Fréttatíminn - 13.07.2012, Page 10
sambúð. „Ég heyrði það á fólki að sumir héldu að
við værum að giftast svo ég gæti verið hér lengur,
en það var sko alls ekki ástæðan. Ég þurfti þess
ekkert. Ég þurfti ekkert að komast frá Mexíkó. Ég
kem frá vel stæðri fjölskyldu og hafði það mjög gott
þar. Það var bara Friddi sem gerði það að verkum
að ég vildi vera áfram á Íslandi,“ segir hún og hlær.
„Um leið og fólk kynntist mér betur sá það náttúru-
lega hver raunverulega ástæðan var,“ bætir hún við.
Missti fóstur 2011
Friðfinnur var á Íslandi á meðan Paulina var í
Mexíkó að ljúka námi sínu. „Þá fórum við að plana
fjölskyldu. Stuttu eftir að ég kom aftur til Íslands, í
desember 2010, varð ég ófrísk en ég missti fóstrið í
febrúar. Þá kom í ljós að ég hefði í raun ekki átt að
geta orðið ófrísk með náttúrulegum hætti því ég
var með blöðrur á eggjastokkunum. Við reyndum
samt áfram í ár með hjálp kvensjúkdómalæknis og
lyfja en loks var okkur sagt að við yrðum að leita
til Art Medica og fá hjálp. Við gerðum það og eftir
meðferð í mánuð var tæknisæðing framkvæmd og
það tókst svona vel,“ segir hún.
Alls frjóvguðust fimm egg í tæknisæðingunni en
að sögn Guðmundar Arasonar, frjósemislæknis á
Art Medica, er afar sjaldgæft á heimsvísu að slíkt
gerist og einsdæmi hér á landi, eins og áður sagði.
Tæknisæðing fer þannig fram að konunni er gefið
hormón til að örva vöxt og þroska eggbúa. Síðan
eru sæðisfrumur settar upp í leghol konunnar með
örfínum plastlegg. Í annarri sónarskoðun á Art
Medica kom í ljós að fóstrin voru fimm og var hjón-
unum í framhaldi vísað til fæðingalæknis á kvenna-
deild Landspítala Íslands, Huldu Hjartardóttur
yfirlæknis. Hún staðfesti með sónarskoðun að
fóstrin væru fimm og þau döfnuðu vel og virtust öll
heilbrigð. „Það voru bæði góðar og slæmar fréttir,“
segir Paulina. „Auðvitað vildum við að börnin væru
öll heilbrigð en við vorum líka smá að vona að við
myndum ekki þurfa að taka þessa ákvörðun sjálf,“
segir hún.
Þau höfðu um mánuð til að taka ákvörðun um
framhaldið. „Ég held, að ef við hefðum ekki komist
í samband við þetta fólk sem hafði samband við
okkur í gegnum Fréttatímann, hefðum við látið
undan þrýstingi lækna og fækkað fóstrunum í tvö,“
segir Paulina. „Við hefðum aldrei orðið fyllilega
sátt við það og hefðum alltaf hugsað: Hvað ef við
hefðum eignast þrjú?“
Erfitt andlega og líkamlega
Rúm vika er liðin síðan Paulina fór í aðgerðina
þar sem fóstrunum var fækkað. Hún segir það hafa
verið erfiða stund. „Þetta var mjög sárt, bæði and-
lega og líkamlega, en ég vissi að sá möguleiki var
ekki raunverulega fyrir hendi að
eignast þau öll því það hefði verið
of mikil áhætta, bæði fyrir mig
og börnin,“ segir hún. Friðfinnur
bætir við: „Ég var alveg að því
kominn að biðja læknana að hætta
við þegar að þessu kom.“
Paulina fékk staðdeyfingu og
tók aðgerðin um 15 mínútur. „Ég
var hjá henni og hélt í höndina
á henni en fylgdist með því sem
fram fór á sónarskjánum sem
læknarnir notuðu til að staðsetja
fóstrin,“ segir Friðfinnur. „Það var
hræðilegt að fylgjast með þessu
en ég vildi samt gera það til að
vera viss um að það yrðu engin
mistök gerð,“ segir hann. Fóstr-
unum tveimur var eytt með því að
sprauta efni í hjarta þeirra. Farið
er með sprautunál í gegnum kvið
konunnar og legvegg.
„Við eigum myndband af sónarn-
um þar sem öll fimm fóstrin eru lif-
andi. Það er mjög dýrmætt,“ segir
Friðfinnur. „Við fengum líka að sjá
þegar við fórum í sónar nú í vik-
unni að þrjú fóstrin eru heilbrigð
og virðast vaxa eðlilega en tvö eru
látin,“ segir Friðfinnur. „Við höfum
fengið að eiga sónarmynd af öllum
þeim skiptum sem við höfum farið
í sónar, en við vildum ekki fá mynd
í þetta skipti,“ bætir Paulina við.
„Það er of erfitt. Við ætlum bara
að bíða þangað til börnin þrjú eru
orðin stærri.“
Paulina er undir ströngu eftir-
liti á Kvennadeild Landspítalans
þar sem þríburameðganga er talin
áhættusöm meðganga. Enn sem
komið er gengur allt vel og eru
hjónin bjartsýn um framhaldið,
eru búin að reikna það út að
þríburarnir muni koma til með að
nota sjö þúsund bleyjur fyrsta árið.
„Það eru nokkrir bleyjupakkar,“
segir Friðfinnur og dæsir í gríni.
„Svo er allt hitt: þrír bílstólar,
þríburakerra, þrjú barnarúm...
Þetta verður ævintýri,“ segir hann
og brosir.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
„Ég kem
frá vel
stæðri fjöl-
skyldu og
hafði það
mjög gott
þar. Það
var bara
Friddi sem
gerði það
að verkum
að ég vildi
vera áfram
á Íslandi.“
ÓDÝRASTI
ÍSINN
Í BÓNUS
Á ÞRIÐJA HUNDRAÐ EURO SHOPPER
VÖRUTEGUNDIR Í BOÐI
398 kr.
12 stk.
498 kr.
8 stk.
298 kr.
3 stk.
10 viðtal Helgin 13.-15. júlí 2012