Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.07.2011, Qupperneq 12

Fréttatíminn - 22.07.2011, Qupperneq 12
sem innheimta skuldina eða ég gefi þá til góðgerðarmála. Ég vil bara fá hundrað prósent réttlæti. Ekki fimmtíu prósent eða níutíu prósent. Ég vil að hann klári það sem hann er dæmdur til að gera.“ Fagnar gagnrýni innan- ríkisráðherra Sunna segir að sér hafi létt þegar hún las í Fréttatímanum fyrir nokkru að Ögmundur Jónasson innan- ríkisráðherra teldi óeðlilegt að ríkið tryggði líkamlegt en ekki andlegt tjón. Hann vill endurskoða lögin en nú eru þau þannig að ríkið tryggir fólki 600 þúsund krónur af miskabót- um sem því eru dæmdar en tvær og hálfa milljón af skaðabótum. Miska- bætur eiga fyrst og fremst að ná yfir tilfinningalegt tjón og eru oftast dæmdar þolendum kynferðisafbrota. Skaðabætur eru dæmdar þegar fólk verður fyrir líkamlegu tjóni. Sunna kýs að stíga fram til að vekja athygli á óréttlætinu í von um að kerfinu verði breytt. „Ég gladdist svo við að sjá þessa af- stöðu innanríkisráðherra. Allt í einu fannst mér hlutirnir vera að þokast í rétta átt. Við eigum ekki marga tals- menn og við erum ekki hávær hópur, fólk sem hefur orðið fyrir nauðgun. Við berum okkar mál ekki á torg og tölum um að við höfum verið svívirt. Þess vegna fannst mér ég þurfa að Safinn virkar vel á eðlilega úthreinsun líkamans Bætir meltinguna Losar bjúg Léttir á liðamótum Losar óæskileg efni úr líkamanum Góður fyrir húð, hár og neglur Blanda má safann með vatni Má einnig drekka óblandað Velkomin að skoða www.weleda.is Útsölustaðir: Heilsuhúsið, Fræið Fjarðarkaupum, Maður lifandi, Blómaval, Á grænni grein, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa og Apótekarinn, Sólarsport Ólafsvík, Lyfjaver, Femin.is, Náttúrulækningabúðin, Lyfjaval, Yggdrasill, Reykjavíkur apótek, Árbæjarapótek, Apótek Vesturlands, Apótek Hafnafjarðar, Apótek Garðabæjar, Lyfjaborg, Barnaverslanir og sjálfstætt starfandi apótek um allt land. Weleda vatnslosandi Birkisafi Hollur og góður eftir grill- veislurnar Sunna Kristrún Gunnlaugsdóttir hefur ekki fengið greiddar miskabæturnar sem henni voru dæmdar í Hæstarétti. Maðurinn sem nauðgaði henni stakk af úr landi án þess að gera þær upp. Ríkið ábyrgist aðeins hluta af miskabótum. Kerfið verður hluti af ofbeld- inu þegar ég þarf að fara þá niðurlægjandi leið að ganga á eftir miska- bótunum. stíga fram úr því ég hef kjarkinn til þess. Maðurinn nauðgaði mér og ég kærði hann. Ég þurfti að mæta hon- um fyrir rétti og fékk hann dæmdan. Ég á ekki að þurfa að standa í meira til að klára það. Mér finnst ég búin að líða nóg.“ Réttarhöldin í miðri prófatörn Fjárhagslega tjónið sem Sunna varð fyrir eftir nauðgunina var mikið. Hún þurfti sjálf að standa straum af mest- öllum sálfræðikostnaði eftir áfallið. Auk þess missti hún úr námi og út- skrifaðist úr háskóla ári seinna en upphaflega var ætlað. Þar af leiðandi fór hún síðar út á vinnumarkaðinn. Sunna segir því að miskabæturnar sem hún fékk frá ríkinu hafi komið sér vel. „Eins og kemur fram í dómnum var ég greind með áfallastreiturösk- un eftir þetta. Álagstímar eins og í kringum próf voru mér sérstaklega erfiðir. Þá fór allt af stað í höfðinu á mér. Fjölskylda mín og námsráðgjafi staðfestu þetta fyrir dómi.“ Réttarhöldin í málinu voru í miðri prófatörn hjá Sunnu sem var í leik- skólakennaranámi. „Fyrsta prófið var degi fyrir réttarhöldin og ég fór á þrjóskunni í gegnum það. Ég skil ekki hvernig ég fór að því en ég náði prófinu og fékk átta í einkunn. Ég var ákveðin í að taka líka prófin sem voru eftir réttarhöldin. Það var hins vegar ekki möguleiki. Ég fyllti hverja bók sem ég reyndi að lesa af tárum. Ég var í algjöru uppnámi og bara skalf.“ Málið gegn nauðgaranum var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur árið 2006 og dómurinn var þyngdur í Hæstarétti nokkru seinna. Sunna segist ekki hafa treyst sér til að lesa dóminn fyrr en í gær. „Ég held ég hafi ekki gert neitt erfiðara en að sitja andspænis honum í réttarsal og fara yfir atburðarásina í smáatriðum. Mér leið svolítið eins og ég hefði farið út úr líkamanum. Ég var mjög stressuð og fannst þetta svo óraun- verulegt.“ Táknrænt ferli Sunna segist hafa glímt við sjálfs- ásakanir lengi eftir nauðgunina og verið í mikilli afneitun eftir hana. „Mér fannst þetta allt vera mér að kenna.“ Hún fann sig hins vegar knúna til að kæra manninn eftir að hann var dæmdur fyrir nauðgun á annarri ungri konu og myndir fóru að birtast af honum í blöðunum. „Ég treysti mér ekki til þess fyrr en myndin af honum kom í blaðinu og það var búið að dæma hann. Þá vissi ég að ég gæti aldrei lifað nema stíga fram líka.“ Að mati Sunnu gerir allt tal um peninga lítið úr ofbeldinu sem hún varð fyrir. Hún hafi ekki haft kjark fyrr en nú til að ganga eftir miskabót- unum sem henni voru dæmdar. Inn- heimtan sé því til skoðunar hjá lög- fræðingi hennar. „Nú er ég tilbúin að klára þetta. Peningarnir skipta engu máli en ferlið er táknrænt. Ég stend ekki í öllu þessu stappi fyrir fjögur hundruð þúsund krónur. Ég vil bara ekki eiga neitt óuppgert við þennan mann. Ég vona að þetta persónulega mál mitt hjálpi til við að breyta kerf- inu og að það fari að vinna betur fyrir okkur sem erum í þessari stöðu. Mér þætti gott ef ég gæti notað reynsluna til góðs. Ég vil bara að réttlætinu sé fullnægt.“ thora@frettatiminn.is Lj ós m yn d H ar i 12 viðtal Helgin 22.-24. júlí 2011

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.