Fréttatíminn - 13.07.2012, Blaðsíða 8
„Ég var
alveg að
því kominn
að biðja
læknana
að hætta
við þegar
að þessu
kom.“
H
jónin Paulina Garcia Romero
og Friðfinnur Finnbjörnsson
ákváðu að vandlega íhuguðu
máli að fækka fóstrunum í
þrjú. „Læknar höfðu ráðlagt
okkur að fækka þeim í tvö og
ég held að við hefðum ekki
treyst okkur til þess að taka ákvörðun um annað
nema vegna þeirrar hjálpar sem við fengum frá
fólki eftir að saga okkar birtist í Fréttatímanum.
Við erum mjög þakklát fyrir það,“ segir Friðfinnur.
Paulina tekur undir það með honum: „Ég veit að
það munu margir hafa skoðun á því að við fórum
með þetta mál í fjölmiðla en fyrir okkur var það
rétt, það hjálpaði okkur sannarlega við þessa erfiðu
ákvörðun,“ segir hún. “Þetta var erfiðasta ákvörðun
lífs míns.”
Þau segjast sátt við að hafa tekið þá ákvörðun að
fækka fóstrunum um tvö þótt það hafi verið þeim
mjög erfitt. „Ég vissi að þetta var það rétta í stöð-
unni eftir að hafa ráðfært mig við íslenska móður
sem gekk í gegnum svipaða reynslu og þurfti að
fækka fóstrum úr fjórum, og eftir að hafa talað við
Erfiðasta ákvörðun lífs míns
að fækka fóstrunum í þrjú
Hjónin sem áttu von á fimmburum og Fréttatíminn hefur fengið að fylgjast með eru þakklát fyrir þá hjálp sem þau fengu eftir að hafa sagt sögu sína
í blaðinu. Þau komust í samband við fólk sem hafði gengið í gegnum svipaða reynslu og sérfræðinga erlendis sem hjálpaði þeim að taka þá erfiðu
ákvörðun sem þau stóðu frammi fyrir; hvort þau ættu að taka þá miklu áhættu sem felst í fimmburameðgöngu eða fækka fóstrunum eins og íslenskir
læknar ráðlögðu. Sigríður Dögg Auðunsdóttir ræddi við hjónin.
bandarískan sérfræðing í fjölbura-
meðgöngum. Íslenska konan fór að
ráðleggingum lækna og fækkaði í
tvö. Við vorum ekki tilbúin til þess
að fækka um þrjú enda er áhættan
á fósturláti fyrir eftirlifandi fóstur
meiri eftir því sem fóstrin sem
fækkað er eru fleiri, eftir því sem
bandaríski læknirinn sagði okkur,“
segir Paulina.
Þarf teymi reyndra lækna
Sérfræðingurinn sagði þeim líka
að hann mælti ekki með fimmbura-
meðgöngu nema með mjög reyndu
og færu teymi lækna. „Læknarnir
hér á Íslandi hafa enga reynslu af
fimmburameðgöngu og aðeins
einu sinni hafa fæðst fjórburar hér
á landi, fyrir tuttugu árum,“ bendir
Friðfinnur á. „Okkur fannst því að
ef við ættum að vera örugg með
þessa meðgöngu yrðum við að fara
til Bandaríkjanna. Við könnuðum
þann möguleika og það hefði ein-
faldlega reynst of kostnaðarsamt,“
segir hann.
Paulina og Friðfinnur kynnt-
ust haustið 2009 þegar Paulina
kom sem háskólaskiptinemi í Há-
skólann í Reykjavík en hún er frá
Mexíkó „Ég ætlaði bara að vera
hér í hálft ár en svo breyttist það
því ég kynntist Fridda,“ segir Paul-
ina. „Ég var búin að vera sex mán-
uði í Kanada og sex mánuði hér og
háskólinn sem ég var í í Mexíkó
leyfir aðeins eins árs skiptidvöl.
Mamma hringdi hins vegar í skól-
ann og útskýrði að ég væri búin
að eignast kærasta á Íslandi og þá
gerði skólinn undantekningu og
mér var leyft að vera lengur,“ segir
Paulina brosandi.
Friðfinnur grípur inn í: „Raun-
veruleg ástæða er hins vegar sú að
hún er afburðanemandi, með 9,6
í meðaleinkunn í virtasta háskóla
Mexíkó þannig að skólinn vildi
einfaldlega allt fyrir hana gera.“
Paulina fór síðan út aftur í fimm
mánuði til að ljúka BA-námi sínu í
viðskiptafræði og flutti síðan aftur
til Íslands. „Við giftum okkur samt
fyrst, áður en hún fór út,“ segir
Friðfinnur. Það var 12. maí 2010.
Þegar þau eru spurð af hverju það
hafi legið svona á að gifta sig segir
Friðfinnur: „Við vissum að þetta
var það sem við vildum.“ Paulina
tekur við: „Það var eins og við
hefðum alltaf þekkst. Við erum
ennþá stundum hissa á því hvað
við erum tengd.“ Friðfinnur bætir
við: „Við erum mjög ástfangin,“ og
kyssir Paulinu á vangann.
Paulina segir að vinir og fjöl-
skylda hafi undrað sig á því hvað
þau hefðu gift sig eftir skamma
Hjónin Paulina Garcia Romero og Friðfinnur Finnbjörnsson ákváðu að vandlega íhuguðu máli að fækka fóstrunum úr fimm í þrjú. Læknar höfðu ráðlagt þeim að fækka þeim í tvö. Ljósmynd Hari
8 viðtal Helgin 13.-15. júlí 2012