Bókbindarinn - 01.03.1956, Blaðsíða 20

Bókbindarinn - 01.03.1956, Blaðsíða 20
AVARP Eðvarðs Sigurðssonar, varafforsefa Alþýðusambands íslands Flutt á afmœlishátíðinni að Röðli Góðir félctgar og aðrir tilheyrendur! Er þið í dag minnist þess að 50 ór eru liðin frá stofnun fyrstu félagssamtaka bók- bindara á Isfandi flyt ég ykkur beztu kveðjur og hugheilar árnaðaróskir Al- þýðusambands Islands. Það er raunar mjög eðlilegt, en um leið einnig ánægjulegt, að hjá okkur íslend- ingum, þessari marg lofuðu bókmennta og bóka þjóð, skuli það vera bókagerð- armennimir sem verða meðal þeirra fyrstu og fyrstir til að stofna til stéttarsamtaka verkalýðsins í landi okkar. Bókagerðarmennirnir hafa, eins og aðr- ar starfsstéttir, fundið þörfina fyrir það að bæta hag sinn, og þegar þeir fóru að vinna fleiri saman á stofunum og í smiðj- unum, óx skilningur þeirra á því, að frum- skilyrðið til að bæta afkomu hvers og eins persónulega og alls hópsins væri að þeir stæðu sjálfir sameinaðir, mynduðu félags- skap, samtök. Og það gerðu þeir. En brátt komust þeir, sem stofnað höfðu félögin, að þeirri niðurstöðu, að það var ekki nægjanlegt, félögin þurftu að vinna saman, það varð að stofna samtök félag- anna — verkalýðssamband. Ég var fyrir nokkru síðan, að gefnu til- efni, töluvert að blaða í gömlum bókum og skjölum Verkamannafélagsins Dags- brúnar. Af þeim verður séð, að fram að ár- inu 1915 eru það aðallega þrjú félög hér í Reykjavík sem koma við sögu í sam- starfi verkalýðsfélaganna og þessi félög eru Dagsbrún, Prentarafélagið og sam- tök bókbindara. Öll stóðu þessi félög að stofnun Verkamannasambands Islands árið 1907, sem er fyrsta tilraun til að stofna verkalýðssamband hér á landi. Sambandið lifði að vísu ekki nema 2—3 ár, en er engu að síður merkur áfangi í þróuninni. 1916 eru það enn þessi þrjú félög ásamt tveim öðrum, þá nýstofnuð- um, Hásetafélaginu og Verkakvennafélag- inu Framsókn, sem gangast fyrir stofnun Alþýðusambands Islands og það eru bók- bindarar sem leggja til formann undirbún- ingsnefndarinnar, Þorleif Gunnarsson. Alþýðusamband íslands hefir oft síðan notið góðra krafta úr samtökum bókbind- ara og man ég þar helzt að nefna Pétur G. Guðmundsson, einn af framsýnustu brautryðjendum verkalýðshreyfingarinn- ar, sem um mörg ár átti sæti í stjórn Al- þýðusambandsins, meðal annars sem rit- ari þess, og Guðgeir Jónsson, formann ykkar, er var forseti sambandsins í tvö ár. Það eru því ekki innantóm orð er ég flyt ykkur þakkir og árnaðaróskir Alþýðu- sambandsins í dag, vissulega er margs

x

Bókbindarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókbindarinn
https://timarit.is/publication/951

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.