Fréttatíminn


Fréttatíminn - 13.07.2012, Qupperneq 33

Fréttatíminn - 13.07.2012, Qupperneq 33
 ferðir Björgunarsveit endurvakin undir eyjafjöllum Ferðafélagið Útivist og verslunin Íslensku Alparnir hafa tekið höndum saman um styrk til björgunarsveitar- innar Bróðurhöndin undir Eyjafjöllum. Björgunarsveitin hefur nú verið endurvakin af vöskum Eyfellingum, en starfsemi hennar hafði verið í lægð um allnokkurt skeið. Styrkurinn er í formi gjafabréfs á vörur frá versluninni Íslensku Alparnir. Að sögn Skúla H. Skúlasonar fram- kvæmdastjóra Útivistar er það mikið fagnaðarefni að fá virka björgunarsveit undir Eyjafjöllum. Er þar einkum horft til gönguleiðarinnar yfir Fimm- vörðuháls en umferð göngumanna um hálsinn hefur aukist mikið eftir eldgosið árið 2010. Útivist hefur um langt skeið látið sig varða öryggismál á gönguleiðinni, rekur þar gönguskála og stendur þar ár hvert fyrir fjölda ferða undir leiðsögn. Alltof algengt er að göngumenn sem ferðast þar á eigin vegum eru vanbúnir til slíkrar ferðar, bæði hvað varðar fatnað og öryggis- búnað, auk þess sem margir hafa ekki til að bera þá þekkingu sem þarf til slíkra ferða. Því er full þörf á að björg- unarsveit sé til taks í næsta nágrenni og Útivist vill með þessu leggja ofurlítið lóð á vogarskálarnar til að styrkja við starfsemi sveitarinnar. Guðmundur Gunnlaugsson eigandi verlsunarinnar Íslensku Alparnir segir það ánægjulegt að geta stutt við stofn- un nýrrar björgunarsveitar. Verslunin býður mikið og gott úrval að búnaði til fjallamennsku og vonast til að gjöfin nýtist starfsemi björgunarsveitarinnar sem best. Starfsemi björgunarsveita er grunnstoð í fjallamennsku og útivist á Íslandi og fjölmargir kynnast þessu áhugamáli í gegnum starfsemi þeirra. Útivist og verslunin Íslensku Alparnir styrkja björgunarsveit Við gosstöðvarnar á Fimmvörðuhálsi. Mynd Fanney Gunnarsdóttir Eftir lagfæringar. Mynd: Óskar Andri Við upphaf lagfæringa. Mynd: Óskar Andri Ferðaklúbbsins 4x4. Að sögn Skúla H. Skúlasonar hjá Útivist, hafa bæði Útivist og Ferðaklúbburinn 4x4 að mark- miði sínu að stuðla að góðri umgengni við náttúruna sam- hliða því að vera vettvangur fyrir áhugafólk um ferðalög um hana og sveið marga að sjá þau ummerki sem þarna var að finna og var auðsótt mál að fá félaga með í leiðangurinn. Í umræðunum sem spunnust í nóvember kom meðal annars fram sú hugmynd hjá Þorleifi Eggertssyni að hvetja alla jeppa- ferðalanga á hálendinu til að fjárfesta í hrífu og hafa með sér á ferð um landið. Þeir gætu hæg- lega fest hana á bílinn með skófl- unni og járnkarl inum. Síðan er hægt að taka stopp í um 10 mín- útur á dag á ferðum sínum og laga sjáanlegar skemmdir sem á veginum verða: Að þetta væri bæði góð hvíld frá akstri og um leið hin besta hreyfing. Ferða- langar allir verða að sameinast um að verjast utanvegaakstri og vera góð fyrirmynd. Lokað á gervislóða. Mynd: Óskar Andri ferðir 33Helgin 13.-15. júlí 2012

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.