Fréttatíminn - 13.07.2012, Page 4
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
8.900
34.900
16.900
Er frá Þýskalandi
Öll börn
á Íslandi
sem
þjást af
sykursýki
greinast.
OYSTER PERPETUAL GMT-MASTER II
Michelsen_255x50_H_0612.indd 1 01.06.12 07:22
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Dæmalaust gott veður um lanD allt,
heiðríkt, en víða Dálítil gola.
höfuðborgarsvæðið: Hafgola og nánast
Heiðríkt. Hiti 15-16 stig.
skýjað framan af, en léttir til þegar líður á
Daginn. n- og nv-átt.
höfuðborgarsvæðið: skýjað með kÖflum, en
sólríkt aftur síðdegis
Úrkoma austast frá miðjum Degi. annars
þurrt en sólarlítið.
höfuðborgarsvæðið: n-gola og nokkuð bjart.
enn nokkuð Hlýtt.
Dregur fyrir sólu,
en áfram hlýtt
í dag föstudag er áfram gert ráð fyrir að heiðríkja
verði á landinu. Veik skil fara hins vegar suður yfir
landið aðfararnótt laugardagsins og sums staðar
verður lítilsháttar væta frá þeim um tíma, en síðan
rofar aftur til þegar kemur fram á daginn. meiri
gjóla verður, en verið hefur undan-
farna daga og vindur af n eða nV. á
sunnudag er gert ráð fyrir háum og
þunnum skýjum yfir landinu, en
þurrt verður, utan austurlands þar
sem rignir um tíma.
15
14 15
16
19 14
12 13 12
17
15
14 11
10
16
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
Isavia fer nú yfir hvað fór úr-
skeiðis þegar tveir menn komust
inn á flugvallarsvæðið í Keflavík
og upp í flugvél Flugleiða. ekki
tókst þeim það ætlunarverk sitt
að komast úr landi sem laumu-
farþegar. Hins vegar er ljóst
að í eftirlitinu eru brotalamir,
segir á heimasíðu innanríkis-
ráðuneytisins en ögmundur
jónasson innanríkisráðherra
segir að mikilvægt sé að öryggi
sé í samræmi við settar reglur og
hefur hann óskað eftir greinar-
gerð frá Flugmálastjórn þegar at-
hugun hennar er lokið.
Isavia mun skila skýrslu
til Flugmálastjórnar
sem annast yfirumsjón
og eftirlit með öryggis-
málum á flugvöllum
og öllum flugrekstri
og svarar til Alþjóða-
flugmálastofnunar
um sín verk. „Isavia
annast öryggiseftirlitið,“ segir
enn fremur á síðu ráðuneytisins,
„en aðkoma lögreglunnar á
suðurnesjum er fyrst og fremst
rannsóknarhlutverk.“ - jh
Æ fleiri börn greinast með sykur-sýki hér á landi og er fjölgunin um 3 prósent á milli ára að sögn
Ragnars Bjarnasonar, yfirlæknis á Barna-
spítala Hringsins. „Þessi þróun hefur orðið á
öllum Vesturlöndum og hefur verið undan-
farna áratugi,“ segir Ragnar. Þrátt fyrir fjölda
rannsókna sem gerðar hafa verið á sykursýki
barna um allan heim hefur ekkert komið í
ljós sem getur skýrt þessa þróun, að sögn
Ragnars. „Þetta virðist á einhvern hátt tengt
vestrænu líferni en þó ekki á sama hátt og
sykursýki 2 sem tengist offitu,“ segir Ragnar.
Alls eru 120 börn greind með sykursýki
hér á landi. Árlega greinast 16-17 börn, oftast
um fimm ára aldur en einnig greinist nokkur
hluti barna um unglingsaldurinn, að sögn
Ragnars. Aðeins líða í mesta lagi fáeinar vik-
ur frá því að fyrstu einkenni koma fram og
þangað til börn greinast. „Öll börn á Íslandi
sem þjást af sykursýki greinast,“ segir Ragn-
ar. Sjúkdómurinn leiðir fólk til dauða á mjög
skömmum tíma fái það ekki meðhöndlun. Að-
spurður segir Ragnar að árangur meðferðar
við sykursýki sé mjög góður hér á landi.
Jón Sólmundarson er formaður Dropans,
styrktarfélags barna með sykursýki, og faðir
unglingsdrengs með sykursýki. Hann segir
þjónustu við börn með sykursýki á Íslandi
framúrskarandi. „Hún er eins og best gerist
í heiminum. Á Barnaspítalanum er teymi
sérfræðinga sem fylgist mjög vel með börn-
unum,“ segir hann.
Að sögn Ragnars er ábyrgðin á meðferð
sykursýkisjúklings mestmegnis á höndum
sjúklingsins sjálfs eða fjölskyldu hans þó svo
að hún sé í samvinnu við sérfræðinga. Jón
segir að stuðningur foreldrasamfélagsins
sé mjög mikilvægur, jafnt fyrir foreldra sem
börnin sjálf og Dropinn sinni þar veigamiklu
hlutverki.
„Dropinn heldur reglulega fræðslufundi
fyrir foreldra og börn. Annað hvort ár eru
jafnframt haldnar sumarbúðir fyrir börn sem
eru nýafstaðnar. Unglingarnir hittast einnig
í sumarbúðum, annað hvort ár hér á landi og
annað hvort ár með öðrum sykursjúkum ung-
lingum erlendis,“ segir Jón.
Hann segir að sumarbúðirnar séu mjög
mikilvægur þáttur í fræðslu barna um sjúk-
dóminn. „Þau hittast og fræðast hvort af öðru
um sjúkdóminn en það er ekki síður mikil-
vægt að þau skemmta sér vel og koma ánægð
og glöð heim,“ segir hann. Í sumarbúðunum
er læknir og hjúkrunarfræðingur sem sjá um
eftirlit með börnunum allan sólarhringinn og
eru þau því í mjög öruggum höndum.
sigríður Dögg auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Sykursjúkum börnum
fjölgar stöðugt
Börnum sem greinast með sykursýki hér á landi fjölgar um þrjú prósent milli ára
og hefur sú þróun varað í nokkurn tíma á Vesturlöndum án þess að hægt sé að
greina orsakirnar. alls eru 120 íslensk börn með sykursýki og greinast 16-17 árlega.
sykursýki engin skýring á Fjölgun tilFella
Unglingarnir sem voru í sumarbúðum Dropans, styrktarfélags barna með sykursýki. Sumarbúðirnar eru mikilvægur þáttur í
fræðslu barna og unglinga um sjúkdóminn. Ljósmynd Skessuhornagnes setur arftaka
sinn í embætti
agnes m. sigurðardóttir, biskup
íslands, fer á heimaslóð um helgina
en á sunnudaginn messar biskup í
ísafjarðarkirkju og setur nýjan prófast
Vestfjarða, séra magnús erlingsson
sóknarprest á Ísafirði, í embætti.
agnes var prófastur Vestfjarða áður
en hún var kjörin biskup og jafnframt
sóknarprestur bolvíkinga. messan hefst
klukkan 11. kór ísafjarðarkirkju syngur
en organisti er hulda bragadóttir,
að því er fram kemur á vef Skutuls.
Eftir messuna verður kaffi í safnaðar-
heimilinu með nýjum biskupi og nýjum
prófasti. - jh
skorradalsviður í
almannagjá
„Við lögðum metnað okkar í að hafa ís-
lenskt efni í þessari brú og erum ákaflega
stolt af því að megnið af því efni sem
notað var er greni úr skorradal. Þetta eru
engar renglur því dekkið er klætt með sjö
á hálfs sentímetra þykkum plönkum,“ segir
ólafur örn haraldsson, þjóðgarðsvörður
á Þingvöllum, í viðtali við Skessuhorn en
timbur í dekk nýrrar brúar í almannagjá
kemur allt frá skógrækt ríkisins í skorradal.
ólafur sagði brúna þurfa að vera trausta og
því séu svo þykkir plankar í dekkinu. „Þarna
fara margir um,“ segir hann í viðtalinu, „og
á góðri viku getur fjöldi ferðamanna sem
fer um brúna verið um tuttugu þúsund.“ - jh
Brotalamir í eftirliti á flugvallarsvæðinu
4 fréttir Helgin 13.-15. júlí 2012