Fréttablaðið - 31.01.2013, Page 78
31. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| MENNING | 62
„Jólaölið er í miklu uppáhaldi þó
svo að ég drekki það nú við hátíðleg
tilefni. Svo er ég veikur fyrir gin og
tónik.“
Daníel Geir Moritz, grínisti og útvarpsmaður
DRYKKURINN
Kvikmyndin Djúpið hlaut flestar tilnefningar til
Edduverðlaunanna árið 2013, eða sextán talsins.
Skammt á eftir henni kom Svartur á leik með fimm-
tán tilnefningar. Spennumyndin Frost fékk fjórar til-
nefningar og Ávaxtakarfan þrjár.
Djúpið, Svartur á leik og Frost voru tilnefndar sem
bestu kvikmyndirnar. Tilnefndir sem bestu aðal-
leikararnir voru Björn Thors fyrir Frost, Jóhannes
Haukur Jóhannesson og Þorvaldur Davíð Kristjáns-
son fyrir Svartur á leik, Ólafur Darri Ólafsson fyrir
Djúpið og Kjartan Guðjónsson fyrir Pressu.
Sem bestu leikkonur voru tilnefndar: Anna
Gunndís Guðmundsdóttir fyrir Frost, Elín Peters-
dóttir fyrir Stars Above og Sara Dögg Ásgeirsdóttir
fyrir Pressu.
Þrír þættir voru tilnefndir fyrir besta leikna
sjónvarps efnið, eða Áramótaskaup Sjónvarpsins,
Mið-Ísland og Pressa 3.
Núna þegar tilnefningarnar eru klárar hefst
rafræn kosning akademíumeðlima á milli tilnefndra
verka sem lýkur 13. febrúar. Edduverðlauna hátíðin
verður svo haldin laugardaginn 16. febrúar og er
sjónvarpað beint og í opinni dagskrá á Stöð 2. Þar
verða veittar alls 24 Eddustyttur til þeirra sem þykja
skara fram úr í íslenska kvikmynda- og sjónvarps-
geiranum.
Djúpið með fl estar tilnefningar
Djúpið hlaut 16 tilnefningar til Edduverðlaunanna. Svartur á leik með fi mmtán.
DJÚPIÐ Kvikmyndin Djúpið hlaut flestar tilnefningar til
Edduverðlaunanna.
„Þetta er ansi góð grein hjá blaða-
manni The New York Times,“
segir Magnús Scheving er hann
er inntur eftir viðbrögðum sínum
við grein blaðamannsins Neil
Genzlinger í The New York Times.
Blaðamanninum er umhugað um
velferð barnanna, sem hann segir
í sakleysi sínu ætla að horfa á
Íþróttaálfinn breiða út heilsu-
boðskap sinn en sjá í þess stað
hinn ofbeldishneigða Spartacus
drepa mann og annan.
Latabæjarþættirnir bera nafnið
Sportacus vestanhafs og því ekki
nema einn bókstafur sem skilur
seríurnar að, sem gæti valdið rugl-
ingi. Mikill munur er á efnistökum
þáttanna en Spartacus er lýst sem
óvenju ofbeldisfullu sjónvarps-
efni með bæði blóðsúthellingum
og nekt.
„Í stað þess að læra um upp-
byggingu beina af íþrótta álfinum
læra börnin hvernig á að brjóta
bein af Spartacus,“ segir í grein-
inni. Blaðamaðurinn skrifar
einnig eins konar leiðarvísi, á
gamansaman hátt, fyrir foreldra
varðandi það hvernig þekkja
skuli þessa tvo sjónvarpsþætti í
sundur.
Magnús Scheving segir þetta
ekki í fyrsta sinn sem minnst
sé á Sportacus og Spartacus í
sömu andrá. Þegar myndin sem
sjónvarpsþættirnir ofbeldis-
hneigðu eru byggðir á kom út
fyrir nokkrum árum var Magnús
spurður að því hvort Latibær
væri að gera bíómynd.
„Þetta er mjög skemmtileg
grein og hún súmmerar upp þann
boðskap sem við höfum verið
að reyna að ná með sjónvarps-
þáttunum. Þrátt fyrir að vera
laus við allt ofbeldi í Latabæ
hefur okkur tekist að gera þætt-
ina spennandi fyrir áhorfandann.
Hver man ekki eftir Tomma og
Jenna sem gengu út á ofbeldi
milli kattar og músar í vinsælu
barnaefni? Það er ekkert sérstak-
lega gaman að tala um að borða
grænmeti eða bursta tennurnar,
en eins og stóð einhvers staðar þá
tekst okkur með Latabæ að „make
boring things into a game“,“ segir
Magnús ánægður með greinina.
„Nú er tekin við ný kynslóð sem
þekkir Sportacus betur en Sparta-
cus. Mig minnir að það sé í Bret-
landi sem fleiri niðurstöður fást
við leitarorðið Sportacus á Google
en Spartacus. Það er ánægjulegt.“
alfrun@frettabladid.is
Latabæ ruglað saman
við ofb eldisþáttaröð?
Blaðamaður The New York Times telur miklar líkur á því að bandarísk börn
horfi óvart á nýju ofb eldisfullu sjónvarpsþættina um Spartacus í leit sinni að
Íþróttaálfi num, eða Sportacus eins og hann heitir upp á engilsaxnesku.
SPORTACUS
OG SPARTACUS
Á meðan það
grófasta sem
Íþróttaálfurinn
hefur gert er
að henda epli
í hausinn á
Glanna Glæp
er mun meira
um ofbeldi og
blóðs úthellingar
í sjónvarps-
þáttunum
Spartacus, sem
þykja alls ekki
við hæfi barna.
„Þetta leggst rosalega vel í
mig, ef samkomulagið á milli
okkar verður í lagi,“ segir
Gísli Rúnar Jónsson glettinn.
Kaffibrúsakarlarnir hinir einu
sönnu hafa snúið aftur í tilefni af
40 ára afmælinu sínu. Frumsýning
á nýrri sýningu þeirra í leikstjórn
Gunnars Helgasonar verður í
Austur bæ 1. mars.
„Það er búið að biðja okkur um að
koma fram í áratugi en við höfum
aldrei gert það. Það er búið að
reyna að stilla til friðar og okkur
þykir ákaflega vænt hvorum um
annan en þetta er ákaflega erfitt
samstarf. En það er kannski þess
vegna sem það var hlegið svona
mikið að okkur, vegna þessarar
undirliggjandi spennu,“ segir Gísli
Rúnar og hlær.
Kaffibrúsakarlarnir í túlkun
Gísla Rúnars og Júlíusar Brjáns-
sonar hófu feril sinn í Sjónvarpinu
árið 1973 og voru þar í einn vetur.
Síðan þá hafa þeir lifað áfram með
þjóðinni á tveimur hljómplötum
sem voru teknar upp með þeim.
Spurður hvort það hafi ekki verið
kominn tími á endurkomuna segir
Gísli: „Það er ekki beðið um þetta
á hverjum degi í dag en áratugum
saman var alltaf beðið um þetta en
það kom ekki til greina. Í dag veit
meira en helmingur þjóðarinnar
ekkert hverjir þetta eru. Þrátt fyrir
að við höfum verið víðs fjarri hafa
þeir samt lifað mjög góðu lífi. Það
eru sumir sem halda að þeir hafi
alltaf verið virkir vegna þess að
hljómplöturnar okkar hafa verið
langlífar.“ - fb
Kaffi brúsakarlarnir
snúa aft ur í Austurbæ
Kaffi brúsakarlarnir halda upp á 40 ára afmæli sitt.
SNÚA AFTUR Júlíus Brjánsson og Gísli Rúnar Jónsson sem kaffibrúsakarlarnir.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það eru margir Brasilíumenn á Íslandi svo
okkur fannst vera kominn tími til að stofna
samfélag okkar á milli og kynna landið okkar
og menningu fyrir þeim sem hafa áhuga á,“
segir Rejane Santana DaSilva, formaður
Brasilíu félagsins á Íslandi.
Félagið var stofnað nú í október og er öllum
velkomið að ganga í það. Félagið heldur sinn
fyrsta viðburð, kjötkveðjuhátíð, á Classic
Rock Bar, Ármúla 5, þann 9. febrúar næst-
komandi. „Þann dag fer hátíðin af stað úti og
við verðum með beina útsendingu frá hátíða-
höldunum á þremur stórum tjöldum. Þar að
auki verðum við með söngatriði, dansatriði og
alls kyns skemmtun. Brasilíumenn eru þekktir
fyrir að kunna að skemmta sér og öðrum og
við ætlum svo sannarlega að standa undir
nafni,“ segir Rejane. Á hátíðinni verður boðið
upp á brasilískan mat og kökur en aðgangs-
eyrir er þó aðeins 2.000 krónur og allt inni-
falið. „Við mælum með að fólk mæti í lit-
ríkum og skemmtilegum klæðnaði, til dæmis
ætlar íslenskur vinur minn að fara í dragg.
Ég vil ekki að hann verði einmana og vona því
að fleiri draggdrottingar láti sjái sig,“ segir
Rejane, en hún hefur búið á Íslandi í sex ár og
er gift íslenskum manni, Stefáni Þorgrímssyni,
sem kom einnig að stofnun félagsins. Saman
eiga þau tvo syni, þriggja og sex ára. Nánari
upplýsingar eru á Facebook-síðu félagsins. - trs
Brasilísk kjötkveðjuhátíð í beinni á Íslandi
Hið nýstofnaða Brasilíufélag á Íslandi vill kynna brasilíska menningu fyrir áhugasömum Íslendingum.
LITRÍKAR Rejane og vinkonur hennar eru þegar
byrjaðar að koma sér í gírinn fyrir kjötkveðjuhátíðina.
Hér eru þær Luciene Rodrigues Ferreira, Rasangela
Santanada Silva, Rejane og Adda Nari Silva.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HARPA 09.02.13
HOF 16.03.13
HEIÐURS
TÓNLEIKAR
Miðasala á midi.is, harpa.is
og menningarhus.is