Fréttatíminn - 13.07.2012, Blaðsíða 27
Helgin 13.-15. júlí 2012 fréttir vikunnar 27
Uppskriftir á gottimatinn.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
silkimjúkt kallar
á stökkt og sætt
Stráðu múslí yfir gríska jógúrt og bættu í hana örlitlu
fljótandi hunangi. Svo tínirðu á diskinn girnilega
osta og brauð. Kannski færðu þér kaffi – en rólega
því ekkert á að gerast hratt í sumarmorgunverðinum.
Fært til bókar
J-ið stendur einfaldlega fyrir Jóhann
Þeir eru sammála um það Eiður Guðna-
son, fyrrverandi þingmaður, ráðherra og
sendiherra, og Egill Helgason dagskrár-
gerðarmaður að fordæma Staksteinaskrif
Morgunblaðsins síðastliðinn miðvikudag,
raunar aðeins stafinn J í þeim pistli. Þeir
voru ekki í vafa til hvers var vísað, það er að
segja illræmdustu svika sögunnar er Júdas
Ískaríot framseldi Jesús til rómverskra yfir-
valda fyrir 30 silfurpeninga. Í Staksteinum
var fjallað um makríldeiluna og afstöðu for-
ystumanna VG í þeim efnum og er vitnað til
skrifa Styrmis Gunnarssonar, fyrrverandi
ritstjóra Morgunblaðsins, á Evrópuvaktinni.
Voru þeir Steingrímur J. Sigfússon og Árni
Þór Sigurðsson sakaðir í Staksteinum um
að vera að undirbúa uppgjöf í málinu og að
eina leiðin til að koma í veg fyrir að „Stein-
grímur J. svíki“ í málinu sé að grasrótin í VG
„láti hann finna rækilega fyrir því í sumar að
hún taki ekki þátt í þeim svikum.“ Greininni
lýkur á þessum orðum: Veit Styrmir ekki
hvað J. í nafninu stendur fyrir? Eiður segir
á síðu sinni: „Staksteinahöfundur Morgun-
blaðsins náði nýjum botni í skrifum sínum
á miðvikudag
(11.07.2012).
Djúpt var niður
á botninn áður.
Enn dýpra nú.
Hann skrifar um
umfjöllun Styrmis
Gunnarssonar
um Steingrím
J. Sigfússon
ráðherra og segir:
Veit Styrmir ekki hvað J. í nafninu stendur
fyrir? Júdasartilvísunin æpir á lesandann.
Verri getur nokkur maður varla verið en
svikarinn Júdas. Áhangendur Morgun-
blaðseigenda og skrifara nota gjarnan nas-
istatilvísanir og tala um föðurlandssvikara
þegar rætt um þá sem styðja Evrópusam-
starfið. Nú hefur nýr maður verið leiddur til
leiks á síðum Moggans, – svikarinn Júdas.
Svona hefði Matthías aldrei skrifað, – ekki
Styrmir heldur. Þetta er heldur ógeðfellt.“
Egill grípur boltann á lofti og segir, undir
fyrirsögninni Brigsl: „Manni nokkrum sem
lengi hefur stundað pólitísk skrif varð það á
fyrir næstum tveimur áratugum að kalla mig
Júdas – það var vegna greinar sem ég hafði
skrifað í Alþýðublaðið sáluga. Hann iðraðist
eftir þetta og bað mig margfaldlega afsök-
unar. Ég tók það til greina og hef ekki erft
það við manninn. Hann sá að sér – þetta eru
brigsl sem eru ekki notuð í siðaðri umræðu.
En í fyrrum virðulegasta blaði landsmanna
er búið að draga pólitísk skrif niður á plan
slíks hamsleysis og haturs að brigsl af þessu
tagi eru orðin nánast daglegt brauð. Það
er ólíklegt að nokkur iðrun fylgi.“ Rétt er
að minna á að J-ið í millinafni Steingríms
stendur einfaldlega fyrir Jóhann.
Þessir lausgirtu lögmenn
„Mér er slétt sama hjá
hverjum hann leggst
en kannski leiðin-
legra ef Baltasar
ætti systkini út
um allar trissur.“
Kristrún Ösp
var í óvenju
hispurslausu
viðtali í barnablaði
Vikunnar meðan
barnsfaðir hennar, Sveinn
Andri Sveinsson lögmaður, hafði í
nægu að snúast í réttarsal og hafði
sigur fyrir hönd WikiLeaks gegn korta-
fyrirtækjum.
Það sem höfðingj-
arnir hafast að
„Með þessum hætti
blandar hann sér
beint sem eins
manns stjórn-
málaflokkur
í umræður í
samfélaginu jafnt
og á Alþingi enda
þótt hann hafi sagt í
fyrri sjónvarpsumræðunum að hlutverk
forsetans fælist ekki í að blanda sér í
umræður á þingi.“
Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræð-
ingur og forsetaframbjóðandi, hefur
eitt og annað við framgöngu forseta
lýðveldisins að athuga.
Engin vinsældakeppni
hjá Brynjari
„Það er ekki gæfuleg framtíðin
þegar menn, sem eiga að semja fyrir
okkur nýja stjórnarskrá,
gaspra um að rétt
sé að reka dómara
sem gerðir hafa
verið afturreka
með ranga dóma
af æðri erlendum
dómstóli.“
Beint í inn
í gríðarleg
fagnaðarlæti sem
brutust út í vefheimum þegar spurðist
að Mannréttindadómstóll Evrópu
hefði dæmt tveimur blaðakonum í vil,
skrifaði Brynjar Níelsson lögmaður
Pressu-pistil þar sem hann sagði
fögnuðinn einkennast af fávisku og
sjálfhverfu gaspri.
Veit Jón Bjarnason
af þessu?
„Reykjavíkurborg
fer með skipulags-
valdið á svæðinu
og það verður
ráðherra að virða
eins og aðrir.“
Dagur B. Eggerts-
son sendir Ögmundi
Jónassyni innanríkis-
ráðherra tóninn, en Ögmundur segir
að flugvöllurinn sé ekki að fara eitt né
neitt. En 2024 verður hann farinn, að
sögn Dags.
Vikan sem Var