Bókbindarinn - 01.03.1956, Blaðsíða 3
Marz 1956
1. tbl. — 1. árg.
T
S
Gók
ÚTGEFANDI:
BÓKBINDARAFÉLAG ÍSLANÐS
Bókbindarinn
RITNEFND:
Fylgt úr hlaöi
HELGI HRAFN
HELGASON
SVANUR
JÓHANNESSON
TRYGGVI
SVEINBJÖRNSSON
ÁBYRGÐARMAÐUR:
TRYGGVI
SVEINBJÖRNSSON
*
MYNDAMÓT:
LITRÓF
PRENTUN:
VÍKINGSPRENT
HEFTING:
BÓKFELL H.F.
Blað þetta er geíið út í tilefni af því, að 50 ár eru liðin
síðan fyrstu samtök bókbindara á Islandi voru stofnuð.
Eins og sjá má af því, að það er merkt sem 1. tölu-
blað 1. árgangs, er þó svo til ætlazt að hér verði ekki
staðar numið, heldur hefji Bókbindarafélag fslands hér
með útgáfu eigin málgagns, er hafi því hlutverki að
gegna, að vera hvort tveggja í senn, hjálpartæki í hags-
munabaráttu stéttarinnar og vettvangur alls konar fróð-
leiks, er iðn vora varðar.
Að öðru leyti skal hér ekki fjölyrt um framtíðarhlut-
verk eða -horfur blaðs þessa og engu lofað, enda er
það ekki á okkar valdi að gefa nein fyrirheit þar að
lútandi.
Um efni þessa afmælisblaðs skal heldur ekki rætt.
Það verður að kynna sig sjálft. Okkur eru annmarkar
þess vel ljósir, en höfum okkur það helzt til afsökunar,
að ákvörðun um útkomu þess var seint tekin, en hins
vegar ekki talið fært að láta hana dragast úr hófi fram,
eftir að afmælisdagurinn var liðinn.
Biðjum ykkur þó, góðir félagar, vel að njóta.
RITNEFNDIN
LAND'jR'ÍKASAFN
217353
ÍSLANOS