Bókbindarinn - 01.03.1956, Page 10
10
BÓKBINDARINN
1915
26. apríl. Stofnfundur Bókbandssveina-
félags Reykjavíkur.
f áliti undirbúningsnefndar, sem kosin
hafði verið á áður höldnum fundi, segir
m. a., eftir að færð hafa verið rök að því
að ekki komi til mála að endurlífga Bók-
bandssveinafélag Íslands.
„Skyldi enginn ætla að vér álítum enga
þörf á slíkum félagsskap. Þvert á móti. Við
leggjum eindregið til, og leggjum mikla
áherzlu á, að bókbandssveinar í Reykja-
vík hefjist nú handa, og stofni nýtt félag
til að gæta hagsmuna sinna, og í sam-
ræmi við þá skoðun leggjum vér fyrir
fundinn uppkast að lögum fyrir væntan-
legt „Bókbandssveinafélag Reykjavíkur".
Vér treystum því fastlega að með góðri
samvinnu, og fastheldni við sanngjamar
kröfur, að oss verði mögulegt að komast
að viðunanlegum samningum við vinnu-
veitendur, sem vér álítum vonlítið fyrir
hvern einstakann".
Félagsstofnunin var síðan samþykkt í
einu hljóði.
f undirbúningsnefndinni voru: Bryjólfur
K. Magnússon, form., Lúðvík Jakobsson,
sem var framsögumaður hennar, og Bjöm
Bogason.
28. apríl. Framhaldsstofnfundur. Sam-
þykkt lög og kosin stjóm.
Skipuðu hana eftirtaldir: Lúðvík Jakobs-
son, formaður, Bjöm Bogason, ritari, Brynj-
ólfur Kr. Magnússon, féhirðir.
Um tilgang félagsins segir svo í lög-
unum:
„Tilgangur félagsins er sá, að bæta og
vernda vellíðan þeirra manna, er stunda
bókbandsiðn, halda uppi jafnrétti þeirra
gagnvart vinnuveitendum og öðmm stétt-
um og — að svo miklu leyti sem unnt er,
tryggja þeim sæmilega lífsstöðu í framtíð-
inni. Ennfremur, að styðja af megni að
öllu því, er lýtur að fullkomnun og fram-
fömm í bókbandsiðn. Og skal félagið,
samkvæmt þessum tilgangi, leitast við að
koma á samvinnu og samtökum meðal
allra, er bókbandsiðn stunda, efla áhuga
þeirra með fundum og ræðuhöldum, ná
samningum og samkomulagi við vinnu-
veitendur og önnur félög, sem hafa svip-
að markmið, ef það horfir félaginu til
heilla."
10. maí. Félagsfundur. Samþykkt að
bera fram efirfarandi kröfur sveina til
meistara:
1. Enginn maður fái vinnu við bókband,
nema hann sé í Bókbandssveinafélagi
Reykjavíkur.
2. Enginn nemandi verði tekinn næstu 3
ár, ella verði námstíminn minnst 5 ár.
3. Einn nemandi sé á móti þremur svein-
um og aldrei fleiri en 2 á sömu vinnu-
stofu.
4. Kaup sveina verði sem hér segir: 1.
árið kr. 21.00, 2. árið kr. 22.00, 3. árið
kr. 23.00 og úr því kr. 24.00 á viku.
Samningsvinna sé miðuð við hæsta
vikukaup.
5. Viku sumarleyfi án skerðingar á
kaupi.
6. Lögboðnir helgidagar borgaðir með
tilsvarandi tímakaupi.
7. Eftirvinna, til kl. 10 e. m., greiðist með
10 aura og nætur- og helgidagavinna
með 20 aura viðbót á klst.
7. júlí. Félagsfundur. Lesið bréf frá Jón-
asi Jónssyni frá Hriflu, Agústi Jósefssyni,
prentara og form. Dagsbrúnar, og Sig-
hvati Brynjólfssyni, lögregluþj., þess efnis
að þeir heíðu í hyggju að hefja útgáfu
jafnaðarmannablaðs og óskuðu þeir eftir
fjárstyrk frá félaginu til þess. Samþ. að
veita til þess kr. 60.00 á næstu 12 mán.
og var Gísli Guðmundsson kosinn í full-
trúaráð blaðsins. (Blað það sem hér um
ræðir hóf göngu sína og nefndist Dags-
brún).