Fréttatíminn - 22.07.2011, Síða 44
Helgin 22.-24. júlí 201144 tíska
Að hemja kaupæðið
Síðustu ár hef ég verið dugleg við að fara til út-
landa í verslunarleiðangra. Ég hef ekki keypt
mér eina einustu flík á Íslandi í að minnsta
kosti þrjú ár; hef alltaf kunnað betur við að
kaupa flíkurnar mínar í öðrum löndum.
Nú þegar ég er búsett erlendis í sumar er
erfitt að ráfa ekki um hverja búðina af annarri
og kaupa allt sem mig langar í. Undarlegt að
hafa H&M í bakgarðinum og sleppa sér ekki í
innkaupum. Í hvert skipti sem leið mín liggur
fram hjá verslununum, minni ég mig á að rétt
fyrir heimferð muni ég loksins sleppa fram af
mér beislinu.
Um daginn kom vinkona mín í heim-
sókn til mín. Við þræddum saman
göngugöturnar og ég fylgdist með
henni versla, hélt á pokunum og
sagði mitt álit. Áður en ég vissi af var ég
komin inn í mátunarklefa. Ég mátaði flíkurnar,
allar á útsölu, með kortið á lofti. Tilbúin að
fagna. Við búðarkassann fékk ég hugljómun.
Ég þarf ekki nýjan hring. Ég þarf ekki nýjar
buxur. Ég þarf ekki nýjan kjól.
Þegar ég kom hingað út átti ég er stökustu
vandræðum með að pakka niður. Ég tók alltof
mikið með mér. Flestar flíkurnar liggja ósnert-
ar og það síðasta sem ég þarf akkurat núna er
að bæta flíkum í sumarsafnið. Einhvers staðar
las ég að meðalkonan pakkaði 26 flíkum of
mikið í ferðatöskuna sína. Ég kvitta undir
þá staðreynd.
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
5
dagar
dress
Armani hannar
fyrir ólympíufara
Í vikunni samþykkti ítalski hönnuðurinn
Giorgio Armani að taka að sér að hanna ítölsku
keppnisbúningana fyrir Ólympíuleikana sem
haldnir verða næsta sumar í
London. Ítalska liðið mun svo
sannarlega keppa um titilinn
best klædda íþróttafólkið en
verða þó í harði samkeppni við
það enska, sem mun klæðast
keppnisbúningum frá hönnuð-
inum Stellu McCartney.
Armani er þó enginn nýliði
þegar kemur að því að hanna klæðnað fyrir
Ólympíuleikana því árið 2006, á Vetrarólympíu-
leikunum sem haldnir voru á Ítalíu, klæddist
fánaberi Ítala hönnun frá Armani. -kp
Kántrí-ilmur
Kántrí-söngkonan Taylor Swift hefur
nú slegist í hóp þeirra Hollywood-
stjarna sem sent hafa frá sér nýjan
ilm á árinu. Þetta mun vera frumraun
hennar á ilmsviðinu, hönnuð fyrir
kvenmenn og nefnist Wonderstruck.
Ilmurinn ku vera draumkenndur, með
keim af hindberjum og vanillu.
Söngkonan segir ilm almennt gegna
stóru hlutverki við að fanga minn-
ingar og er Wonderstruck gerður til
að skapa spennandi og glaðlegar
minningar fyrir stelpur. Hann kemur í
búðir í október og er nú þegar kominn
biðlisti eftir honum. -kp
Naglalakks-risinn
OPI kynnti í vikunni
nýjustu línu sína
sem hönnuð var
í samstarfi við
Kardashian-syst-
urnar. Línan heitir
Kardashian Kolors
og inniheldur þrett-
án ólíkar gerðir af
naglalakki sem allar
skarta sínu eigin
heiti og minna á þær
systur. Það táknar
væntanlega að þau
séu óvenjuleg og
öðruvísi og beini
huganum á einn
eða annan hátt að
þeirra persónulega
lífi. Þessi herlegheit
eru í öllum litum,
glimrandi, mött eða
glansandi.
Kardashian-systur kynna nýtt naglalakk
Mánudagur
Skór: Forever21
Buxur: Zara
Bolur: H&M
Sólgleraugu: H&M
Þriðjudagur
Skór: Fókus
Buxur: Forever21
Bolur: Vero Moda
Föstudagur
Sokkabuxur: Oroblu
Kjóll: Forever21
Eyrnalokkar: Kiss
Fimmtudagur
Skór: Kaupfélagið
Samfestingur: Gamall af ömmu
Hálsmen: Vintage
Belti: H&M
Miðvikudagur
Skór: H&M
Sokkabuxur: Oroblu
Stuttbuxur: Gamlar af mömmu
Korselett: Forever21
Hildur Hilmarsdóttir er 20 ára. Hún
vinnur á hvalaskoðunarskipi í Reykjavík
í sumar og stefnir svo á lögfræðina í
haust. Hún hefur mikinn áhuga á tísku,
ferðalögum og að vera með vinum
sínum.
„Ég myndi lýsa stílnum mínum sem
frekar venjulegum. Ég fæ mikinn inn-
blástur frá fólki í kringum mig, sé hvað
er flott og pikka út það sem passar við
minn stíl. Ég er gjörsamlega skósjúk,
elska kjóla og bara að vera fín yfirhöfuð.
Fötin kaupi ég aðallega í Forever21,
Zöru, Sautján og svo sauma ég mikið
sjálf. Ég versla þó langmest í H&M þegar
ég kemst út og einn góðan veðurdag
mun ég flytja þessa búð til landsins.
Ég er mikið í því að skoða tískublogg
og sænski bloggarinn Kenza er í miklu
uppáhaldi hjá mér. Hún er alltaf töff,
með flottan fatastíl og er svo sannarlega
meðvituð um tískuna.“
Ætlar sér að flytja H&M til landsins
trúlofunarhringar
falleg minning á fingur
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
11
30
1
www.jonogoskar.is laugavegur / Smáralind / Kringlan