Bókbindarinn - 01.03.1956, Side 13
BÓKBINDARINN
13
Björn Bogason
(Form. ig21
Varaf.m. 1942—45
Meðstj. 1908
Gjaldk. iyoy—10
Rit. 1915)
Stefánsson, ritari; Björn M. Björnsson,
gjaldkeri.
11. júní. Félagsfundur. Félagið hefur
gengið í Alþýðusamband Islands á ný.
11. nóvember. Félagsfundur. Rætt um
húsnæðismál verkalýðsfélaganna. Samþ.
að kaupa eitt eða fleiri hlutabréf vegna
fyrirhugaðrar húsbyggingar.
6. desember. Félagsfundur. Samþykkt
árleg iðgjaldagreiðsla til Styrktarsjóðs
verkamanna- og sjómannafélaganna í
Rvík. Skorað á menn að kaupa Alþýðu-
blaðið.
1921
27. apríl. Aðalfundur. Kosnir í stjórn:
Bjöm Bogason, formaður; Bjöm Snorra-
son, ritari; Bjöm M. Björnsson, gjaldkeri.
1922
14. janúar. Félagsfundur. Erindi frá
vinnuveitendum um 20% kauplækkun.
Kosin samninganefnd.
9. febrúar. Félagsfundur. Rætt um stefnu-
skrá A. S. I. Stefnuskráin borin undir at-
kvæði og samþ. með 5 atkv. gegn 2. Einn
greiddi ekki atkvæði.
18. apríl. Stjómarfundur (sá eini sem
fundargerð er til um). Formaður lýsir því
yfir að hann geri ekki fleiri tilraunir til að
boða til aðalfundar í félaginu.
Samþykkt að láta fara fram atkvæða-
greiðslu meðal meðlimanna um það hvort
félagið starfaði áfram eða ekki.
Samþykkt var með miklum meirihluta
að leggja félagið niður, og er skjal það,
sem notað var við atkvæðagreiðsluna, enn
varðveitt (ásamt áðurnefndum kjarasamn-
ingi). Eru á það skráð nöfn allra meðlima
félagsins, sem voru samtals aðeins 11.
Þeir, sem voru fylgjandi því að leggja fé-
lagið niður, áttu að skrifa já við nafn sitt,
hinir nei, sem þeir og gerðu.
Að þetta urðu endalok þessa félags-
skapar, má vafalaust rekja til sömu or-
saka og urðu fyrra félaginu að aldurtila,
ásamt því hve fámennur hann var.
Rétt er að taka það fram, að þar sem
í framanskráðu er getið um kröfur til kjara-
bóta, en engar upplýsingar um það hvern-
ig þeim hefur reitt af, er ástæðan sú, að
þær er hvergi að finna í fundargerðum
og aðrar heimildir engar til.
1934
15. febrúar. Stofnfundur Bókbindarafé-
lags Reykjavíkur. Svo segir í fundargerð-
inni:
,,Fimmtudaginn 15. febr. 1934 var starfs-
fólk það er vinnur að bókbandsvinnu í
Reykjavík boðað til fundar í „Baðstofu
iðnaðarmanna" kl. QV2 e. h. til að ræða
um væntanlega félagsstofnun.
F’undarstjóri var kosinn Guðgeir Jóns-
son, ritari Jónas P. Magnússon.
Pétur G. Guðmundsson tók til máls og
lýsti tildrögum og nauðsyn á þeirri við-
leitni að endurvekja félagsskap meðal
þessarar stéttar."
Félagið stofnað og lög samþ.
I stjórn voru kosnir: Pétur G. Guðmunds-
son, formaður; Sveinbjörn Arinbjamar, rit-
ari; Jens Guðbjörnsson, gjaldkeri.
Um tilgang félagsins segir í lögum þess:
„Tilgangur félagsins er að vinna að
hagsbótum bókbindara sem iðnaðar-
manna og vernda rétt þeirra í atvinnu-
málum.