegar myndir sem Prats fann á flóamarkaði í Kanada og hins vegar myndir sem hún tók sjálf. Í tilkynningu frá Ljós- myndasafni Reykjavíkur segir að á sýningunni sé hversdags myndinni hampað; þeim fundnu, þeim týndu, myndunum sem enginn mun hafa tíma til að skoða, þeim venjulegu og þeim upphöfnu. Myndunum sem fylgir tómleiki gleymdra minninga, þeim ónothæfu, slæmu, og að síðustu, athöfninni að skoða og ljós- mynduninni sjálfri. Myndröðin Dot sýnir á stafrænan máta úrval mynda eftir Paulu sem allar eru tengdar með punkti, sem breytir um lit, umfang og jafnvel lögun. Hann gefur innsýn í röðun ljósmynda og hvernig mismunandi myndir geta tengst á einfaldasta hátt og búið til reglu úr óreglu. Paula Prats er fædd 1986 og hefur numið myndlist og ljós myndun á Spáni, í Kanada og Bretlandi en býr nú á Íslandi. Hversdagsmyndum hampað Ljósmyndasýningin Found/Dot verður opnuð í Skotinu í dag. FOUND Sýningin samanstendur af myndum sem Prats fann á flóamarkaði og öðrum sem hún tók sjálf. Þriðju tónleikarnir af fjórum í söngleikja- röðinni Ef lífið væri söngleikur verða haldnir í Salnum í Kópavogi annað kvöld. Leikararnir Bjarni Snæbjörnsson, Mar- grét Eir, Sigríður Eyrún Friðriks dóttir og Orri Huginn Ágústsson standa fyrir tónleikunum, sem hver hefur sitt þema. Á morgun er komið að stóru söngleikjaskáldunum sem skópu söngleikinn, til dæmis Gershwin, Sond- heim, Lloyd Webber, Cole Porter og Rodgers & Hammerstein svo ein- hverjir séu nefndir. Tekin verða lög úr söngleikjum eins og Guys and Dolls, Kiss Me Kate, Porgy & Bess, West Side Story, Company, Sweeney Todd, The Sound of Music og fleiri demöntum. Tónleikarnir hefjast klukkan 20. Meira söngleikjalíf Klassísku söngleikjaskáldin í Salnum á morgun SIGRÍÐUR EYRÚN FRIÐRIKSDÓTTIR Save the Children á Íslandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.