Bókbindarinn - 01.03.1956, Page 21
BÓKBINDARINN
21
að minnast og margt að þakka, ekki að-
eins þeim er fyrstir hófu merkið, heldur
einnig hinum sem síðan hafa borið það.
Þó liðin séu rösk 60 ár frá upphafi
verkalýðshreyfingarinnar á fslandi og
mikið hafi áunnizt, er verkalýðshreyfingin
þó enn mjög ung að árum og á óleyst sín
stærstu verkefni: að skapa alþýðunni
trygg lífskjör í landi sem hún stjórnar sjálf.
Til þess að bók verði góð bók — kjör-
gripur, er ekki nægjanlegt að hún sé gyllt
í sniðum og bókbindarinn hafi vandað sig
við verkið, nei, það verða allir að leggjast
á eitt: rithöfundurinn, prentarinn og bók-
bindctrinn. Þá er von um árangur.
Eins er þessu varið með verkalýðshreyf-
inguna. Það nægir ekki að fáir einstak-
lingar leggi sig fram og vandi verk sitt.
Hún verður því aðeins hlutverki sínu vax-
in, að allir einstaklingar í samtökunum
leggi sig fram og geri sitt bezta. Það er
von mín að bókbindarar og samtök þeirra
verði ávallt í hópi þeirra, sem vinna verk
sitt bezt á þessu sviði sem öðrum, sem eru
til heilla þjóð vorri.
Fyrst þú ert að rúnna munar big ekkert uni
að berja fyrir mig buffið uni leið.
(Bokbinderi-Arbetaren)
PÉTUR GEORG:
B rúðkaupsljóð
til systur minnar
Elsku systir! Er þú leggur
út á fjöldans breiðu vegi
sendi ég þér létt og lítið
ljóð á þínum heiðursdegi.
Óska ég þess af öllu hjarta,
að þér gefi mannsins sonur
marga snáða upp að ala:
eyrarkalla og þvottakonur.
Þó að örbirgð á þig sæki
og öfugt snúist gæfuhjólin,
þess ég óska að þú hafir
alltaf nóg að borða — um jólin.
Skyldi verða héðan hafinn
hann, sem lengst og mest þér unni,
auðnist þér að inna af hendi
afborganir af líkkistunni.
Ef að síðar að þér steðja
örlög margra vinnujálka
vona ég að þér verði fengin
vindsæl stofa á hanabjálka.
Og er þú hættir loks að lifa,
lúin, grett og syndum hlaðin,
eg skal biðja Ama að skrifa
ávísun á betri staðinn.
___________________________________