Fréttatíminn - 13.07.2012, Blaðsíða 20
Hin óhamingjusama Lohan
Lindsay Lohan er 26 ára í dag, 2. júlí. Hún hefur háð
glímu við áfengis- og vímuefnafíkn mörg undan-
farin ár; eins og rækilega hefur verið sagt frá í fjöl-
miðlum út um allan heim. Hún hefur farið í margar
meðferðir; stundum
sjálfviljug en hún hef-
ur líka verið dæmd
til ýmisskonar með-
ferðar eða fræðslu um
áfengis- og vímuefni;
eins og hefur tíðkast
við bandaríska dóm-
stóla undanfarin ár.
Lindsay Lohan er nú
að leika Elizabetu
Taylor í mynd um þá
merku leikkonu og
alkóhólista. Í kjölfar
dauða Amy Wine-
house úr áfengiseitr-
un var nokkuð rætt
um siðferðislegar hliðar þess að fjölmiðlar veltu sér
linnulaust upp úr sjúkdómsglímu frægs fólks; en sú
umræða fjaraði fljótt út. Og fréttir af óhamingjusömu
lífi Lindsay Lohan berast nær daglega um heims-
byggðina.
Yfirgengilegt hóglífi Hinriks
áttunda
Hinrik 8. Bretakóngur fæddist
þennan dag, 28. júní, 1491 (fyrir 521
ári síðan). Hann dó saddur lífdaga
55 ára; margfalt of þungur vegna
matarfíknar og útjaskaður á sál
og líkama af hóglífi, drykkjuskap,
meiðslum sem hann varð fyrir und-
ir áhrifum og taumlausri spilafíkn
— og líklega yrði hann í dag talinn
illa haldinn af kynlífsfíkn (alla vega
sambandsfíkn); giftur sex sinnum
og hélt auk þess óteljandi hjákonur.
Það leit ekki svona illa út fyrir Hin-
rik sem ungum manni; hann var í
raun fyrsti vel menntaði kóngur Englendinga; al-
talandi og -skrifandi á ensku, latínu og frönsku og
var vel heima í þeirra tíma þekkingarheimi; var list-
fengur, orti ljóð og samdi tónlist. Hinrik var í raun
frábær kóngur til að byrja með en alveg óhæf mann-
eskja þegar á leið æfina. Í sjálfu sér er ekki hægt að
fullyrða að Hinrik hafi verið alkóhólisti; það hugtak
var ekki til á hans dögum og brennd vín höfðu ekki
einu sinni borist til Englands þegar hann dó. En
miðað við gögn frá hirðinni er talið að hann hafi
drukkið um fjóra og hálfan lítra af öli á dag öll sín
fullorðins ár; og þótt við gerum ráð fyrir að ölið hafi
ekki verið sterkara en 4% þá jafngildir það neyslu á
um 65 áfengislítrum á ári (meðalneyslan í Rússlandi
er um 15 lítrar á mann). Líklega gæti enginn drukkið
slíkt magn án þess að þróa með sér alkóhólisma.
Maquire heldur sér edrú
Ágætisleikarinn Tobey Maguire á afmæli í dag, 27.
júní; hann er 37 ára gamall. Og hann mun líklega
einnig halda upp á 12 ára edrú-afmælið sitt í ár en
Tobey hefur verið edrú frá því hann var 25 ára.
Meðal mynda sem hann hefur leikið í má nefna The
Ice Storm, Pleasantville, The Cider House Rules,
Wonder Boys, Cats & Dogs og Spiderman; og brátt
munum við sjá hann í Life of Pi og The Great Gatsby.
Saga dagsins er því ekki svo sorgleg að þessu sinni;
þær verða oft gleðilegri sögurnar af ölkunum þegar
dregur nær okkar tíma.
Ódæll
kántrísukkari
K ris K ristof ferson
fæddist þennan dag,
22. júní, 1936 og á
því 76 ára afmæli í
dag. Hann var einn
af ódælu drengjum
kántrítónlistarinnar
(og menn þurfa að
vera mjög ódælir til
að falla í þann flokk)
þar til að hann hætti
að drekka fertugur og
mun því líklega fagna
36 ára edrúafmæli í ár.
Kris hefur samið mörg lög og texta um drykkju og
drykkjumenn; meðal annar Sunday Morning Coming
Down á hátindi drykkju sinnar; sem hann syngur hér
með öðrum alkóhólista, Johnny Cash, í jólaþætti Cash
frá 1978. Þá hafði Johnny Cash ekki drukkið í tíu ár
en var nýfallinn í amfetamínneyslu sem hann glímdi
við ævina á enda; átti löng edrútímabil en svo mislöng
neyslutímabil þess á milli.
Í meðferð tæplega áttræð
Afmælisbarn dagsins er kynbomban Jane Russell.
Hún lifði engu venjulegu lífi. Ofan á hefðbund-
inn Hollywood-glamúr og raðkvæni bættist sót-
svört íhaldsmennska og logandi trú á lifandi Krist;
hún reyndi meir að
segja að snúa Mari-
lyn Monroe til trúar
við tökur á Gentle-
men Prefer Blondes.
Drykkja var ekki telj-
andi vandamál fyrir
Jane Russell, ekki fyrr
en hún eltist og það
hægði á starfsemi lík-
amans; þá drakk hún
í sig alkóhólima og fór
að misnota lyf. 79 ára
gömul dreif hún sig hins vegar í meðferð og lifði
edrú síðustu tíu ár æfinnar. Undir lokin lýsti hún sér
svona: „These days I am a teetotal, mean-spirited,
right-wing, narrow-minded, conservative Christian
bigot, but not a racist.“
Það er meira
framboð af
dópi og brenni-
víni í popp-
heimum og því
fleiri veikir þar.
20 úttekt Helgin 13.-15. júlí 2012
1
2
-1
1
9
4
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Með öllum snjallsímum, spjaldtölvum
og 3G búnaði hjá Vodafone fylgir 30
daga aðgangur að NetFrelsi SkjásEins.
Veldu rétta gagnamagnspakkann fyrir
fjölskylduna, svo hún geti horft á sína
uppáhaldsþætti hvar og hvenær sem er.
Þín ánægja er okkar markmið
Law & Order í spjaldtölvuna:
330 MB
5 GB
1.990 kr.
á mánuði
iPad 16 GB 7.660 kr. á mán. í 18 mánuði.
Tölur um gagnamagn miðast við meðalsjónvarpsþátt, 45 mín. að lengd.
Þóknun til Borgunar nemur 340 kr. á hverja greiðslu.