Fréttatíminn - 13.07.2012, Blaðsíða 36
36 bílar Helgin 13.-15. júlí 2012
Skoda FlaggSkipið Superb
Prius+ væntanlegur
V ilji menn fá svolitla for-stjóratilfinningu er val á flaggskipi Skoda, Superb,
freistandi. Bíllinn er stór og rúm-
góður og plássið aftur í leyfir létta
forsetaveifu fyrir þá sem láta aka
sér milli staða. Áherslan er lögð á
góða aksturseiginleika og þægindi
enda segir á heimasíðu Heklu, þar
sem fjallað er um Suberb: „Aftur-
hurðirnar eru þær stærstu sem
framleiddar hafa verið fyrir Skoda
bifreið. Fyrir vikið er allt aðgengi
að aftursætunum með þægilegra
móti. Glæsilegt form er á fram-
hluta bílsins. Áberandi vatns-
kassahlífin er með krómumgjörð
og innfellt í hana er Skoda merkið.
Krómlistar umhverfis glugga-
rammana og innfelld stefnuljós í
hliðarspeglunum gefa bílnum áber-
andi hliðarsvip. Afturljósin mynda
C-laga form sem er einkennandi
fyrir allar Skoda bifreiðar.
Mælaborðið og stýri með þægi-
legu gripi eru þeir þættir sem fanga
athyglina í innanrýminu. Í breiðum
miðjustokknum er að finna sjálfvirkt
loftfrískunarkerfi, meira að segja í
grunngerð bílsins. Í öllum gerðum
Superb er efri hluti mælaborðsins
lagður svörtu Onyx efni. Neðri hlut-
inn er fáanlegur í þeim litum sem
best fara við það áklæði sem valið
er. Skreytilistar úr völdum efnum á
miðjustokki, dyraspjöldum og loft-
túðum skapa þægilegt andrúmsloft
og lúxustilfinningu inni í bílnum.“
Þá sameinar tvískiptur aftur-
hleri Suberb helstu kosti skutbíls
og venjulegs fólksbíls. Í Superb eru
ýmsar nýjungar í búnaði. Má þar
nefna öryggispúða fyrir hné öku-
manns ásamt hliðarpúðum aftur í,
alls 9 öryggispúðar, hindrunarvara
og Bi-Xenon aðalljóker með beygju-
búnaði.
Bíllinn fæst bæði með bensín- og
dísilvélum. Með 160 hestafla bens-
ínvélinni er í boði ný gerð af sjálf-
skiptum gírkassa með tvítengsli
sem hægt er að stjórna með rofum
í stýrishjóli. Hröðun með þeirri vél
úr 0 í 100 km/klst er 8.5 sekúndur.
Skoda Superb Ambition 1.8
TSI með 160 hestafla vél og sjálf-
skiptingu kostar 4.930.000 krón-
ur. Eyðsla hans er 7,1 lítri á hverja
hundrað kílómetra. Ambition 2.0
TDI, 140 hestafla sjálfskiptur kostar
4.990.000 krónur, eyðslan er 5,9 lítr-
ar. Ambition TDI, sjálfskiptur með
170 hestafla vél kostar 5.220.000
krónur, eyðslan er 6 lítrar og Ambi-
tion 2.0 TDI 4x4, sjálfskiptur með
140 hestafla vél kostar 6.190.000
krónur. Eyðslan 6,2 lítrar.
Skutbíl l inn, Skoda Superb
Combi með sömu vélum kostar frá
5.120.000 til 6.380 króna.
Forstjóratilfinning
og forsetaveifa
Bíllinn er stór og rúmgóður enda eru afturhurðirnar þær stærstu sem framleiddar hafa verið
fyrir Skoda
VolVo Nýir V40 og V60 kyNNtir
Bíll með vegfarendavörn
Framhjól V60 bílsins eru knúin af dísilvél en afturhjólin af rafmótor
Volvo kynnti nýja V40 og V60 á sýningu í Bretlandi um mán-
aðamótin. Nýi Volvo V40 er í flokki lúxus hlaðbaka, ríkulega
útbúinn hágæða tækninýjungum, segir á síðu umboðsins,
Brimborgar. „Bíllinn markar tímamót þar sem í fyrsta skipti
kemur á markað bíll með vegfarandavörn. Hún virkar þannig
að um leið og stjórnstöð móttekur neyðarmerkið losnar um
hjöruliði vélarhlífarinnar og hún lyftist upp við framrúðu
bílsins um leið og loftpúði fyllist á örfáum millisekúndum.
Það hefur í för með sér að það dregur úr högginu sem mynd-
ast við að vegfarandi skellur á vélarhlífinni í kjölfar ákeyrslu.
Auk þess er bíllinn með borgaröryggi sem staðalbúnað en
það er búnaður sem er sjálfvirk bremsa. Hann metur fjar-
lægð að bílnum fyrir framan og hægir sjálfkrafa á ferðinni
fari ökumaður óeðlilega nálægt honum eða stöðvar bílinn
alveg sé hætta á aftanákeyrslu. Í Volvo V40 virkar borgarör-
yggi upp í 50 km/klst í stað 30 km/klst í eldri tegundum.
Útblástur koltvísýrings í Volvo V40 D2 er 94 g/km og elds-
neytisnotkun í beinskiptu gerðinni 3,60 l / 100 km í blönd-
uðum akstri. Hann er með sex þrepa sjálfskiptingu og 1,6
lítra dísilvélin skilar 115 hestöflum og 270 Nm í togi auk
þess að vera með start/stop tækni sem slekkur á vél bílsins
þegar hann er kyrrstæður, eins og t.d. í þungri umferð eða
á ljósum. Með þeirri tækni sem Volvo V40 státar af leiðir til
þess að rekstrarkostnaður bílsins lækkar.“
Á sýningunni var einnig nýi hlaðanlegi dísil tengil-tvinn-
bíllinn, Volvo V60 D6 AWD kynntur til sögunnar. „Hann er
tæknilegasti Volvo-bíllinn og klárist rafmagnið tekur öflug
dísilvélin við,“ segir á síðu Brimborgar.
Framhjól Volvo V60 tengil-tvinnbílsins eru knúin áfram af
fimm strokka 2,4 lítra túrbó dísilvél sem er 215 hestöfl með
hámarkstogi upp á 440 Nm. Afturhjólin eru hinsvegar knúin
áfram af rafmótor sem skilar 70 hestöflum og er samanlögð
losun koltvísýrings 49 g/km.
Nýr Volvo V 40.
Bílinn er búinn
vegfarendavörn.
Toyota Prius+, sjö manna fólksbíll, var kynntur á bílasýningunni í Frankfurt í fyrra. Fram
kemur á síðu Toyota að bíllinn sé væntanlegur hingað til lands. Þar segir að Prius+ sé ný
hönnun. Bíllinn rúmar fullorðna í öllum þremur sætaröðum og er hver sætaröð 45mm
hærri en sú fyrir framan og hafa þar með allir gott útsýni.
„Að utan er Prius+ með blöndu af mjúkum og ávölum línum til að minnka loftmót-
stöðu og auka þar með sparneytni bílsins.
Mjög svo fyrirferðarlítill lithium-ion rafhlöðupakki er staðsettur á milli framsætanna
og tekur þar af leiðandi ekkert pláss frá farþegum eða farangursrými. Í annarri sæta-
röðinni er hægt að fella niður sætin hvert fyrir sig og er þriðja sætaröðin niðurfellanleg í
50/50. Þetta fyrirkomulag hámarkar nýtingu á plássi og sveigjanleika.“
Prius+ er búinn nýjustu útgáfu af „Toyota Hybrid Synergy Drive“. Eins og í Prius eru
þrjár akstursstillingar: EV-stilling sem
keyrir eingöngu á rafmagni, allt að 2
kílómetra, ECO-stilling fyrir sparneytinn
akstur og Power-stilling fyrir hámarksafl.
Upplýsingaskjár í framrúðu og
lyklalaust aðgengi er staðalbúnaður og
valmöguleikar í öryggisbúnaði eru til
dæmis aðlögunarhæfur hraðastillir og
árekstrarforvarnarkerfi. Prius+, eins og
aðrir bílar í Prius-fjölskyldunni, býður upp
á val margmiðlunar og leiðsögukerfa.
Sjö manna fólksbíll sem væntanlegur er
frá Toyota, Prius+.
Skoda Superb, rúmgóður og þægilegur, með „lúxustilfinningu“.-þegar gæði verða lífsstíll
Vantar glæsivagna
í salinn. Frítt í júlí
og ágúst.
Við seljum bílinn þinn
meðan þú slappar af
Mikil sala!
Vilt þú selja bílinn þinn?
Settu hann á skrá
hjá okkur frítt!
Funahöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | hofdahollin@hofdahollin.is
Funahöfða 1 | 110 Reykjavík | Sími 580 8900 | bilalind.is
Fylgstu með
okkur á Facebook
Hyundai Santa Fe fæst
með metanbúnaði
Vinsæll jepplingur fæst með dísilvél eða bensínvél og metanbúnaði.
HyuNdai aukiN SparNeytNi með díSil eða metaN
Hyundai Santa Fe er vinsæll jepplingur í íslenskum
bílamarkaði. Hann er með nýja sparneytna 197
hestafla dísilvél sem togar 437 Nm við 2000 snúninga
á mínútu. Eyðsla í langkeyrslu er 6,2 lítrar á ekna
100 kílómetra. Bíllinn er með 6 þrepa sjálfskiptingu,
tölvustýrða stöðugleikastýringu og spólvörn, leður-
innréttingu með rafstýrðum sætum, sóllúgu, Blueto-
oth-símabúnað, hljómtæki, aksturstölvu, tvískipta
miðstöð með lofthreinsibúnaði og kemur á álfelgum
Hyundai Santa Fe er nú fáanlegur með metanbún-
aði sem er hefur verið sérstaklega hannaður fyrir
Santa Fe, að því er fram kemur á síðu umboðsins, BL.
Metanbúnaðurinn í Santa Fe gerir það að verkum
að aðflutnings- og bifreiðagjöld bílsins lækka og því
fæst rúmgóður fjóhjóladrifsbíll á hagstæðu verði
með 2,4 lítra, 174 hestafla bensínvél, fjórhjóladrifi,
stöðugleikastýringu, spólvörn, skriðstilli og tvöfaldri
loftkælingu.
„Fyrir þá sem aka 20.000 km á ári,“ segir enn
fremur, „er hægt að spara allt að 160.000 kr. í elds-
neytiskostnað á sama tímabili með metnabúnað-
inum. Auk þess sem viðkomandi leggur verulega
af mörkum í minnkun gróðurhúsalofttegunda því
þegar bílnum er ekið á metani fer CO2 útblásturinn á
bílnum í 0gr/km.“
Hyundai Santa Fe kostar frá 5.990 krónum til 7.790 króna
eftir gerð og búnaði.
67% ... kvenna á höfuðborgarsvæðinu lesa Fréttatímann*
*konur 25 – 80 ára
á höfuðborgarsvæðinu.
Capacent okt.-des. 2011